Víkurfréttir - 28.06.2012, Síða 14
FIMMTUDAGURINN 28. júNí 2012 • VÍKURFRÉTTIR14
Kl. 21.00 á laugardagskvöldi: komið að hinni árlegu ferð út í Garð þar sem
ég og vinkona mín förum saman á Sólseturhátíð. „Heyrðu, bara svo það
sé á hreinu þá nenni ég ekki að vera lengi. Er orðin
of gömul fyrir langar vökur. Kíkjum á skemmtiatriðin
og förum svo fljótlega heim. Skil ekki fólk sem getur
verið að undir morgun. Ætla að nota sunnudaginn
vel og þá þýðir ekkert að vera eitthvað þreyttur og
slappur. Ég hef bara ekki þrek í langar vökur og allt í
lagi að fá sér í litlu tána en Guð minn góður hvað ég
er hætt að geta skrallað eins og hér í gamla daga.
Mér finnst þetta ekki snúast um hvað maður er lengi
að – frekar að skemmta sér vel á meðan maður er á
staðnum og fara svo heim þegar hæst stendur. Það
er alltaf gaman hjá okkur, hvort sem við stoppum
stutt eða lengi og svo erum við erum jú orðnar miðaldra „skvísur“ með
minna þol! En þar sem maður er orðin fullorðin manneskja þá stjórnar
maður þessu auðvitað sjálfur!!“
Kl. 21.30 - 00:00 – sungið, dansað, hoppað, heilsað, hlegið á yndislegu
íslensku sumarkvöldi. Íslensk dægurlög sjaldan hljómað svona vel, Valgeir
Guðjóns var með allt á hreinu, Valdimar klikkaði ekki frekar en fyrri daginn
og fleiri bönd héldu uppi stanslausu stuði. Aðeins farið að kólna og þá kom
finnski snafsinn sér vel og svo var bara að hoppa hærra og tvista hraðar í
takt við Sigurjón digra og Taktu til við að tvista!
Kl. 00:00 - „Er okkur boðið í húsbílapartý. Já ok, getum alveg kíkt, hef
reyndar aldrei skilið þetta húsbíladæmi. Sá einu sinni þátt um fólk sem á
svona húsbíla, verð að viðurkenna að mér fannst það pínu skrýtið. Svo fara
þau saman í alls konar ferðir, og leggja bílunum sínum einhvers staðar
og tralla saman. Grillað á svona einnota, setið á rósóttu útilegustólunum
og drukkið úr plast- vínglösum. Sungið og trallað fram eftir nóttu með
kassagítar og munnhörpu. Búa sér til svona „vinargerði“ þar sem þau
leggja í hring og enginn kemst inn nema fuglinn fljúgandi. Eru þau svo
ekki alltaf að keppast um hver á flottasta og kraftmesta bílinn. Held að
þetta sé alveg sér þjóðflokkur, svona eins og hjónin í National Lampoons
Christmas Vacation sem komu og lögðu á bílaplaninu hjá Griswald-fjöl-
skyldunni!! Not my thing, eitthvað!!!
Kl. 05:00 – „Ertu að grínast, þetta var geðveikt, eigum við ekki bara að fá
okkur svona húsbíl vinkona. Tókstu eftir plastglasinu sem ég drakk úr –
fjólublátt í stíl við naglalakkið. Þetta yndislega fólk kann svo sannarlega
að skemmta sér. Heldurðu að við getum fengið að fara með í svona
ferðir og komist í svona „vinargerði“. Sé okkur alveg í anda túra um
landið, getum farið á allar helstu sumarhátíðirnar. Við verðum flottastar
á Dönskum dögum og írskum, Humarhátíð, Ástarvikunni, Þjóðhátíð,
Sandgerðisdögum og endað á Ljósanótt! Við munum leggja bílnum á
góðum stað og syngja og tralla fram eftir nóttu. Þurfum að redda okkur
kassagítar og munnhörpu. Þurfum að fá okkur almennilegan kraftmikinn
bíl svo við stöndumst samanburð! Kl. 05:15 – „Er klukkan orðin rúmlega
05:00! Hva.. Sólseturhátíðin er jú bara einu sinni á ári. Skil ekki fólk
sem leyfir sér aldrei að sletta úr klaufunum – hefur alltaf áhyggjur af
morgundeginum og hvað öðrum finnst. Lifa lífinu – er mitt mottó, get sofið
þegar ég er gömul. Miðaldra hvað – aldur er afstæður! Það verður gott að
vera í afslöppun á morgun, á það svo sannarlega skilið. Maður er alltaf að,
ha, ALLTAF! Ég hlýt að mega stjórna þessu sjálf! Góða nótt vinkona!“
Þangað til næst – gangi þér vel.
Anna Lóa
Sól rís – sól sest!!
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
IÐNAÐARRYKSUGUR
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Akureyri
Húsavík
Vestmannaeyjum
Ryk/blautsuga Drive ZD10-
50L 1000W, 50 lítrar
27.900,-
Ryk/blautsuga Drive ZD98A-
2B 2000W, 70 lítrar
42.890,-
Drive Bískúrsryksugan
1200W, 20 lítrar
6.990,-
Arges HKV-100GS15
1000W, 15 lítrar
21.900,-
Í sneplinum Reykjanes sem gefið var út 14. júní sl. er að finna á
miðopnu tvær aðsendar greinar
er fjalla um bæjarmálin í Garði og
þá sér í lagi skólamálin. Annars
vegar er grein eftir Kolfinnu S.
Magnúsdóttur og hin eftir Braga
Einarsson.
Kolfinna fer mjög ítarlega yfir
ástæður þess að hún yfirgaf
meirihlutann, vonbrigði sín yfir
þeim vinnubrögðum er hún taldi
viðhöfð þar og hvernig málin eigi
að vera unnin að hennar viti. Fólk
eigi að sýna hvert öðru virðingu,
tillitssemi og að aðgát skal höfð í
nærveru sálar. Allt þetta get ég að
sjálfsögðu tekið undir með henni,
en verð þó að segja að þá hlýtur
þetta að gilda um alla, líka nýja
meirihlutann. Ekki hef ég orðið var
við það undanfarin tvö ár, eða frá
því N-listinn missti völd sín hér
í Garði, að nýir félagar hennar í
bæjarpólitíkinni hafi haft þennan
samskiptamáta að leiðarljósi í
samskiptum sínum við þáverandi
meirihluta.
Up p á k o m a n á 1 0 3 . f u n d i
bæjarst jórnar, þar sem nýr
meirihluti leit dagsins ljós, sýndi
síðan svo ekki yrði um villst, að
þetta sama fólk ber enga sérstaka
virðingu fyrir lýðræðislegum
leikreglum, þrátt fyrir að hafa sjálft
í ótal níðgreinum vænt fráfarandi
meirihluta og þáverandi bæjarstjóra
um ólýðræðisleg vinnubrögð.
En eitt má Kolfinna þó eiga, hún
viðurkennir í grein sinni að áhyggjur
þáverandi meirihluta skólanefndar
hafi, samkvæmt úttekt á starfsemi
Gerðaskóla, verið á rökum reistar.
Það hið sama verður ekki sagt um
yfirlýsingar nýrra félaga hennar,
á þeim bænum eru menn sveittir
við að endurskrifa söguna og
ber grein Braga Einarssonar þess
gleggst merki. Hann skautar mjög
léttilega framhjá þeim ábendingum
sem fram koma í skýrslunni um
það sem betur megi fara í stjórnun
og kennsluháttum í Gerðaskóla og
telur einn veigamesta punktinn
vera þann að bæjarstjórnin og
skólanefndin hafi ekki staðið undir
væntingum. Eru þetta nokkuð
undarleg sjónarmið þar sem ekki
er annað hægt að lesa úr grein
Braga, en að hann hafi kynnt sér
skýrsluna og meira að segja hvetur
aðra til að gera slíkt hið sama. En
af ruglingslegri grein hans getur
maður ekki ímyndað sér annað
en að maðurinn hafi bara látið sér
nægja að lesa fyrirsögn hennar.
Ekki hafði ég ætlað mér að leggjast
í greinaskrif um skólamálin í Garði,
nógir hafa verið til þess. En í ótal
samtölum sem ég hef átt undanfarið
við marga er nú mynda nýjan
meirihluta og þá sér í lagi bakland
þeirra, verð ég þess áskynja að þar
á bæ ætla menn sér að gera sem
minnst úr þeim sterklega orðuðu
ábendingum og athugasemdum er
fram koma í áðurnefndri úttekt um
starfsemi Gerðaskóla. Kannski er
það ekki skrýtið að þetta sama fólk
vilji sem minnst af henni vita, enda
tekur hún á mörgum sviðum til
þeirra þátta sem stór hluti af nýjum
meirihluta hefur haft með að
gera í skólanum. Vil ég því í grein
þessari árétta það sem fyrrverandi
meirihluti allur í skólanefnd taldi
vera að í starfsemi skólans og
umrædd úttekt tók undir að mestu
leyti:
Einelti sem mælist 450% yfir
landsmeðalta l i er með öl lu
óásættanlegt, takið eftir 450%
yfir landsmeðaltali. Rúm 50% af
nemendum sjötta bekkjar gátu
ekki lesið sér til gagns, þetta þýðir
á mannamáli að þessi sömu börn
hafa ekki leskunnáttu til að nýta
sér námsefni sitt. Í nýlegri PISA-
könnun kom fram að Gerðaskóli
er í 178. sæti af 180, fram kemur í
skýrslunni að stjórnendum skólans
hafi ekki þótt ástæða til að rýna í
þetta, enda um „útlenska“ könnun
að ræða.
Gerðaskóli hefur al lar götur
frá 2006 dalað í samræmdum
prófum og er nú lakasti skólinn
á Suðurnesjum og eru Suðurnes
svo lakasta umdæmið á landinu
öllu. Ef þarna var ekki tilefni til að
spyrna við fótum og hreinlega segja
hingað og ekki lengra þá veit ég
ekki hvað hefði þurft til.
Þarna vorum við í meirihlutanum
algjörlega sammála og ætluðum
okkur ekki að bregðast samfélaginu
og gera bara eins og forverar okkar,
klappa hvert öðru á bakið, sem og
stjórnendum, og hrósa okkur og
þeim fyrir frábæran árangur.
Heigulsháttur og hræðsla er orðið
viðvarandi vandamál í íslenskri
stjórnsýslu, skiptir þá engu máli
hvort horft er til landsstjórnar eða
sveitarstjórnarstigsins.
Það má engan styggja, enga skoðun
hafa á því sem miður fer og helst
ekki vera fyrir neinum. Réttindi
barna til að sækja skóla sinn í
friði fyrir vandræðagemlingum er
fyrir borð borinn, eiturlyf flæða
inn í landið, glæpamenn vaða upp,
fjárglæframenn fá bara ný kúlulán
um leið og búið er að afskrifa gömlu
kúlulánin þeirra og svo mætti lengi
telja.
Ég ætla mér ekki að bætast í þann
hóp manna sem kjósa að líta undan,
hef hreinlega ekki geð í mér til þess,
enda getur varla verið að það sé
pláss fyrir öllu fleiri í þeim hópi.
Þegar horft er yfir farinn veg get ég
ekki annað en verið ánægður með
það sem áunnist hefur í málefnum
Gerðaskóla. Þar starfar upp til
hópa frábært fólk, en engum dylst
það lengur að full þörf var á að
hrista upp í hlutum og vekja menn
til vitundar um að allir þyrftu að
spyrna sér frá botni. Nú liggur þessi
skýrsla fyrir, markmiðin eru skýr
og leiðin ljós, héðan í frá getur hún
ekki annað en legið upp á við.
Reynir Þorsteinsson.
MEIRA AF SKÓLA
MÁLUM Í GARÐI
Körfuknatt leiks deild Keflavíkur hefur gert samning við
Darrel K. Lewis um að leika með
liðinu á komandi tímabili. Darrel
Lewis er íslenskur ríkisborgari en
hann er í kringum 192 cm á hæð
og getur spilað bæði skotbakvörð
og lítinn framherja.
Flestir körfuknattleiksunnendur
ættu að þekkja Darrel Lewis
en hann lék þrjú tímabil með
Grindavík við góðan orðstír á
árunum 2002 – 2005. Síðan þá
hefur Darrel Lewis leikið á Ítalíu og
í Grikklandi en á síðasta tímabili
lék hann með OF Irakleio í grísku
2. deildinni þar sem hann var með
tæp 15 stig, 4,6 fráköst og um tvo
stolna bolta að meðaltali í leik. Ljóst
er að með komu Darrel Lewis mun
koma aukin reynsla inn í hið unga
Keflavíkurlið. Slík reynsla ætti að
reynast liðinu vel og munu ungu
leikmennirnir án efa geta notið
góðs af þekkingu og hæfileikum
Darrel Lewis.
Viðtal við Lewis má sjá á heimasíðu
Keflvíkinga þar sem meðal annars
kemur fram að hann hlakkar til
að spila undir stjórn Sigurðar
Ingimundarsonar og einnig að leika
við hlið Magnúsar Gunnarssonar.
Einnig ætlar hann að skella sér á
Nonnabita í Reykjavík og fá sér
samloku.
Darrel Lewis til Keflavíkur
Yfirburðir hjá ÍRB