Víkurfréttir - 16.05.2012, Qupperneq 16
Evrur í vEskið
Þetta er allt annað líf. Langisjór ylvolgur og bjórinn ískaldur. Kallinn, sem rukkar fyrir bekkina, er sá sami. Búinn að
standa sína plikt í tuttugu og eitthvað ár. Kann vel við hann.
Ellihrumur og gráhærður gengur hann á milli manna og rukkar.
Evrur. Í sandölum og ermalausum bol. Með hatt. Gamlan.
Slitinn. Örugglega sá sami. Ég kann vel við mig á ströndinni.
Börnin busla í flæðarmálinu og búa til sandkastala. Flotta.
Minnir mig á þegar ég kom með börnin mín með mér og við
smíðuðum hallir, reistar á sandi. „Á sandi byggði heimskur maður hús,“ söng ég
með þeim í leikskólanum. Ég lék heimska manninn og krakkarnir híuðu á mig.
Sagði þeim líka sögur af Birni bónda, sem bjó í Villingaholti og geymdi óþekku
börnin í súrheysturninum. Að ógleymdri sögunni af Klaufa-Bárði, sem rann
alltaf í skítnum í fjósinu. Minningar. Ljúfar.
Sjö evrur!, galaði sá gamli og vakti mig af værum blundi. Senior! Ha, já, fyrir-gefðu kallinn minn. Góðan daginn! Ég gramsaði í veskinu. Var hugsað til
Jóhönnu þegar ég borgaði. Mikið andskoti væri gott að fá útborgað í evrum
og greiða í evrum hvort sem er heima á Fróni eða á Spáni. Þyrfti ekki þessi
bannsettu gjaldeyrishöft, sem leyfa manni ekki að taka nema ákveðinn skammt
af gjaldeyri. Svo sem ekki langt síðan maður fór með gjaldeyrisávísanir í
sumarfríið. Ekki annað í boði þá. Eins og greifi að undirrita tékka í röðum.
Unglingurinn sjálfur. Mamma hleypti mér út á sextánda ári til Mæjorka. Með
Palla vin sextán og Gunna frænda hans, eitthvað eldri. Ótrúleg manneskja. Svo
glöð þegar ég kom heim með fötin öll samanbrotin í töskunni. Samstíga.
Verðlagið á Spáni er bara þokkalega gott. Þú ferð að versla úti í búð og færð meira fyrir peninginn en heima. Léttvínið hræbillegt og bjórinn nánast
gefins. Hættulega gefins. Ég trúi því að einn daginn eigum við eftir að lifa góðu
lífi á Íslandi. Í náinni framtíð. Vonandi minni. Heimilisvörur á heildsöluverði og
nautakjötið á niðursettu. Hlunkar á grillið. Meyrir. Nammi.
Ég ligg yfir þessu alla daga í minni vinnu. Kaupa gjaldeyri. Hringja í gjald-eyrisborðið og hlera stöðuna. Sveiflurnar svaklegar. Jafnvel innan dags. Ekki
gott að búa við þetta til lengdar. Ætlum við að rembast eins og rjúpa við staur
eða skella okkur í partíið? Hlakka til næstu kosninga og heyra hvað spekingarnir
segja.
vf.is
Miðvikudagurinn 16. maí 2012 • 20. tölublað • 33. árgangur
auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001
FIMMTUDAGSVALS
VAlUr KeTIlSSon SKrIFAr KOMDU
Í GOLF
Í LEIRUNNI
NÝJAR
MOTTUR Á
ÆFINGASVÆÐINU.
OPIÐ TIL 22:00
JÓEL 6 HOLU
ÆFINGA-
VÖLLUR HENTAR
VEL FYRIR
BYRJENDUR
HAFIÐ SAMBAND Í
SÍMA 421 4100 EÐA
NETFANGIÐ GS@GS.IS
PI
PA
R
\T
BW
A
- S
ÍA
-
12
07
00
Afsláttur
allan
hringinn
Sæktu um lykil núna á ob.is
með ÓB-lyklinum
1. Sérafslættir (-10 kr. í fyrsta skipti, -10 kr. á afmælis daginn og -15 kr. í 10. hvert skipti) koma ekki til
viðbótar við aðra afslætti eða önnur viðskiptakjör. Nánar á ob.is.
2. Til að safna Vildarpunktum Icelandair þarf lykillinn að vera tengdur við Visa eða American Express
Vildarkort Icelandair. Einnig er hægt að tengja lykilinn Viðskiptakorti Olís og safna Vildarpunktum.
Punktasöfnun er 1,5% af upphæð, sem gerir um 4 kr. í formi Vildarpunkta Icelandair.