Víkurfréttir - 16.05.2012, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGURINN 16. MAí 2012 • VÍKURFRÉTTIR
LISTAHÁTÍÐ BARNA Í
REYKJANESBÆ
10.- 24. MAÍ
Samstarfsverkefni Listasafns Reykjanesbæjar og allra
10 leikskóla og 6 grunnskóla bæjarins.
Duushús - Verk leikskólanna:
Sögur og ævintýri
Sýningar og listasmiðja
Listaverk í leiðinni
Verk grunnskólanemenda staðsett víðs vegar um
bæinn:
Nettó, Kjarna (Bókasafn Rnb.), Krossmóa (MSS),
Nesvellir, Kaffitár, Langbest Ásbrú
Ekki láta þessar sýningar fram hjá ykkur fara!
VORTÓNLEIKAR
Vortónleikar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, deilda,
verða haldnir dagana 16. til 25. maí.
Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu skólans
tonlistarskoli.reykjanesbaer.is og á skrifstofu skólans í
síma 421-1153
Aðrir vortónleikar verða sem hér segir:
Laugardagur 19. maí kl. 15:00 í Ytri-Njarðvíkurkirkju:
Strengjasveitirnar ásamt gestum frá T. Seltjarnarnesi
Mánudagur 21. maí kl. 19:30 á sal skólans við
Austurgötu: Rytmadeild og Léttsveitin
Þriðjudagur 22. maí kl. 18:30 í Stapa, Hljómahöllinni:
Gítarsamspilin
Miðvikudagur 30. maí kl. 19:00 í Stapa,
Hljómahöllinni: Lúðrasveitirnar
Skólaslit verða í Stapa, Hljómahöllinni,
fimmtudaginn 31. maí kl. 18:00
Skólastjóri
NESVELLIR
Léttur föstudagur 18. maí kl. 14:00.
Tónlistaratriði frá systkinunum Valda og Önnu Skafta.
UMFERÐAR- OG
ÖRYGGISÞING
Fimmtudaginn 24. maí verður Umferðar- og
öryggisþing Reykjanesbæjar haldið í bíósal Duushúsa
kl 17:00
Á þinginu verða starfsmenn Umhverfis- og skipulags-
svið og aðrir fagaðilar með erindi. Tilgangurinn er að
setjast saman til skrafs og ráðagerða og benda á
hættur sem fyrirfinnast í bænum.
Mikilvægt er að fá foreldra grunnskólabarna með í
þessa vinnu til að benda á hættumerkin í sínu
nærumhverfi.
›› FRÉTTIR ‹‹
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Akureyri
Húsavík
Vestmannaeyjum
1.290,-
1.290,- 1.290,-
1.250,- 1.290,-
1.890,-
110 cm
1.890,-
1.290,-
GÆÐASKÓFLUR
Haki
1.890,-Malarhrífa verð frá
1.390,-
Laufhrífa
690,-
Strákústur
30cm breiður
695,-
Garðtól á góðu verði
Á laugardaginn verða Gospel-krakkar frá Hjálpræðis-
hernum að sýna lítinn söngleik
í Frumleikhúsinu Keflavík, kl.
16:00
Söngleikurinn heitir „Nýji vinur-
inn“ og fjallar um Pétur Lærisvein
Jesú og litla lamaða stúlku sem
Jesús læknar.
Krakkarnir sem leika og syngja eru
á aldrinum 6 til 13 ára. Þau eru að
safna fyrir að fara í vorferð og mun
það því kosta 500 kr. fyrir fullordna
og hálft verð fyrir börn að koma og
sjá leikritið. Við skorum á Keflvík-
inga að kíkja við á Laugardaginn og
sjá þessa einstöku sýningu, segir í
tilkynningu frá Hjálpræðishernum.
Mikið fjölmenni fylgdi Haf-steini Guðmundssyni til
grafar frá Keflavíkurkirkju en
útför hans var sl. fimmtudag. Það
voru fyrrum félagar Hafsteins úr
gullaldarliði Keflavíkur sem báru
kistu Hafsteins, en það voru þeir:
Steinar Jóhannsson, Jón Jóhanns-
son, Guðni Kjartansson, Einar
Gunnarsson, Ástráður Gunnars-
son, Karl Hermannsson, Sigurður
Albertsson og Jón Ólafur Jóns-
son.
Hafsteinn var m.a. formaður
Knattspyrnuráðs Keflavíkur í mörg
ár og var í forystu þegar upp-
gangur knattspyrnunnar í Keflavík
var sem mestur. Hann varð síðar
landsliðseinvaldur Íslands í knatt-
spyrnu. Hann lék fjóra landsleiki,
var stjórnarmaður KSÍ í fjögur ár
og landsliðsnefndarmaður áður en
hann varð einvaldur.
Hafsteinn var m.a. sæmdur heið-
urskrossi KSÍ á fimmtugsafmæli
sínu 1973 sem er æðsta heiðurs-
viðurkenning KSÍ. Hann var
sæmdur gullmerki Keflavíkur árið
2008. Þá var Hafsteinn sæmdur
riddarakrossi af forseta Íslands
um síðustu áramót, heiðursmerki
hinnar íslensku fálkaorðu, fyrir
forystu á vettvangi íþróttastarfs
á Suðurnesjum og víðar. Oft var
Hafsteinn einnig nefndur guðfaðir
knattspyrnunnar í Keflavík.
Guðfaðir knattspyrnunnar
borinn til grafar
Gospelkrakkar
með söngleik
Ók ölvaður á lög-
reglustöðina
Karlmaður á fertugsaldri kom akandi á lögreglustöðina
við Hringbraut í Reykjanesbæ í
liðinni viku, vegna erindis sem
hann taldi sig eiga við lögreglu.
Ekki er það í frásögur færandi
að öðru leyti en því að þegar lög-
reglumaður ræddi við manninn
reyndist vera áfengislykt úr vitum
hans. Spurður kvaðst hann hafa
komið akandi á lögreglustöð-
ina. Maðurinn var látinn blása í
áfengismæli, sem sýndi að hann
var undir áhrifum áfengis. Hann
var því handtekinn og færður til
skýrslutöku í kjölfarið. Þar neit-
aði hann að hafa verið á bílnum.
Tekin var af honum skýrsla og
honum sleppt að því loknu.
Fíkniefni í fyrrum
bílaleigubíl
Maríjúana fannst í liðinni viku í bifreið í umdæmi
lögreglunnar á Suðurnesjum,
sem haldlagði efnið. Bílaleiga í
umdæminu hafði selt bifreiðina
en þar sem kaupandinn stóð ekki
í skilum með afborganir fóru
starfsmenn fyrirtækisins og sóttu
bílinn. Þegar þeir voru að safna
saman munum sem hinn óskil-
vísi kaupandi hafði skilið eftir í
bifreiðinni fundu þeir maríjúana
í tveimur glærum smellupokum
sem komið hafði verið fyrir í
sígarettupakka. Þeir gerðu lög-
reglu þegar viðvart og fjarlægði
hún efnin úr bílnum.
Kannabisræktun
í svefnherbergi
Lögreglan á Suðurnesjum handtók í vikunni sem leið
karlmann á fertugsaldri og rúm-
lega tvítuga konu vegna gruns um
að kannabisræktun væri í gangi í
íbúðarhúsnæði þeirra. Að undan-
gengnum dómsúrskurði var gerð
húsleit á heimilinu. Þar fundust
fjórtán kannabisplöntur, tólf í
einu svefnherbergi og tvær í öðru.
Konan játaði aðild sína að málinu
sem telst upplýst. Lögregla lagði
hald á plönturnar og ræktunar-
búnaðinn. Minnt er á fíkniefna-
símann 800 5005 þar sem hægt er
að koma gjaldfrjálst á framfæri
upplýsingum um fíkniefnamál,
undir nafnleynd, til lögreglu.
Garðaúðun
Eitrum fyrir köngulóm, roðamaur
og öðrum skordýrum.
Upplýsingar í síma 863 1291