Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.04.2013, Qupperneq 28

Víkurfréttir - 24.04.2013, Qupperneq 28
miðvikudagurinn 24. apríl 2013 • VÍKURFRÉTTIR28 Draumurinn að hanna og sauma eigin fatalínu GaRðmæR Í FaTaIðn Garðmærin Ásta Guðný RaGnaRsdóttiR hefur verið að gera það gott í tækniskólanum í Reykja- vík þar sem hún stundar nám í kjólasaum. Hún er á Fataiðnbraut á sinni sjöttu önn en hún var áður á listnámsbraut í Fjölbrautaskóla suðurnesja en áhug- inn á saumaskapnum vaknaði þar. „Ég fór í nokkra saumaáfanga hjá Katrínu sigurðardóttur og endur- vakti það áhuga minn á að sauma. Ég fann það að ég vildi læra meira og Katrín sagði okkur að ef við vildum læra meira þá væri tækniskólinn rétti skólinn til þess,“ segir Ásta Guðný. Hún hefur tekið þátt í nokkrum sýningum nemenda og hefur hönnun hennar verið vel tekið. Hún hefur sýnt hönnun sína á sýningunni unglist haustið 2012 og einnig kom hún að sýningunni Fashion with flavor. Námið er nokkuð fjölbreytt og m.a. þess sem fengist er við í náminu eru: Korselett, pils, kjólar, buxur á bæði kynin, herravesti og jakkaföt. Ásta segir mikla hugmyndavinnu liggja að baki hverri flík og að það sé krefjandi og skemmtilegt. Sam- tals er námið átta annir en þar af er ein önn í starfsnámi. Eftir fyrstu fjórar annirnar útskrifast nemendur sem fatatæknar en að loknum sex önnum þarf að ákveða hvort nem- endur fari í kjólasaum eða klæð- skurð. Í náminu eru m.a. kennd sníðagerð í tölvu, stærðabreytingar á sniðum, tískuteikningar og margt fleira. Nú er Ásta að læra um kúnnasaum. „Við fáum manneskju til okkar í máltöku, hún kemur með hugmynd að flík og síðan fer hugmyndavinna okkar af stað. Við búum til sniðið og útfærslur til að reyna að fá fram það útlit sem kúnninn kýs. Síðan saumum við prufuflík og mátum á kúnnann og svo sjáum við hvort það þarf að lagfæra eitthvað,“ segir Ásta um vinnuferlið. Erfitt að vera ung tveggja barna móðir í krefjandi námi Ásta sem er 24 ára tveggja barna móðir segir miklvægt að fá stuðn- ing að heiman enda sé námið fremur strembið. „Ég á frábæran mann sem hvatti mig til þess að fara af stað í þetta nám,“ segir Ásta sem viðurkennir að námið taki mikinn Ásta Guðný Hér sýnir Ásta eina af flíkum sínum Aðstaðan í skólanum er til fyrirmyndar að sögn Ástu Ásta ásamt Fannari Loga og Árna Ragnari sonum sínum

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.