Víkurfréttir - 24.04.2013, Page 18
miðvikudagurinn 24. apríl 2013 • VÍKURFRÉTTIR18
Alþingiskosningar fara fram laugardaginn 27. apríl nk.
Kosið er í Grunnskólanum í Sandgerði. Kjörfundur hefst kl. 9.00 og lýkur kl. 22.00.
Kjósendur eru minntir á að hafa meðferðis persónuskilríki
og hvattir til að koma snemma á kjörstað til að forðast biðraðir.
Á kjördag mun kjörstjórn hafa aðsetur í Grunnskólanum í Sandgerði og í síma 899-6317
Kjörstjórn Sandgerðisbæjar
ALÞINGISKOSNINGAR
Laugardaginn 27. apríl 2013.
ATVINNA
Óskum eftir að ráða starfsfólk í starfstöð okkar við Leifsstöð.
Um er að ræða afgreiðslu á bílaleigubílum, starð felst að
stærstum hluta í að þjónusta erlenda ferðamenn.
Viðkomandi skal vera a.m.k. 23 ára, hörkuduglegur með
ríka þjónustulund, eiga gott með mannleg samskipti,
stundvís, samviskusamur og reglusamur.
Viljum ráða í framtíðar- og sumarstörf.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Umsóknir sendist á atak@atak.is fyrir 1. maí
Stór-tónleikar í Andrews leikhúsi á Ásbrú
í Reykjanesbæ, laugardaginn 27. apríl kl.19.30
Aðgöngumiðar seldir á midi.is
Miðaverð aðeins kr. 2000
Skólastjóri
LÚÐRASVEIT TÓNLISTARSKÓLA
REYKJANESBÆJAR
OG HLJÓMSVEITIN VALDIMAR
Heimaræktað grænmeti og kryddjurtir
Nú er vorið á næsta leiti og einmitt um þetta leyti
byrja ég að sá fræjum fyrir
grænmeti og kryddjurtum sem
ég rækta ásamt tengda-
foreldrum mínum í
grænmetisgarðinum
okkar hvert sumar.
Mig langar að gefa
ykkur nokkur gagnleg
ráð til að einfalda rækt-
unina fyrir ykkur til að
koma ykkur af stað. Að
rækta sitt eigið græn-
meti er svo gefandi og
skemmtilegt fyrir utan
hvað það bragðast
miklu betur, er nær-
ingaríkara, fínasta úti-
vera og auðvitað gott
fyrir heilsuna! Garðyrkja er í raun andleg
þerapía en maður nær að hreinsa hugann og
komast í meiri tengingu við náttúruna með
því að gramsa í moldinni og hlúa að plönt-
unum. Þetta er eitthvað sem allir geta gert
eins lengi og þið eruð með gluggakistu sem
snýr í suður, nokkra litla potta, mold, fræ
og vatn. Þegar ég rækta kryddjurtir þá er
ég yfirleitt með þær í glugganum í eldhús-
inu til að hafa þær tiltækar í matreiðsluna
og þær sem verða yfirleitt fyrir valinu og
sem ég nota mest af eru basilíka, steinselja,
kóríander og mynta. Grænmetið rækta ég
hins vegar í stórum grænmetisgarði og þær
tegundir sem ég rækta eru kartöflur, gul-
rætur, radísur, hnúðkál, rauðkál, brokkolí,
rauðrófur, klettasalat, spínat, lollo rosso
salat, romaine salat, mizuna salat, grænkál
og fleiri tegundir af litríku salati. Ég byrja
á að forrækta fræin í gróðurhúsi en það
er vel hægt að gera það heima hjá sér líka.
Hér koma nokkur góð ráð sem vonandi
gagnast ykkur þegar þið ætlið
að fara að sá fræjum og byrja
ræktunina.
Passa að nota ekki of gömul fræ.
Þvo bakka og potta fyrir notkun.
Sáningartíminn er í kringum
mars-apríl.
Nota litla ca 12 cm djúpa bakka
með götum í botni og fylla af
mold.
Strá 3-5 stk af fræjum ofan á mold-
ina og setja glært plast yfir til að
viðhalda raka. Gott að opna öðru
hvoru til að láta lofta um. Plast
tekið af þegar byrjar að spíra.
Hafa plöntur sem byrjaðar eru að
spíra á mjög björtum og hlýjum
stað (hitastig ca 18-22°C).
Nota úðabrúsa til að vökva og
reyna halda góðum raka í moldinni.
Þegar 3-4 laufblöð hafa myndast er gott að fara
gefa fljótandi áburð eins og Maxicrop, hafa vel
útþynntan til að byrja með.
Fara varlega með plönturnar þegar maður
umpottar þeim yfir í stærri potta.
Plönturnar settur út í garð eða potta þegar
orðnar hæfilega stórar og harðgerðar og þá
yfirleitt breiddur akríldúkur yfir eða plast til
að mynda hita og sem vörn gegn kálflugunni.
Sjálf setjum við plönturnar okkur út í garð í
byrjun júní.
Það er líka hægt að kaupa forræktaðar plöntur
á gróðrastöðum sem hægt er að setja beint út
í stóra potta og hafa úti á palli, garðinum eða
á svölum.
Gangi ykkur vel!
Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir.
www.facebook.com/grasalaeknir.is
www.pinterest.com/grasalaeknir
Ásdís
grasalæknir
skrifar
heIlsUhoRnIð
Sumarferð 2013
Sumarferð Félags eldri borgara á Suðurnesjum 2013
Ævintýraferð á Snæfellsnes verður farin 28. - 30. maí 2013 kl. 08:30 frá SBK,
stoppað á Nesvöllum, Grindavíkur og Voga hringtorgum.
Farið um Snæfellsnes, Arnastapa, Hellna, fyrir Jökul, Hellisand, Rif, Ólafsvík,
Grundarfjörð, Bjarnarhöfn, Stykkishólm, söfn og sigling.
Innifalið: Rútan, gisting 2 nætur, morgun- hádegis-
og kvöldverðir, kaffi og söfn.
Gist í Grundarfirði á Hótel Framnesi.
Gisting í 2 manna herbergi kr. 35.000.- á mann og 39.000.- með siglingu
Gisting f/einn í herbergi kr. 38.500.- og 42.500.- með siglingu
Gisting í 3 manna herbergi kr. 32.500.- og 36.500.- með siglingu
Skráning hjá SBK í síma 420 6000.
Ferðin greidd við skráningu fyrir 15. maí nk.
ATH! Siglingu þarf að panta sérstaklega,
Ferðanefnd FEB
Félagar í Keflavík, Íþrótta- og ungmennafélagi ætla að taka
til í nærumhverfi sínu á kosninga-
daginn, nk. laugardag og halda þá
sérstakan umhverfisdag.
Umhverfisdagur Keflvík-
inga á kosningadaginn
„Það er okkar markmið að vel
sé gengið um keppnissvæði og
nærumhverfi félagsins, þau séu
snyrtileg og okkur til sóma. Viljum
við því sýna gott fordæmi með því
að efna til umhverfisdags innan
félagsins þar sem stjórnarmönnum
og öðrum félagsmönnum gefst
kostur á að koma og leggja sitt
af mörkum. Viljum einnig beina
þeim tilmælum til okkar stuðn-
ingsmanna og annarra sem koma
og styðja við bakið á iðkendum
um að ganga ætíð vel um íþrótta-
svæðin „Hreint land fagurt land“,
sagði Einar Haraldsson, formaður
Keflavíkur.
Deildar félagsins skipta á milli
sín svæðum og taka til í kringum
sitt „starfssvæði“, húsakynni eða
íþróttasvæði. Dagskráin stendur á
milli kl. 10 og 12 og er endað með
grillveislu kl. 12 þar sem boðið
verður upp á hamborgara að hætti
formannsins.