Neytendablaðið - 01.06.2010, Síða 3
Frá leiðbeininga-
og kvörtunarfljónustunni
Flughremmingar
Seinagangur kostaði nýja flugmiða
Ungt par leitaði aðstoðar leiðbeininga og kvörtunarþjónust
unnar eftir að hafa lent í hremmingum á flugvelli í Amsterdam
þegar þau misstu af flugvél, en parið átti pantað far frá Amst
erdam til Keflavíkur. Sökum mistaka þeirra sjálfra mættu þau
mjög seint að hliðinu eða 5 mínútum fyrir brottför. Þegar þau
komu loks að hliðinu mættu þau dónaskap frá starfsmanni
sem þar var og sama hvað þau reyndu að útskýra mál sitt
fengu þau ekki að fara um borð í vélina.
Því næst leituðu þau upplýsinga og aðstoðar, hvernig þau
ættu að snúa sér í stöðunni, en enga hjálp var að fá, og
enginn virt ist tilbúinn að aðstoða þau við að komast heim.
Að svo búnu ákváðu þau að hringja heim í foreldra sína til
að leita hjálp ar. Þeir hringdu í flugfélagið, Icelandair, til að
leita upp lýs inga um hvað hægt væri að gera og var svarið
að ekkert væri hægt að gera nema kaupa nýja flugmiða.
Því varð úr að þau keyptu nýja flugmiða heim með tveimur
flugfélögum fyrir um 150.000 krónur. Flogið var í gegnum
Kaupmannahöfn og var hlut ur Icelandair um 76.000. Fólkinu
var aldrei bent á að hægt væri að breyta flugmiðunum gegn
breytingargjaldi sem er mun lægra en verð nýs flugmiða.
Eftir heimkomu sendi parið bréf til flugfélagsins þar sem þau
lýstu hremm ingum sínum og þeirri slöku þjónustu sem þau
fengu. Því bréfi var ekki svarað fyrr en þremur mánuðum
seinna og var þá sagt að þau fengju aðeins flugvalla skatta
þess flugs sem þau misstu af, endurgreidda.
Eftir að kvörtunarþjónusta Neytendasamtakanna hafði haft
milli göngu í málinu samþykkti flugfélagið, í ljósi kringum
stæðna, að endur greiða parinu um 50.000 krónur sem var
hlut ur þess í nýja fluginu frá Kaupmannahöfn til Keflavíkur,
að frá töldu breytingargjaldi.
Síminn hættir með breiðbandið
Um þessar mundir er verið að breyta breiðbandi Símans í ljósnet og
áætlað er að framkvæmdin taki 23 ár. Um það bil 40.000 heim ili
nota breiðband Símans og sum þeirra nota það til móttöku á hlið
rænni útsendingu á RÚV. Síminn mun senda bréf til allra heimila
u.þ.b. 4 vikum áður en umtenging fer fram og í kjölfar þess munu
þjónustufulltrúar hringja á öll heimili og kynna betur þá möguleika
sem eru í boði. Breyting úr breiðbandi í ljósnet verður kostnaðarsöm
fyrir fólk og getur hlaupið á tugum þúsunda króna hjá mörgum
heim ilum. Það er þó ekkert í lögum sem bannar Símanum að taka
breið bandið af markaði og verða þeir sem það nota því miður að
bera þau óþægindi og þann kostnað sem af þess ari breytingu hlýst.
Gölluð skíði
Maður keypti skíði í verslun á Íslandi í janúar 2008. Eftir stutta
notk un tók hann eftir sprungu fremst á öðru skíðinu og kvartaði
við verslunina. Í kjölfarið fékk maðurinn ný, dýrari skíði og greiddi
verðmismuninn. Í mars sama ár tók maðurinn svo eftir því að
sprunga var komin á nýju skíðin á nákvæmlega sama stað og á
fyrri skíðunum og hafði hann því aftur samband við verslunina. Þá
var honum boðið að skíðin yrðu send út til framleiðanda til skoð
unar um leið og skíðavertíðinni lyki þá um vorið. Í september 2008
ætlaði maðurinn að sækja skíðin í verslunina en þá kom í ljós að
þau höfðu aldrei verið send út. Manninum samdist þá við seljanda
um að skíðin yrðu tekin til baka og að hann myndi kaupa enn
dýrari skíði og greiða verðmismuninn. Á þessu stigi málsins hafði
maðurinn greitt alls kr. 142.000 fyrir skíðin. Eftir að hafa notað
þriðju skíðin í u.þ.b. 10 skipti, eða í janúar 2009, var enn og aftur
komin sprunga í annað skíðið. Maðurinn fór því strax í verslunina
og samdist honum og seljanda um að hann gæti notað skíðin út
tíma bilið en kæmi með þau að því loknu og nú yrðu skíðin send
út til skoðunar. Í september 2009 kom maðurinn til að sækja
skíð in sín en selj andinn hafði þá ekki sent þau út eins og hann
hafði lofað. Hins vegar hefðu starfsmenn frá framleiðanda komið
í heim sókn um sumar ið og kíkt á skíðin í leiðinni og þeir hefðu
ekki getað séð að um galla væri að ræða. Seljandinn neitaði því að
gera nokkuð frekar í málinu. Í kjölfarið ákvað maðurinn að leita
til Evr ópsku neytenda aðstoðarinnar með mál sitt. Aðstoðin hafði
sam band við fram leiðanda skíðanna sem bauð strax endurgreiðslu
á allri upp hæðinni eða skíði að eigin vali án festinga. Neytandinn
valdi endur greiðsluna sem hann fékk svo greidda nokkru síðar.
3 NEYTENDABLA‹I‹ 2. TBL. 2010