Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.04.2013, Blaðsíða 30

Víkurfréttir - 24.04.2013, Blaðsíða 30
miðvikudagurinn 24. apríl 2013 • VÍKURFRÉTTIR30 Íris Einarsdóttir stundar nám við Musicians Institute tón- listarskólann í Los Angeles í Kali- forníuríki Bandaríkjanna þar sem hún leggur stund á söng- og píanónám. Íris sem er úr Reykja- nesbæ segist hafa heillast af skól- anum þegar hún leitaði að spenn- andi kosti á erlendri grundu. Áður en hún hélt til Englaborgarinnar þá lagði hún hart að sér að safna peningum enda kostar sitt að lifa og læra vestanhafs. Lengi hefur söngurinn blundað í Ír- isi en hún hefur þanið raddböndin frá unga aldri. „Ég hef alltaf haft áhuga á söng og öllu sem við kemur tónlist. Mamma skráði mig alltaf á söngnámskeið þegar ég var yngri og ég hef alltaf viljað fara eitthvert út að læra meira tengt tónlistinni,“ segir Íris. Hún velti fyrir sér að fara til London að læra en Bandaríkin heilluðu meira. Eftir að hún sagði mömmu sinni frá draumum sínum þá var ekki aftur snúið. „Mamma er Söngfuglí E glaborginni ÍRIs eInaRsdóTTIR úR ReyKjanesbæ -Íris Einarsdóttir stundar nám í tónlistarskóla í Los Angeles þar sem hún nýtur lífsins rosalega dugleg að sparka í rassinn á mér og ýta mér út í hlutina. Hún hjálpaði mér alveg svakalega mikið og er algjörlega heilinn á bak við þetta,“ segir Íris og hlær. Hún segir það vera talsvert ferli að sækja um svona nám og þá sé gott að eiga góða að. Gaman að upplifa nýja menn- ingu og kynnast fólki „Þetta er rosalega skemmtilegt. Ég elska að gera eitthvað nýtt og upp- lifa aðra menningu og kynnast nýju fólki,“ segir Íris þegar Víkurfréttir náðu af henni tali. Nokkuð hefur verið um gestagang hjá henni en hún leigir stúdíóíbúð í Hollywood- hverfinu fræga ásamt kærasta sínum sem ákvað að skella sér með til Los Angeles. Hann stundar nám við Santa Monica college. Fjölskyldan hefur heimsótt þau skötuhjúin og segir Íris að foreldrar hennar hafi veitt henni ómetanlega aðstoð í öllu ferlinu. Íris segir mikið líf vera í skólanum sem er opinn allan sólarhringinn. Þar er hún dugleg að nýta aðstöð- una og æfa sig af kappi. Nokkrir aðrir Íslendingar sækja skólann en Íris segir krakkana vera duglega að hittast og læra saman. Þegar hún er spurð út í námið þá segist hún hafa lært mikið á stuttum tíma, en hún hélt til Bandaríkjanna síðasta haust. „Kennararnir eru rosalega klárir og krakkarnir mjög skemmtilegir.“ Það er ekki allt dans á rósum í borginni en skóli Írisar er staðsettur við Hollywood boulevard þar sem mikið af heimilislausu fólki heldur Viðtal: Eyþór Sæmundsson • Myndir úr einkasafni. Íris lifir sig inn í sönginn en hér er hún ásamt Kristjóni Frey Hjaltested Suðurnesjamanni sem einnig stundar nám í L.A Íris og kærastinn skelltu sér til Las Vegas í frí Íris ásamt föður sínum Einari Jónssyni Það er aldrei langt í strönd- ina eða næstu sundlaug

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.