Víkurfréttir - 16.05.2012, Side 15
15VÍKURFRÉTTIR • MIÐVIKUDAGURINN 16. MAí 2012
HJARTAHEILL
verður á ferðinni um Suðurnesin í maí 2012. Starfsemi Hjartaheilla verður
kynnt í máli og myndum auk þess sem fólki gefst kostur á að fá mældan
blóðþrýsting, blóðfitu og súrefnismettun, sér að kostnaðarlausu.
Grindavík:
Fimmtudaginn 24. maí 2012 verður mæling
frá kl. 15:00 til 18:00 í Íþróttahúsi Grindavíkur,
Austurvegi 1 - 3.
Vogum:
Miðvikudaginn 30. maí 2012 verður mæling
frá kl. 16:00 til 18:00 í Íþróttamiðstöð Voga,
Hafnargötu 17.
Gönguhópur í Reykjanesbæ!
Mánudaginn 21. maí nk. verður farið af stað með
gönguhóp. Gengið verður á mánudögum og
miðvikudögum frá Nesvöllum.
Mæting er kl. 16:45 og lagt af stað kl. 17:00.
Skipt verður í tvo hópa. Annar hópurinn mun ganga
í ca. 30 mínútur og hinn í ca. 60 mínútur.
ER ÞAÐ VON OKKAR AÐ SEM FLESTIR LÁTI SJÁ SIG.
ALLIR HJARTANLEGA VELKOMNIR.
www.heilsuhusid.is
Hringbraut 99 Keflavík Sími 578 5560
Opið: mánud. - föstud. 10 -18
Ásdís Ragna
Einarsdóttir
grasalæknir
veitir ókeypis ráðgjöf í
Heilsuhúsinu, Hringbraut 99,
Reykjanesbæ
föstudaginn 18. maí
milli kl. 15:00 og 18:00.
Njarðvíkingar leika í 2. deild karla í knattspyrnu í sumar
líkt og í fyrra en síðast lék liðið í
1. deild árið 2010. Njarðvíkingar
léku skemmtilegan sóknarbolta
í fyrrasumar þar sem fram-
herjinn efnilegi Andri Fannar
Freysson fór fremstur í flokki.
Nú ætlar liðið sér að stoppa í
götin í vörninni og stefnan er
tekin upp á við. Samkvæmt
spá fótbolta.net þar sem fyrir-
liðar og þjálfarar spá fyrir um
sumarið, þá eiga Njarðvíkingar
að taka efsta sæti deildarinnar
og fara upp um deild.
Við spurðum Árna Þór Ármanns-
son fyrirliða Njarðvíkinga hvort
ekki sé raunhæft að Njarðvíkingar
fari upp um deild í ár? „Miðað við
hvernig við höfum verið að spila
í Deildarbikarnum og á undir-
búningstímabilinu þá ættum við
að geta unnið hvaða lið sem er í
þessari deild. Það hlýtur að vera
stefnan að fara upp eftir gengi
okkar í fyrra. Það er alltaf mark-
miðið hjá Njarðvík.“ Njarðvík
náði jafntefli gegn Aftureldingu
á útivelli í 1. umferð og taka
svo á móti grönnum sínum í
Reyni á laugardaginn kemur.
„Þetta spilaðist ekki alveg eins
og við vildum í fyrra en við
náðum ekki að gera heimavöll
okkar að þessari gryfju sem við
höfðum vonast eftir,“ segir Árni
en Njarðvíkingar léku mun verr
á heimavelli en á útivöllum í
fyrrasumar og unnu aðeins fjóra
leiki á Njarðtaksvellinum.
Hópurinn er töluvert breyttur
og talsvert þynnri en í fyrra.
„Það voru margir lánsmenn hjá
okkur í fyrra sem eru farnir og
svo eru ungir strákar að koma
upp. Það er samt sami kjarni
enn til staðar,“ en Njarðvíkingar
náðu þó að halda í Andra Fannar
Freysson sem var eftirsóttur eftir
frábært tímabil í fyrra þar sem
hann var markahæstur í deildinni
með 17 mörk og var einnig val-
inn efnilegastur. Hann er þó
meiddur um þessar mundir en
er væntanlegur innan skamms.
Sóknarleikurinn var magnaður hjá
Njarðvíkingum í fyrra og skoraði
liðið flest mörk allra liða í 2. deild-
inni. Árni segir að varnarleikurinn
sé hins vegar eitthvað sem hafi
verið lögð áhersla á í vetur og
komi til með að vera aðalsmeki
Njarðvíkinga í sumar. „Við munum
vera þéttir í vörninni en við erum
vanir því að skora alltaf mörk. Við
munum stefna að því að fækka
mörkunum sem við fáum á okkur.“
Hvernig leggst 2. deildin
annars í þig?
„Það er oft erfitt að meta það.
Mörg liðanna eru úti á landi og
maður veit ekki mikið um þau lið
því við sjáum þau ekki yfir vetur-
inn. Ég hef þó trú á því að þetta
verði ekki eins jafnt og í fyrra, það
verður meira bil á milli efstu og
neðstu liða,“ segir Árni en deildin
var ótrúlega jöfn í fyrra. „Þetta
verða 4-5 lið sem verða í baráttu
um efstu sætin.“ Njarðvíkingar
virðst vera þokkalega heilir og í
góðu standi að sögn Árna. Verða
það þá vonbrigði ef Njarðvíkingar
fara ekki upp? „Fyrir mína parta
er það svo. Við höfum svo sem
ekki farið yfir markmið okkar en
við stefnum á toppbaráttuna,“ en
Njarðvíkingar voru grátlega nærri
því að komast upp í 1. deild í fyrra.
FARNIR LEIKMENN:
Almar Elí Færseth til Noregs
Bjarni Steinar Svein-
björnsson hættur
Björn Ísberg Björnsson hættur
Einar Helgi Helgason til
Grindavíkur (var á láni)
Fitim Morina til ÍR (var
á láni frá Val)
Garðar Eðvaldsson hættur
Gísli Örn Gíslason hættur
Haraldur Axel Einars-
son til Þróttar Vogum
Jónas Bergsteinsson til ÍBV
Kristinn Björnsson til
Keflavíkur (var á láni)
Magnús Örn Þórsson til
Tindastóls (var á láni frá Val)
KOMNIR LEIKMENN:
Garðar Sigurðsson frá Þrótti Vogum
Marteinn Sindri Svavars-
son frá Hamar
Stefán Guðberg Sigurjóns-
son frá Þrótti Vogum
Ísak Örn Einarsson frá
Haukum á láni
Vignir Jóhannesson frá
Breiðablik á láni
Fara Njarðvík-
ingar upp í ár?
Árna Þór Ármannsson fyrirliði
Njarðvíkinga í leik gegn Reyni
Sandgerði sl. sumar.
VF-mynd: Eyþór Sæmundsson
Andri Fannar er skæður leik-
maður í liði Njarðvíkur.