Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.04.2013, Page 4

Víkurfréttir - 24.04.2013, Page 4
miðvikudagurinn 24. apríl 2013 • VÍKURFRÉTTIR4 Páll Ketilssonvf.is Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Krossmóa 4, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is Jón Júlíus Karlsson, jjk@vf.is, GSM 849 0154 Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is Víkurfréttir ehf. Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0006, thorgunnur@vf.is Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0006 Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is Landsprent 9000 eintök. Íslandspóstur www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is Útgefandi: afgreiðsla og ritstjórn: ritstjóri og ábm.: fréttastjóri: blaðamenn: auglýsingadeild: umbrot og hönnun: auglýsingagerð: afgreiðsla: Prentvinnsla: uPPlag: dreifing: dagleg stafræn Útgáfa: RITSTJÓRNARBRÉF Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkur-frétta, vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur-frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prent- aðri útgáfu blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta. Óskalisti Enn einar aþingiskosningar eru runnar upp. Margvíslegir óskalistar. Hvað viljum við Suðurnesjamenn sjá gerast á næstunni? Í heimsóknum margra full- trúa flestra framboða sem komið hafa á skrifstofu Víkurfrétta segja þeir flestir að trygg atvinna sé efst á lista hjá fólki. Þar á eftir koma heilbrigðismál og menntun. Undir þetta geta flestir tekið undir að ógleymdum skuldamálum heimilana sem eru víða í hnút í kjölfar bankahruns fyrir tæpum fimm árum síðan. Flokkarnir ætla allir að leysa það mál en með mismunandi áherslum og aðferðum. Um það má deila hvernig núverandi ríkisstjórn hafi tekist. Miðað við skoðanakannanir fær hún falleinkunn. Miðað við umræðuna í pólitíkinni að undanförnu er ekki ólíklegt að Framsókn og Sjálfstæðisflokkur taki við stjórnartaum- unum. Hvort sem það verður þeirra hlutverk eða annarra er ljóst að það eru mörg verkefni sem bíða úrlausnar. Til gamans fylgir hér forystugrein úr pólitísku blaði fyrir alþingiskosningar fyrir um hálfri öld. Þó ein- hverjir geti giskað á hvaða pólitíski flokkur hafi skrifað svona er ljóst að mjög mörg atriði þarna voru margir og eru enn í dag eflaust sammála um. - Við óskum tryggrar atvinnu handa öllu sem vinnufærir eru, lífvænlegs kaups og fullkomnis öryggis við alla vinnu á sjó og landi. - Við óskum fullkominna trygginga fyrir sjúka menn, örkumla eð aaldraða og fulls lífeyris handa ekkjum, ein- stæðum mæðrum og munaðarlausum börnum. - Við óskum góðra og ódýrra íbúða handa alþýðu manna. - Við óskum jöfnunar teknanna, afnám okurs og arðráns. - Við óskum lækkaðra skatta, tolla og flutnings- gjalda, heiðarlegrar starfrækslku á vegum ríkis- ins og skynsamlegrar meðferðar á tekjum þess. - Við óskum aukins iðnaðar og meira og ódýrara rafmagns. - Við óskum viðurkenningar á einkarétti Ís- lendinga á landgrunninu kringum Ísland. - Við óskum verndunar íslensks þjóðernis og viljum losna sem fyrst við erlendan her úr land- inu og erlendar hernaðarframkvæmdir. - Við óskum sterkra og stéttvísra verkalýðssamstaka og stjórnar, sem starfar með hag allra íslenskra vinnustétta fyrir augum. - Þess vegna kjósum við NemeNdur Fs til FyrirmyNdar Oft hefur verið rætt um mikla drykkju unglinga hér á landi og vandamál því samfara. Til að kanna raunverulegt ástand þessara mála meðal framhalds- skólanemenda var gerð könnun í öllum framhaldsskólum landsins á vegum Rannsóknar og grein- ingar í febrúar, en sambærilegar kannanir hafa verið gerðar meðal grunnskólanemenda í nokkur ár. Kannanirnar sýna að verulegur árangur hefur náðst með sam- vinnu sveitarfélaga, foreldra og skóla og hefur dregið til muna úr reykingum, drykkju og notkun ólöglegra vímuefna meðal grunn- og framhaldsskólanemenda á Ís- landi. Það er ánægjulegt fyrir okkur í FS að geta vitnað í þessa könnun og bent á að ástandið hér er betra miðað við flesta aðra skóla á land- inu. Það hefur dregið jafnt og þétt úr reykingum og neyslu áfengis og ólöglegra vímuefna. Það sem helst sker sig úr í okkar skóla er að notkun á munntóbaki er meiri hér en annars staðar á landinu. Einnig vekur athygli það viðhorf nemenda að þau telja að foreldrar sínir líti það ekki eins alvarlegum augum að þau séu farin að smakka áfengi í framhaldsskóla eins og í grunn- skóla. Þó að ástandið sé gott í okkar skóla þá má alltaf gera betur og við þurfum að taka höndum saman með forráðamönnum um að gera enn betur í þessum málum. Nánar má fræðast um þessa skýrslu frá Rannsókn og greiningu á heima- síðu skólans www.fss.is Innritun eldri nemenda Eitthvað hefur dregið úr atvinnu- leysi hér á svæðinu undanfarið sem betur fer. Engu að síður eru allt of margir atvinnulausir á aldrinum 18 – 24 ára. Margir í þessum hópi hafa ekki lokið öðru en grunnskólaprófi og geta því ekki valið úr störfum sem krefjast framhaldsmenntunar. Í maí verður opið fyrir innritun þeirra eldri nema sem ekki voru í skóla á þessari önn á www.mennta- gatt.is. Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá sem langar að bæta við sig menntun eða ljúka námi sem þeir hófu fyrir einhverjum árum, til að drífa sig í skóla. Í FS er fjölbreytt nám við hæfi flestra. Fyrir þá sem vilja vera stutt í skóla er í boði starfsnám sem tekur eitt til tvö ár, inni í því er starfsþjálfun eða starfskynning á vinnustað. Stuttar starfsnáms- brautir eru t.d. ferðaþjónustubraut, tölvuþjónustubraut, heilbrigðis- og félagsþjónustubraut og versl- unar- og þjónustubraut. Einnig er hægt að velja grunndeildir verknámsbrauta eða lengri verk- námsbrautir eins og húsasmíði, rafvirkjun, málmsmíði, vélstjórn eða hárgreiðslu. Einhverjir kunna að halda að nú sé ekki hægt að læra verknám því það sé svo lítið að gera. En þetta er einmitt rétti tíminn til að afla sér iðnréttinda til að vera tilbúinn með full réttindi þegar hjól atvinnulífs- ins fara af stað fyrir alvöru. Þeir sem lokið hafa starfs- eða verknámi geta bætt við sig viðbótarprófi til stúdentsprófs ef þeir vilja halda áfram í frekara nám. Sé stefnt á há- skólanám er hægt að innrita sig beint á einhverja af þeim stúdents- brautum sem í boði eru. Fyrir þá sem eru óákveðnir er gott að hitta námsráðgjafa í FS. Þeir sem vilja byrja rólega og þreifa fyrir sér geta valið svokallaðar smiðjur á meðan þeir eru að finna sig aftur í náminu. Fjölbreytnin er mikil. Þetta er tækifæri sem allir ættu að íhuga vandlega. Það er ljóst að sífellt er verið að gera meiri kröfur um menntun á hinum almenna vinnumarkaði og þá standa þeir betur að vígi sem eru með eitthvað nám að baki. Því miður er ekki víst að hægt sé að lofa öllum skólavist sem sækja um en vonandi sem flestum, því enginn veit hvort og þá hvenær svona tækifæri býðst aftur. Helgina 4.-5. maí næstkomandi verða haldnar þjálfarabúðir fyrir einkaþjálfara og aðra áhugasama um þjálfun og hreysti með tveimur bandarískum gestafyrirlesurum, þeim dr. Mike Martino og Robert Linkul. Sem prófessor í íþrótta- og hreyfifræði hjá Georgia College, hefur Mike skapað sér nafn sem einn af fremstu fræðimönnum í faginu. Hann er margreyndur fyrirlesari og leiðbeinandi á ráðstefnum fyrir þjálfara á stærri sem minni viðburðum innan Bandaríkjanna. Mike er einn af þeim helstu sem leitað er til í kennslu á „battling ropes system“ sem hefur verið að ryðja sér til rúms undanfarin ár. Hann lærði beint af höfundi þjálfunaraðferðarinnar, John Brookfield, og hefur Mike rannsakað notagildi og árangur af þjálfunarað- ferðinni sem felur í sér að hrista kaðla á sverleika við landfestar stórra togara. Slík þjálfunaraðferð ætti að höfða vel til fiskimanna- þjóðar eins og Íslendinga. Einnig mun félagi Mikes, Robert Linkul, sem var valinn einkaþjálfari ársins 2012 hjá NSCA, kenna þjálfunaraðferð sem Íslendingum er afar hjartfólgin. Hann mun kynna hvernig hægt er að nota aflraunaæfingar fyrir almenna líkamsræktariðk- endur. Robert er mikill aðdáandi aflraunaíþróttarinnar og í samtali við hann, sagðist hann vera mjög spenntur fyrir heimsókninni til upprunalands aflraunanna, eins og hann orðaði það. Robert hefur meistaragráðu í íþróttafræði með áherslu á einkaþjálfun og er einnig handhafi tveggja skírteina frá NSCA, CSCS og CPT. Hann skrifaði bókina “Con- fessions of a Certified Personal Trainer” árið 2011 og er ötull greinahöfundur um einkaþjálfun í ýmiss fagtímarit og vefsíður. Þjálfarabúðirnar eru opnar öllum sem vilja læra um sértækar þjálfunaraðferðir en einkaþjálfarar og annað fagfólk er sérstaklega hvatt til að mæta. Allar upplýsingar um þjálfarabúðirnar eru á heimasíðu íþróttaakademíunnar www.iak.is landfestar sem líkamsræktartæki Haraldur axel ráðinn aðstoðarskólastjóri Haraldur Axel Einarsson hefur verið ráðinn aðstoðarskólastjóri Heiðar- skóla og mun hann taka við því starfi innan skamms. Haraldur hefur starfað sem stærð- fræðikennari í skólanum frá árinu 2005 og sinnt deildarstjórnun þetta skólaárið. Haraldur var meðal fimm umsækjenda sem sóttust eftir starfinu. Eins og greint var nýlega frá urðu skólastjóraskipti þegar Gunnar Þór Jónsson lét af störfum. Sóley Halla Þórhallsdóttir sem gegnt hefur starfi aðstoðarskólastjóra frá 2003 tók þá við starfi skólastjóra. Það er því nýtt stjórnunarteymi í Heiðarskóla.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.