Neytendablaðið - 01.06.2009, Qupperneq 13
Jóhannes Gunnarsson
forma›ur Neytendasamtakanna
Neytendasamtökin sendu nýrri ríkisstjórn og stjórnmálaflokkum
sem eiga fulltrúa á Alþingi yfirlit yfir nauðsynlegar aðgerðir í
neytendamálum. Það er von okkar að ríkisstjórnin, sem og raunar
alþingismenn allir, sé reiðubúin að vinna að þeim fjölmörgu málum
sem þar koma fram. Hér verður tæpt á nokkrum þessara mála en
áhugasömum er bent á heimasíðu samtakanna til að kynna sér
þetta frekar.
Húsnæðisskuldir heimilanna
Að mati Neytendasamtakanna er ekki sanngjarnt að afleiðingar
bankakreppunnar komi af fullum þunga niður á almennum
lántakendum, enda er meginvandi fjölda þeirra of há greiðslubyrði
lána. Tryggja þarf að neytendur geti nýtt sér leiðir sem stjórnvöld
hafa opnað til að einfalda lántakendum að standa í skilum. Neyt
endasamtökin eru ekki fylgjandi almennri niðurfærslu skulda. Það
er þó ljóst að koma verður til móts við þau heimili sem eiga í veru
legum fjárhagserfiðleikum vegna eðlilegra húsnæðislána en úrræði
stjórnvalda ná ekki til. Skoða ber allar færar leiðir í þessu sambandi,
þar á meðal að stórauka vaxtabætur.
Aðildarviðræður við ESB hefjist strax
Neytendasamtökin leggja áherslu á að þegar verði gengið til aðildar
viðræðna við ESB. Ljóst er að hagsmunir heimilanna í þessu máli
eru það miklir að ekki er ástæða til að bíða lengur með að láta á það
reyna með aðildarviðræðum hvort hægt er að ná viðunandi niður
stöðu í sjávarútvegs og landbúnaðarmálum. Með aðild lækkar
vöruverð, sérstaklega á matvörum, og með upptöku evrunnar lækka
vextir og stöðugleiki kemst á í gjaldeyris og verðlagsmálum. Þá
heyrir verðtryggingin einnig sögunni til með upptöku evru.
Lagalegar umbætur
Neytendasamtökin telja afar mikilvægt að sett verði sem fyrst lög
um hópmálsókn, eins og gert hefur verið í ýmsum Evrópulöndum.
Einnig að sett verði lög um fjármálasamninga þannig að staða neyt
enda í banka og fjármálaviðskiptum verði ekki lakari en best gerist
á öðrum Norðurlöndum. Loks leggja samtökin áherslu á að lögum
um greiðsluaðlögun verði breytt þannig að einyrkjar í atvinnurekstri
geti sótt um greiðsluaðlögun vegna skulda viðkomandi heimilis án
þess að þurfa að hætta með atvinnurekstur sinn.
Úrskurðarnefndir
Neytendasamtökin leggja því mikla áherslu á að þegar verði komið
á fót úrskurðarnefndum á sviði fjarskipta og fasteignaviðskipta.
Tilvist úrskurðarnefnda hefur reynst gríðarlega mikilvæg fyrir neyt
endur.
Matvæli
Ísland er eina landið í Evrópu þar sem ekki hafa verið sett lög um
merkingar á erfðabreyttum matvælum. Neytendasamtökin hafa
ítrekað krafist þess að settar verði reglur um merkingar og rekjan
leika erfðabreyttra matvæla og fóðurs. Einnig er lögð áhersla á
að stjórnvöld beiti sér fyrir því að íslenskir framleiðendur hætti að
nota asólitarefni í matvæli enda hafa nýlegar rannsóknir sýnt að
samhengi er á milli neyslu efnanna og ýmiss konar hegðunarvanda
barna. Þá er kallað eftir því að sett verði lög um hámarksmagn
transfitusýra í matvælum en mikil neysla transfitu er talin auka
líkur á ýmsum sjúkdómum. Loks má nefna að stjórnvöld eru hvött
til að taka upp hollustumerkið skráargatið í samvinnu við Dani,
Norðmenn og Svía.
Samkeppnismál
Öflugt samkeppniseftirlit gegnir lykilhlutverki við að tryggja virka
samkeppni á markaði. Það er því mikilvægt að við endurupp
byggingu íslenskra fyrirtækja verði leitað allra leiða til að tryggja
samkeppni. Einnig er mikilvægt að settar verði reiknivélar á netið
til að auðvelda verðsamanburð og til að tryggja gagnsæi og auka
samkeppni. Sérstaklega er þetta mikilvægt á mörkuðum þar sem
neytendur skortir yfirsýn um kostnað, ekki síst á sviði fjarskipta,
trygginga og bankaþjónustu. Slíkar reiknivélar eru grundvöllur þess
að neytendur geti gert verðsamanburð á þessum mörkuðum. Loks
er minnt á að verslun um internetið veitir seljendum innanlands
mikilvægt aðhald á samkeppnismarkaði og því er brýnt að auðvelda
neytendum hér á landi viðskipti í netverslun. Töku opinberra gjalda
og umsýslukostnaði verður því að halda í lágmarki og gjaldtaka
verður að vera gagnsærri.
Áherslur Neytendasamtakanna
í neytendamálum
1 NEYTENDABLA‹I‹ 2. TBL. 2009