Víkurfréttir - 31.03.2011, Side 6
AUGLÝSINGASÍMINN ER 421 0001VÍKURFRÉTTIR I 13. TÖLUBLAÐ I 32. ÁRGANGUR6
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið gunnar@vf.is. Auglýs-
ingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á
fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is.
Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur
frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur
auglýsinga fram um einn sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á
póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is.
Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu
blaðsins. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það
birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319
Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar: Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, sími 421 0000
Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is
Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is
Blaðamaður: Sigurður Jónsson, sími 421 0004, siggi@vf.is
Auglýsingadeild: Gunnar Einarsson, sími 421 0001, gunnar@vf.is
Útlit, umbrot og prenvistun: Víkurfréttir ehf.
Auglýsingagerð: Þórgunnur Sigurjónsdóttir, sími 421 0011, thorgunnur@vf.is
og Þorsteinn Kristinsson, steini@vf.is, sími 421 0011
Afgreiðsla: Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0009, rut@vf.is
og Aldís Jónsdóttir, sími 421 0010, aldis@vf.is
Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi hf.
Upplag: 8500 eintök.
Dreifing: Íslandspóstur
Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is, m.vf.is og kylfingur.is
141 776
UM
HVE
RFISMERKI
PRENTGRIPUR
Ekki er vika án Víkurfrétta - sem koma næst út fimmtudaginn 7. apríl. Bókið auglýsingar í síma 421 0001 eða gunnar@vf.is
Ritstjórnarpistill Víkurfrétta
PÁLL KETILSSON, RITSTJÓRI
Haraldur Leifsson
„Ég ætla að segja já.“
Eva Lind Ómarsdóttir
„Ég veit ekki hvort ég kýs en ég mun
ekki samþykkja.“
Guðbjörg Irmý Jónsdóttir
„Ég er ekki ákveðin en hallast að
samþykki.“
Guðmundur Ingi Einarsson
„Ég ætla að kjósa á móti.“
Stefanía Guðmundsdóttir
„Ég hugsa að ég kjósi ekki.“
Spurning vikunnar // „Hvað ætlar þú að kjósa í Icesave deilunni?“
Afgreiðsla Víkurfrétta
er opin alla virka daga
frá kl. 09-12 og 13-17.
Athugið að föstudaga
er opið til kl. 15.
Við fjölluðum um fjölbreytta menningarstarf-semi í Reykjanesbæ í síðustu viku en við það
er að bæta að íþróttastarfsemi er gríðarlega sterk og
hefur ekki látið undan í kreppunni. En það eru ekki
bara íbúar Reykjanesbæjar sem eru að gera það gott
í menningu og íþróttum.
Nágrannar þeirra í Garði og Grindavík hafa lítið gefið þeim eftir.
Garðmenn voru fyrr í vetur með mjög öfluga dagskrá sem hét „Ferskir
vindar“ og nú 2. apríl hefst menningarvika í Grindavík. Það er ekki
bara „fiskur undir steini“ í þessu mikla sjávarplássi. Þar hafa íþróttir og
menning sótt mikið á undanfarin ár og dagskráin í þessari menningar-
viku er mjög fjölbreytt. Ekki eru bara margir spennandi menningar-
viðburðir heldur er hægt að fara í heita pottinn með bæjarfulltrúum
alla næstu viku.
Grindvíkingar eru duglegir og framtakssamir í mörgum málum. Ætíð
hefur verið næg atvinna í bæjarfélaginu og stefnt er að opnun mennta-
skóla. Þeir halda úti virkri vefsíðu um málefni bæjarins og gefa út
Járngerði, fréttablað þrisvar á ári. Það er ástæða til að hrósa Grindvík-
ingum fyrir góðan gang á mörgum sviðum.
Landsvirkjun og álverið
Björgvin G. Sigurðsson, fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis skrifaði
grein á vf.is þar sem hann hvatti Landsvirkjun til að koma að orkuöflun
í álverinu í Helguvík með yfirtöku virkjana Orkuveitu Reykjavíkur sem
á við mikla fjárhagserfiðleika að etja.
„Landsvirkjun hefur alla burði til að ganga inn í þessi verkefni og
myndi það liðka fyrir orkusölu til álvers í Helguvík og líkast til koma
í veg fyrir að þau áform yrðu að engu. Áfram er reiknað með því að
HS Orka skaffi meirihluta orkunnar til álvers í Helguvík. Þessháttar
aðkoma Landsvirkjunar að verkefninu, ásamt því að leggja umfram-
orku í kerfi sínu á næstu árum til verkefnisins, gæti skipt sköpum um
framhald málsins.
Það er mjög brýnt nú þegar mikið liggur við, að koma öflugum fram-
kvæmdum af stað vegna atvinnustigsins og hagvaxtarauka, að Lands-
virkjun leiti allra leiða til þess að koma að Helguvíkurverkefninu. Það
gæti hoggið á Helguvíkurhnútinn og tryggt framgang verkefnisins,“
segir Björgvin sem flutti sams konar mál á Alþingi í upphafi vikunnar.
Undir orð hans tók Kristján Möller, formaður iðnaðarnefndar en hann
sagði að tvö þúsund störf yrðu til innan fimm mánaða ef Helguvík-
urframkvæmdirnar kæmust í gang. Það væri ekki svo lítið þegar haft
væri í huga að fimmtán þúsund manns gengju um atvinnulausir. Það
væri eitt mesta þjóðfélagsmeinið um þessar mundir sem kostaði um
þrjátíu milljarða króna.
Ekki er hægt að greina annað en að stuðningur sé við álversverkefnið
innan vébanda Samfylkingarinnar en Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráð-
herra hefur alltaf talað fyrir álveri. Hins vegar höfðu forráðamenn
Reykjanesbæjar og Garðs áhyggjur af því þegar forsætisráðherra
tilgreindi nýlega ekki álverið í þeim verkefnum sem horft væri til á
næstunni.
Nú er bara spurning hvort Samfylkingin hafi vilja og þrek til að fylgja
málum eftir og tryggja álversframkvæmdum framgang eða hvort „fúlir
á móti“ Vinstri grænir nái að tefja málið áfram.
Menning og álver
Tók í spaðann á Magic Johnson og Steven Segal
4 Bergsveinn Alfons Rúnarsson, þjónustustjóri farþegaafgreiðslu IGS
Bergsveinn Alfons Rúnars-son, fæddur hið merka
ár 1983, starfar sem þjón-
ustustjóri farþegaafgreiðslu
IGS á Keflavíkurflugvelli.
Bergsveinn á eina litla dóttur,
hana Kamillu Nótt, með
Guðríði Jónsdóttur. Hann
kláraði grunnskólann með
stæl og svo lá leiðin í FS. „Þar
átti ég nokkur skemmtileg ár
en stuttu áður en ég nálgaðist
hvítu húfuna ákvað ég að taka
mér frí og stendur það ennþá
yfir,“ sagði Bergsveinn. „Ég
þarf að fara að klára þetta svo
ég fái þessa blessuðu húfu.“
Bergsveinn er með yfirumsjón
yfir starfsemi farþegaafgreiðsl-
unnar en það er innritun
farþega og almenn þjónusta
við þá. Einnig sér hann um
móttöku flugvéla og að birgja
þær upp. „Ég vinn á tólf tíma
vöktum, bæði daga og nætur.
Þegar ég er á næturvakt, geng
ég frá deginum sem leið og
undirbý næstu daga.“
Bergsveinn hóf starf hjá IGS
árið 1997 og þá sem kerrust-
rákur. Hann hefur svo unnið
við hin ýmsu störf innan IGS
eins og í hlaðdeild, Catering
og Load control en byrjaði
svo í farþegaafgreiðslunni
árið 2005. „Mér finnst þetta
frábært starf. Þetta er mjög
fjölbreytt og dagarnir því yfir-
leitt aldrei eins. Oftar en ekki
er mjög mikið að gera hjá
okkur og mikið álag en við
höfum svo frábært starfsfólk
að það gengur alltaf allt upp að
lokum,“ sagði Bergsveinn, að-
spurður hvernig honum líkaði
starfið. „Það sem mér finnst
skipta mestu máli er að mór-
allinn hjá okkur er eins góður
og hann gerist og því er alltaf
gaman að mæta í vinnuna.“
Mikið af fræga fólkinu hefur
komið í heimsókn til Íslands
og auðvitað þarf það að fara
í gegn hjá Bergsveini. En
hvaða frægi einstaklingur er
þér minnisstæðastur? „Maður
hefur nú alveg hitt þá nokkra
en minnisstæðast var að taka
í spaðann á Magic Johnson
og Steven Segal,“ sagði Berg-
sveinn stoltur. „Er samt ennþá
að bíða eftir því að Kate Hud-
son komi og kíki á kallinn.“
Bergsveinn hefur þurft að
ferðast nokkuð vegna vinn-
unnar, bæði innanlands sem
utan. „Ég fór fyrir nokkrum
árum til Parísar vegna vinn-
unnar á meðan starfsfólkið þar
var í setuverkfalli en það var
bara gaman og fróðlegt. Svo
stóð maður vaktina á Akur-
eyri á meðan á eldgosinu stóð,
strembið verkefni en ótrúlega
gaman. Starfsfólk IGS og Ice-
landair gerðu ótrúlega hluti
við að halda fluginu gangandi
á meðan stóru flugfélögin
úti í heimi felldu niður flug í
hrönnum.“
Bergsveinn er mjög ánægður
með starfið sitt og er ekkert á
leiðinni að hugsa sér að breyta
neitt til eins og staðan er í dag.
„Mér líkar þetta mjög vel en
ég hef þó ekki ennþá ákveðið
hvað ég ætla að verða þegar ég
verð stór,“ sagði Bergsveinn,
þó hann sé nú orðinn nokkuð
stór.
Starfið mitt
STANDIÐ MEÐ
OKKUR VAKTINA!
Tekið er við ábendingum
um jákvæðar og skemmti-
legar fréttir alla daga í
síma 421 0002 eða á póst-
fangið vf@vf.is
ÚTKALLSSÍMI ALLAN
SÓLARHRINGINN
898 2222
Bergsveinn Alfons
Rúnarsson, hér í
appelsínugulu vesti,
tekur í spaðann á...
tja, ekki er það Magic
Johnson né Steven
Segal...