Víkurfréttir - 24.04.2013, Qupperneq 20
miðvikudagurinn 24. apríl 2013 • VÍKURFRÉTTIR20
KJÖRFUNDUR Í GRINDAVÍK
VEGNA ALÞINGISKOSNINGA
2013
Alþingiskosningar fara fram laugardaginn 27. apríl 2013.
Kjörskrá liggur frammi til sýnis á bæjarskrifstofum Grindavíkurbæjar,
Víkurbraut 62 2. hæð, fram að kjördegi. Kjósendur eru hvattir til þess að
kynna sér hvort þeir séu á kjörskrá. Athugasemdum við kjörskrá skal beint til
bæjarstjórnar Grindavíkurbæjar.
Kosið er í Grunnskóla Grindavíkur, Ásabraut 2.
Kjörstaður opnar kl. 09:00 og lokar kl. 22:00.
Sérstök athygli er vakin á því að kjósandi sem ekki hefur meðferðis
persónuskilríki getur átt von á að fá ekki að greiða atkvæði.
Kjörstjórn Grindavíkurbæjar
FYRIR FÓLKIÐ Í LANDINU
ARNDÍS SOFFÍA SIGURÐARDÓTTIR
1. SÆTI SUÐURKJÖRDÆMI
HEIÐARLEG
STJÓRNMÁL
Kosningaskrifstofa Vinstri grænna á Suðurnesjum
er í Nýja Bakaríinu Hafnargötu 31.
Opið virka daga frá klukkan 10-21.
Kjördagur 27. apríl 2013
Kosningakaffi frá klukkan 10-22.
Beðið eftir fyrstu tölum úr kjördæminu og rætt um
pólitíkina fram eftir nóttu.
Þeir sem óska eftir að fá akstur á kjörstað hafi samband
við Agnar - 846 1220, eða Þormóð - 822 5465.
Bestu þakkir fyrir spjallið
og stuðninginn undanfarnar vikur.
Nú er þitt tækifæri komið!
• Besta tækifærið til að rétta hlut heimila á
Suðurnesjum í skuldamálum, heilbrigðismálum og
atvinnumálum er að kröftugur heimamaður,
Ragnheiður Elín, verði ráðherra í næstu ríkisstjórn.
• Til að gulltryggja það þarf XD að verða með
1. þingmann kjördæmisins. Það gerist aðeins ef XD fær flest atkvæði í Suðurkjördæmi.
• Við biðjum þig að standa með okkur í baráttunni
og merkja X við D á laugardaginn.
Árni, Gunnar, Böðvar, Magnea, Björk, Einar og Baldur,
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ
Ölvaðar konur á reiðhjólum
Lögreglunni á Suðurnesjum barst í vikunni sem leið til-
kynning þess efnis að tvær kon-
ur virtust vera ölvaðar á ferð-
inni á reiðhjólum sínum í um-
dæminu. Ættu þær erfitt með að
hjóla og sýndust annað slagið
vera að detta.
Þegar lögreglumenn fundu konurnar reyndust þær vera af erlendu
bergi brotnar og því ekki alveg með á nótunum um hvað væri leyfilegt
í umferðinni hér á landi og hvað ekki. Höfðu þær, þegar þarna var
komið sögu, verið búnar að gefast upp á jafnvægiskúnstum sínum og
leiddu reiðhjólin. Því þótti ekki ástæða til að hafa frekari afskipti af
þeim.