Víkurfréttir - 24.04.2013, Page 30
miðvikudagurinn 24. apríl 2013 • VÍKURFRÉTTIR30
Íris Einarsdóttir stundar nám við Musicians Institute tón-
listarskólann í Los Angeles í Kali-
forníuríki Bandaríkjanna þar
sem hún leggur stund á söng- og
píanónám. Íris sem er úr Reykja-
nesbæ segist hafa heillast af skól-
anum þegar hún leitaði að spenn-
andi kosti á erlendri grundu. Áður
en hún hélt til Englaborgarinnar
þá lagði hún hart að sér að safna
peningum enda kostar sitt að lifa
og læra vestanhafs.
Lengi hefur söngurinn blundað í Ír-
isi en hún hefur þanið raddböndin
frá unga aldri. „Ég hef alltaf haft
áhuga á söng og öllu sem við kemur
tónlist. Mamma skráði mig alltaf á
söngnámskeið þegar ég var yngri
og ég hef alltaf viljað fara eitthvert
út að læra meira tengt tónlistinni,“
segir Íris. Hún velti fyrir sér að fara
til London að læra en Bandaríkin
heilluðu meira. Eftir að hún sagði
mömmu sinni frá draumum sínum
þá var ekki aftur snúið. „Mamma er
Söngfuglí E glaborginni
ÍRIs eInaRsdóTTIR úR ReyKjanesbæ
-Íris Einarsdóttir stundar nám í
tónlistarskóla í Los Angeles þar
sem hún nýtur lífsins
rosalega dugleg að sparka í rassinn
á mér og ýta mér út í hlutina. Hún
hjálpaði mér alveg svakalega mikið
og er algjörlega heilinn á bak við
þetta,“ segir Íris og hlær. Hún segir
það vera talsvert ferli að sækja um
svona nám og þá sé gott að eiga
góða að.
Gaman að upplifa nýja menn-
ingu og kynnast fólki
„Þetta er rosalega skemmtilegt. Ég
elska að gera eitthvað nýtt og upp-
lifa aðra menningu og kynnast nýju
fólki,“ segir Íris þegar Víkurfréttir
náðu af henni tali. Nokkuð hefur
verið um gestagang hjá henni en
hún leigir stúdíóíbúð í Hollywood-
hverfinu fræga ásamt kærasta sínum
sem ákvað að skella sér með til Los
Angeles. Hann stundar nám við
Santa Monica college. Fjölskyldan
hefur heimsótt þau skötuhjúin og
segir Íris að foreldrar hennar hafi
veitt henni ómetanlega aðstoð í öllu
ferlinu.
Íris segir mikið líf vera í skólanum
sem er opinn allan sólarhringinn.
Þar er hún dugleg að nýta aðstöð-
una og æfa sig af kappi. Nokkrir
aðrir Íslendingar sækja skólann en
Íris segir krakkana vera duglega að
hittast og læra saman. Þegar hún er
spurð út í námið þá segist hún hafa
lært mikið á stuttum tíma, en hún
hélt til Bandaríkjanna síðasta haust.
„Kennararnir eru rosalega klárir
og krakkarnir mjög skemmtilegir.“
Það er ekki allt dans á rósum í
borginni en skóli Írisar er staðsettur
við Hollywood boulevard þar sem
mikið af heimilislausu fólki heldur
Viðtal: Eyþór Sæmundsson • Myndir úr einkasafni.
Íris lifir sig inn í sönginn en hér er hún ásamt Kristjóni Frey
Hjaltested Suðurnesjamanni sem einnig stundar nám í L.A
Íris og
kærastinn
skelltu sér
til Las Vegas
í frí
Íris ásamt föður sínum
Einari Jónssyni
Það er aldrei langt í strönd-
ina eða næstu sundlaug