Neytendablaðið - 01.06.2009, Side 10
Matvælaeftirlit gert sýnilegt
Þegar hinn litríki stjórnmálamaður Ritt Bjerregaard gegndi stöðu
matvælaráðherra á tímabilinu 20002001 átti hún frumkvæði að
því að innleiða hið svo kallaða broskarlakerfi eða „Smiley ordning“.
Í stuttu máli gengur kerfið út á að eftirlitsskýrslur heilbrigðisfulltrúa
eru gerðar opinberar. Eftir hverja heimsókn til fyrirtækis sem höndlar
með matvæli (s.s. veitingahús, pylsuvagnar, bakarí, mötuneyti, krár
o.s.frv.) eru skýrslur hengdar upp á áberandi stað þannig að neyt
endur geti kynnt sér niðurstöður heilbrigðisfulltrúanna. Markmiðið
með þessu er að upplýsa neytendur um það hversu vel fyrirtæki,
sem selja og framleiða matvæli, fylgja lögum og reglum og
auðvelda neytendum að taka upplýsta ákvörðun. Opinber birting
upplýsinga gerir það líka að verkum að fyrirtækin eru vakandi og
matvælaöryggið eykst.
Einfalt og skiljanlegt kerfi
Allt kapp var lagt á að kerfið væri sem einfaldast þannig að neyt
endur ættu ekki að vera í nokkrum vandræðum með að skilja
skilaboðin. Skýrslurnar eru auðskiljanlegar og allir skilja muninn
á broskarli með breitt bros og samsvarandi karli með skeifu. Eftir
hverja úttekt er skýrsla heilbrigðiseftirlitsins hengd upp á áberandi
stað, svo sem í glugga eða við inngang. Á heimasíðunni findsmiley.
dk er hægt að slá upp matsölustöðum á netinu og skoða niðurstöður
heilbrigðisfulltrúa úr öllum eftirlitsferðum. Allt eftirlit er uppi á
borði, engu er leynt.
Fyrirtækin mótfallin
Knud Arne Nielsen er fagsviðsstjóri hjá dönsku matvælastofnun
inni og hefur tekið þátt í innleiðingu broskarlakerfisins allt frá
upphafi. Neytendablaðið hitti hann að máli til að fræðast betur
um þetta áhugaverða framtak. Knud Arne segir að flest fyrirtæki
hafi verið mjög mótfallin innleiðingu broskarlakerfisins í upphafi
og fundið því flest til foráttu. Heilbrigðisfulltrúar voru einnig fullir
efasemda og töldu ekki ráðlegt að opinbera skýrslur eins og lagt var
til. Hagsmunir neytenda urðu þó ofan á og kerfið var innleitt þrátt
fyrir óánægjuraddir.
Viðhorfin breytast
Danska matvælastofnunin hefur fylgst
með viðhorfi neytenda og fyrirtækja
síðan kerfið var innleitt. Samkvæmt
síðustu könnun, sem gerð var 2007, eru
fyrirtækin orðin mun jákvæðari. Þannig
töldu 88% fyrirtækja að það væri góð
hugmynd að opinbera niðurstöðu
heilbrigðisfulltrúa. Athyglisvert er að
Smiley slær í gegn
Eftirlit með matsölustöðum gert opinbert í Danmörku –
neytendur eiga rétt á að vita hvernig fyrirtækin standa sig
Athugulir íslenskir ferðalangar hafa e.t.v. rekið augun í skýrslur heilbrigðis
fulltrúa á matsölustöðum í Danmörku. Það er ekki lengur einkamál veitinga
manna hvað fer fram í eldhúsinu því niðurstöður heilbrigðiseftirlitsins eru nú
gerðar opinberar.
Gefnar eru fjórar tegundir af broskörlum og ef fyrirtæki hefur fjórum sinnum hlotið besta „smiley“ fær hann „elite smiley“ eða úrvalsbroskarl.
Knud Arne Nielsen starfar hjá Fødevarestyrelsen
eða dönsku matvælastofnuninni. Hann hefur
unnið við innleiðingu broskarlakerfisins frá
upphafi.
10 NEYTENDABLA‹I‹ 2. TBL. 2009