Neytendablaðið - 01.06.2010, Blaðsíða 22
Það eru tveir áratugir síðan hollustumerkið skráargatið var sett
á fót í Svíþjóð. Skráargatið hefur reynst svo vel þar að Danmörk
og Noregur ákváðu að taka það upp og í dag er merkið orðið
nokkurs konar samnorrænt merki. Ísland tók því miður ekki þátt
í þessu samstarfi.
Hvað merkir skráargatið?
Merkið er trygging neytenda fyrir því að ákveðin matvara er
sú hollasta í hverjum flokki og til að fá merkið verður varan að
uppfylla ákveðin skilyrði varðandi magn sykurs, salts, fitu og trefja.
Matvæli sem innihalda hátt hlutfall
fitu, sykurs eða salts, eins og kex
og sælgæti, geta því ekki fengið
merkið.
Áhugaleysi stjórnvalda
Neytendasamtökin undrast mjög
aðgerðaleysi íslenskra stjórnvalda
í þessu máli enda hljóta þau að
vilja leggja sitt að mörkum til að
auð velda fólki að velja hollan mat.
Þetta aðgerðaleysi er ekki síður
áhugavert í ljósi þess að árið 2005
skipaði þáverandi forsætis ráðherra
faghóp sem var falið að vinna
tillögur að að gerð um til að efla lýðheilsu á Íslandi með hollara
mataræði og auk inni hreyfingu. Eitt af því sem hópurinn mælti
með var einmitt inn leiðing hollustu merkisins skráargatsins. Ekkert
var þó gert með þessar tillögur.
Framleiðendur neikvæðir
Samtök íslenskra framleiðenda og smásöluaðila hafa verið
nei kvæð ir gagnvart merkinu sem er athyglisvert því þeir sem fram
leiða hollar matvörur ættu að hafa hag af því að auglýsa það.
Fram leið endur á hinum Norðurlöndunum sjá mikil sóknarfæri
og í Danmörku fást nú um 500 matvæli með skráargatsmerkinu.
Þekk ing Dana á merkinu hefur aukist jafnt og þétt og samkvæmt
nýj ustu könnun dönsku matvælastofnunarinnar þekkja 83% Dana
merk ið þótt ekki sé nema rúmt ár síðan það var innleitt þar í landi.
Ráðherra hvattur til dáða
Neytendasamtökin sendu þáverandi sjávarútvegs og landbúnaðar
ráðherra, Einari K. Guðfinnsyni, erindi í marsmánuði 2008 og hvöttu
til þess að Ísland yrði þátttakandi í þessu samnorræna samstarfi.
Ekki varð þó af því. Í mars á þessu ári sendu Neytendasamtökin svo
erindi til Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra
og ítrek uðu kröfu sína um að skráargatið yrði tekið upp hér á landi.
Það er von Neytendasamtakanna að skráargatið verði tekið upp hið
fyrsta á Íslandi.
Skráargatið slær í gegn
– Ísland ekki með
Ný olía best
Því nýrri sem ólífuolía er því betri er hún og almennt er ekki talið
að ólífuolía hafi lengri endingartíma en tvö ár. Framleiðendur þurfa
ekki að upplýsa um framleiðslu eða öllu heldur átöppunardag
en þeim ber að merkja olíur með „best fyrir dagsetningu“. Flestar
olíur geymast vel í eitt og hálft til tvö ár ef þær eru geymdar á
köldum og dimmum stað en verstu óvinir ólífuolíunnar eru birta,
hiti og snerting við loft. Þar sem fæstir framleiðendur gefa upp
hve nær olíunni er tappað á verða neytendur að treysta á „best fyrir“
merkinguna. Það er þó mismunandi hvað framleiðendur telja að
olían haldi sér lengi. Sérfræðingar Tænk tala um 18 mánuði en
dæmi var um að framleiðandi reiknaði með þriggja ára endingar
tíma frá átöppun.
Hvaðan kemur ólífuolían?
Ólífuræktun er stór búgrein í Evrópusambandinu, sérstaklega
í sunn an verðri Evrópu. Ítalía er þekkt fyrir mikla ólífuræktun en
Spán verjar eru þó mun afkastameiri. Þeir framleiða næstum tvöfalt
meira af ólífuolíu en Ítalir og eru mestu framleiðendur ólífuolíu í
heimi. Ítalir hafa þó verið hvað slyngastir við að markaðssetja
fram leiðslu sína og það vill stundum gleymast að það eru einnig
fram leiddar gæðaolíur á Spáni og í Grikklandi og Frakklandi. Þá
láta önnur lönd og svæði að sér kveða á ólífuolíumarkaðinum, svo
sem Ástralía, SuðurAfríka, Nýja Sjáland og Kaliforníuríki í Banda
ríkjunum. Í Marokkó, Túnis og Sýrlandi er einnig mikil ólífu ræktun
en mest af ræktuninni er flutt út til Evrópulanda. Ítalskir fram leið
endur hafa hagnast á því að flytja inn ódýrar ólífur, pressa þær
og setja á flöskur með ítölskum merkingum. Í fyrra var samþykkt
lög gjöf í Evrópusambandinu sem hefur það markmið að koma í veg
fyrir svindl af þessu tagi. Samkvæmt þessum lögum verður skylt
að upp lýsa um upprunaland. Hins vegar er gagnrýnt að það sé nóg
að segja að upprunaland sé innan Evrópusambandsins án þess að
til greina landið nánar.
Í könnun Tænk komu við sögu nokkrar tegundir ólífuolíu sem litu
út fyrir að vera ítalskar við fyrstu sýn, enda tappað á á Ítalíu, en
þeg ar betur var að gáð kom í ljós að uppruni ólífanna var ótilgreint
land innan Evrópusambandsins.
Heimild: Tænk maí 2010
Ólífuolía undir smásjánni
-því nýrri því betri
Danska neytendablaðið Tænk kannaði nýlega bragðgæðin á jómfrúarolíu, eða „extra virgin“ olíu, og fékk sérfræðinga til að meta þau.
Reyndust fjórar af 15 olíum ekki nógu bragðgóðar til að standa undir nafni. Sýni voru einnig send á rannsóknarstofu til að kanna
hvort olíurnar hefðu verið drýgðar með ódýrari jurtaolíu en svo reyndist ekki vera.
Áratuga löng reynsla Svía af skrá-
ar gatinu bendir ein dreg ið til þess
neyt endur kunni að meta þau
ein földu skila boð sem það sendir.
22 NEYTENDABLA‹I‹ 2. TBL. 2010