Víkurfréttir - 28.06.2012, Page 16
Fullkominn ég
Hef stundum velt því fyrir mér, hvernig það væri að eiga hið fullkomna líf. Vera fullkominn að því leytinu að geta
uppfyllt alla sína drauma og þrár. Hef það á tilfinningunni að
ég sé búinn að rembast við eitthvað sem aldrei verður. Sumt er
vissulega hægt að framkvæma án mikilla erfiðismuna en ann
að hefur ekkert með þig að gera. Ytri aðstæður er viðkvæðið.
Draumarnir blunda bara á meðan og „hold“ takkinn er frosinn
fastur. Kemur mér ekki úr jafnvægi, þetta lagast allt saman með
tíð og tíma. Missi hvorki hjartslátt eða svefn yfir því. Lífið er alltof skemmtilegt
til þess að vera að velta sér upp úr einhverju sem maður fær ekki breytt.
En hvernig verður fullkomnunaráráttunni fullnægt? Það er nefnilega svo auðvelt að hálffylla hamingjuglasið án mikilla erfiðismuna. Hamingjan fæst
ekki keypt, alveg sama hversu mikla peninga sem maður á. Verstu árin í mínu
lífi voru þegar ég átti nóga peninga, meira en ég þurfti á að halda. Réði illa við
taktinn og hjartsláttartruflanir í sinni víðustu mynd gerðu vart við sig. Þeirri
stund fegnastur þegar ég komst aftur niður á jörðina. Örlögin gripu í taumana
og réttu stöðuna af. Ytri aðstæður? Nei, sennilega verndarenglar sem vaka yfir
allt um kring og vísa manni aftur á rétta braut. Ekki í vafa um það. Guði sé lof,
hallelúja!
Það er samt vert að skoða möguleikana á fullkominni hamingju. Líf og heilsa trónir þar hæst. Það er ekkert sjálfsagt að vakna á hverjum morgni án verkja
eða kvilla. Sjö, níu, þrettán. Hreyfingin er dýrmæt og það að geta nánast gert það
sem hugurinn girnist, er guðsgjöf. Ég hef gaman af golfi, veiði, dansi, línuskaut
um, göngu og sundi. Stunda þetta bara í alltof litlum mæli. Breytt hugarástand
er allt sem þarf. Tíminn er afstæður og þú einn ræður því hvernig þú ráðstafar
honum. Voðalega gott að gefa af sér líka í leiðinni. Njóta samverunnar með
einhverjum utan veggja heimilisins. Foreldrum, systkinum, frændfólki, vinum
eða kunningjum. Að ógleymdu samneytinu við vinnufélagana. Vinnan er gulls
ígildi. Bara gleyma sér ekki í henni.
Börnin er okkur allt. Framtíð þeirra og vegsemd er það sem maður lifir fyrir. Sjá þau vaxa og dafna í lífsins ólgusjó. Stofna eigin fjölskyldu, koma sér fyrir,
ferlið endurnýjað með góðlátlegum ráðleggingum og umhyggju foreldranna.
Ekki gleyma afa og ömmu. Þar liggur viskubrunnurinn.
vf.is
Fimmtudagurinn 28. júní 2012 • 26. tölublað • 33. árgangur
auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001
FIMMTUDAGSVALS
VAlUr KeTIlSSon SKrIFAr
VEITINGASALAN Í LEIRU
ER OPIN ALLA DAGA
HAFIÐ SAMBAND Í
SÍMA 421 4100 EÐA
NETFANGIÐ GS@GS.IS
Í HÁDEGINU
ALLA DAGA
SÚPA DAGSINS OG
FERSKUR FISKUR
KAFFIVEITINGAR,
HAMBORGARAR,
SAMLOKUR OG FLEIRA
GÓÐGÆTI.
OPIÐ ALLA DAGA FRAM
Á KVÖLD FYRIR FÉLAGA Í
GS OG AÐRA.
landsbankinn.is 410 4800Landsbankinn
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Betri kjör á
fjármögnun
á nýjum bílum
Skilmála og nánari upplýsingar má finna á landsbankinn.is
eða hjá Bíla- og tækja fjármögnun Landsbankans í Sigtúni 42.
Landsbankinn býður 8,95% óverðtryggða vexti, lægra
lán tökugjald og 15.000 Aukakrónur til Aukakrónukorthafa
við fjármögnun á nýjum bíl fram til 6. júlí 2012. Láns-
tíminn er allt að 7 ár og lánshlutfallið allt að 75%.
Suður strandar
vegur opnaður
– kostaði 3 milljarða
Suðurstrandar vegur var form lega opn aður á d ö g u n u m m e ð h e fð b u n d i n n i b o r ð a
klipp ingu sem innan ríkis ráð herra Ög mundur
Jónass on sinnti ásamt Hreini Har alds sy ni
vega mála stjóra. Athöfnin fór fram rétt austan
vega mót anna við Krýsu víkurveg.
Vegurinn er 57 km langur frá Grindavík í vestri
að Þorlákshöfn í austri. Liggur hann um þrjú
sveitar fé lög en þau eru Gr indavík , Hafnar
fjarðarbær og Sveitarfélagið Ölfus.
Fram kvæmdin hafði verið í undir búningi frá
árinu 1996 og markmið hennar var að byggja
upp varan lega og örugga veg tengingu mi l l i
Suðurlands og Suður nesja til hags bóta og öryggis
fyrir íbúa og atvinnulíf á svæðunum. Áætlaður
heildar kostnaður er rétt tæpir 3 milljarðar króna
upp reiknað til verð lags í dag.
Google í heimsókn hjá Vísi
Sendinefnd frá G o og le heims ótti Ís land á dögunum á vegum embættis forseta Íslands. Tilgangur ferðar
innar var að kanna grundvöll að samstarfi sem tryggt getur
ábyrgara eftirlit með veiðum á höfum heims og hvernig
upplýsingatækni og reynsla Íslendinga getur nýst í þessum
efnum.
Sendinefndin átti viðræður við fyrirtæki á sviði upplýsinga
tækni og í sjávarútvegi. Á fimmtudaginn síðastliðinn kom
sendinefndin í heimsókn í höfuðstöðvar Vísis í Grindavík þar
sem fyrirtækið var kynnt ásamt þeirri rafrænni skráningu og
rekjanleikakerfi sem Vísir hefur notað síðastliðinn áratug.