Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.09.2010, Blaðsíða 10

Neytendablaðið - 01.09.2010, Blaðsíða 10
Tollar á ostum Innfluttir ostar bera háa tolla, eða 30%, auk þess sem lagt er 430 – 500 kr. gjald á hvert kíló. Það þarf því ekki að koma á óvart að úrvalið af innfluttum ostum er afar lítið. Samkvæmt tvíhliða samningi við Evrópusambandið er heimilt að flytja inn allt að 100 tonn af ostum frá löndum sambandsins án tolla. Þessi kvóti er hins vegar boðinn út og því bætist útboðskostnaður við innkaupsverðið. Neytendasamtökin hafa gagnrýnt þessa leið og lagt til að kvótanum verði úthlutað samkvæmt hlutkesti. Tollasamningar gilda ekki á Íslandi Samkvæmt samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar skal hvert aðildarland heimila innflutning á 3 – 5% af innanlandsneyslu, í þeim tilgangi að tryggja ákveðinn lágmarksaðgang erlendra landbúnaðarafurða á lægri tollum en ella gilda. Til skamms tíma voru þessir lægri tollar miðaðir við ákveðna krónutölu sem lagðist á hvert kíló við innflutning og var um tiltölulega lága upphæð að ræða. Með reglugerð landbúnaðarráðherra frá árinu 2009 var tollum á smjöri og ostum breytt úr krónutölu í prósentu (úr magn­ tollum í verðtolla) og eru tollarnir nú 182%­193% á ostum og 216% á smjöri. Innflutningur útilokaður Samtök verslunar og þjónustu sendu nýlega erindi til umboðsmanns Alþingis og kvörtuðu yfir þessari breytingu. Andrés Magnússon framkvæmdarstjóri Samtaka verslunar og þjónustu sagði í samtali við Neytendablaðið að þessi breyting á tollum auk óhagstæðrar gengisþróunar hefði leitt til þess að innflutningur á grundvelli tollkvóta væri í raun útilokaður. Innfluttar vörur gætu einfaldlega ekki keppt við þær innlendu í verði. Tollar á kjöti Innflutt kjöt ber háa tolla en þó er munur á þeim eftir því hvort kjötið kemur frá löndum innan Evrópusambandsins eða utan. Þannig er 18% tollur á innfluttum kjúklingabringum sem fram­ leiddar eru í ESB­löndum, auk 540 króna magntolls á hvert kíló, en ef kjúklingabringurnar koma lengra að er tollurinn 30% og magn­ tollurinn 900 krónur. Nautalund innflutt frá ESB­landi ber 18% toll auk 877 króna magntolls en komi hún frá landi utan ESB er toll urinn 30% og magntollurinn 1.462 krónur. Það sama gildir um svínakjöt en svínalund frá ESB ber 18% toll auk 717 króna magn­ tolls en annars 30% toll og 1.195 króna magntoll. Samkvæmt tvíhliða samningi við Evrópusambandið er heimilt að flytja inn allt að 100 tonn af nautakjöti, 200 tonn af svínakjöti og 200 tonn af alifuglakjöti án tolla. Rétt eins og með ostana er þessi kvóti boðinn út hér á landi og bætist því útboðskostnaður við inn kaups verðið. Tollar á innfluttum landbúnaðarvörum Háir tollar eru lagðir á flestar innfluttar landbúnaðarvörur og er það hluti af verndarstefnu íslenskra stjórnvalda. Þessi verndarstefna skerðir valfrelsi neytenda og ekki verður séð að rök eins og matvælaöryggi réttlæti á nokkurn hátt himinháa tolla á vörum eins og ostum, m.a. ostategundum sem eru ekki framleiddar hér á landi. Það er ekki nema fyrir þá efnameiri að kaupa parmesanost því auk 30% tolls er magn tollur fyrir hvert kíló 430 krónur. 10 NEYTENDABLA‹I‹ 3. TBL. 2010

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.