Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.06.2009, Síða 15

Neytendablaðið - 01.06.2009, Síða 15
Einn þeirra sem hefur ánetjast hlaupum er Finnur Friðriksson, prófarkalesari Neytendablaðsins, en hann hefur skokkað um árabil. Finnur stefnir á að taka þátt í maraþoni í sumar og æfir nú af kappi. Búnaður Aðspurður segir Finnur skóna vera mikilvægasta búnaðinn en einnig sé gott að vera í sérstökum hlaupasokkum því þeir eru hann­ aðir þannig að núningur verði sem minnstur. Finnur segist helst ekki hlaupa í öðru en þar til gerðum klæðnaði en hann mælir þó með því að fólk komist fyrst að því hvort það endist í hlaupunum áður en dýr klæðnaður er keyptur. Á veturna er síðan um að gera að nota endurskinsmerki. Í apótekum og víðar má t.d. fá fislétt og meðfærileg endurskinsvesti sem henta mjög vel til hlaupa. Kostnaður liggur í skónum Hvað varðar kostnað við hlaupin segir Finnur hann ekki vera mikinn samanborið við margar aðrar íþróttir. „Það eru einna helst hlaupaskórnir sem létta pyngjuna svolítið, en verð á þeim – eins og á flestu öðru − hefur hækkað ansi rösklega síðustu mánuði og nú má reikna með að þurfa að borga um og yfir 20.000 krónur fyrir góða skó. Þeir sem hlaupa bærilega reglulega geta svo gert ráð fyrir því að slíta út einu til tveimur pörum á ári en oftast endist hvert par í um 1000 km. Reyndar er gott að skipta um hlaupaskó á ekki mikið meira en tveggja ára fresti enda þótt fólki hlaupi ekki nema endrum og eins þar sem púðarnir í flestum gerðum hlaupaskóa harðna nokkuð með tímanum og með því dregur úr þeirri höggdempun sem þeir veita. Það er þó rétt að benda á að þótt skórnir séu ekki brúklegir lengur til hlaupa er oft ekkert því til fyrirstöðu að nota þá sem göngu­ og/eða götuskó í dágóða stund í viðbót.“ Umfram þetta segir Finnur hlaupara geta stjórnað því mikið til sjálfir hve mikinn kostnað þeir leggja í hlaupin „Við erum jú ekki háðir því að kaupa okkur inn í líkamsræktarstöðvar eða aðra álíka aðstöðu til að geta stundað okkar íþrótt og það kostar enn sem komið er ekkert að hlaupa hér um götur og stíga.“ Græjur og GPS Finnur segir sérhannaðan hlaupafatnað vissulega nokkuð dýran en þó ekkert dýrari en annan íþróttafatnað og hann endist yfirleitt bæði vel og lengi. „Margir hlauparar hafa svo komið sér upp ýmiss konar græjum, svo sem púlsmælum og GPS­úrum sem mæla t.d. hraða og vegalengdina sem hlaupin er hverju sinni. Þessi tæki eru góð til síns brúks þegar fólk vill fylgjast vel með æfingamagni, framförum o.þ.h. og sjálfur á ég t.a.m. svona GPS­úr sem ég nota nú óspart. Mér áskotnaðist þetta úr hins vegar nýlega og ég hafði fram að því hlaupið án svona töfratækja í um 20 ár án þess að verða var við að það drægi nokkuð úr þeirri ánægju og vellíðan sem hlaupin veita mér. Þessi tæki eru býsna dýr og ástæðulaust að fjárfesta í þeim fyrr en fólk er orðið nokkuð visst um að það muni stunda hlaup reglulega til lengri tíma“. Gæðakönnun á hlaupaskóm verður birt á heimasíðu Neytendasamtakanna fljótlega og er einungis aðgengileg félagsmönnum. Einnig verður aðgengileg markaðskönnun sem Neytendasamtökin gerðu í lok maí en þar má sjá upplýsingar um úrvalið af hlaupaskóm hér á landi, sölustaði og verð. Áhugasömum má líka benda á að á síðunni runnersworld.com, eru reglulega birtar gæðakannanir á nýjum hlaupaskóm. Mikilvægt að eiga góða skó Upplýsingar um skokk má m.a. finna á heimasíðunum hlaup.is og hlaup.com, sem eru íslenskar, á runnersworld. com, sem er heimasíða stórs bandarísks blaðs sem kemur út einu sinni í mánuði, og á marathon.se sem er sænsk hlaupa- síða. Mynd: Lára 1 NEYTENDABLA‹I‹ 2. TBL. 2009

x

Neytendablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.