Ægir - 01.04.2006, Síða 4
4
E F N I S Y F I R L I T
Útgefandi: Athygli ehf. ISSN 0001-9038
Ritstjórn:
Athygli ehf. Hafnarstræti 82, Akureyri.
Sími 461-5151.
Ritstjóri:
Óskar Þór Halldórsson (ábm.)
Sími 461-5135. GSM 898-4294.
Netfang: oskar@athygli.is
Auglýsingar:
Athygli ehf. Síðumúli 1. Reykjavík.
Sími 515-5200. Netfang: augl@athygli.is
Auglýsingastjóri:
Inga Ágústsdóttir. Sími 515-5206.
GSM 898-8022. Netfang: inga@athygli.is
Hönnun & umbrot:
Athygli ehf. Síðumúli 1. Reykjavík.
Sími 515-5200.
Prentun:
Gutenberg ehf.
Áskrift:
Hálfsársáskrift að Ægi kostar 3600 kr.
Áskriftarsímar 515-5200 & 515-5205
Aðalmynd á forsíðu tók Aldís Fjóla Ásgeirsdóttir í
Fiskverkun Kalla Sveins á Borgarfirði eystra. Á
myndinni er Katrín Guðmundsdóttir að pakka salt-
fiski. Fjær eru Pólverjarnir Jarik og Renata.
ÆGIR kemur út 11 sinnum á ári.
Eftirprentun og ívitnun er heimil,
sé heimildar getið.
Sjávarútvegurinn í gengisólgusjó
„Það gengur auðvitað ekki að það sé ekki
rekstrargrundvöllur fyrir greinar eins og
sjávarútveginn, ferðaþjónustuna, iðnaðinn
eða þá sem selja þjónustu erlendis. Því
miður hefur neyslan farið úr böndum og ver-
ið fjármögnuð með lántökum í allt of ríkum
mæli. Rangt gengi krónunnar hefur ýtt
verulega undir þetta. Það sem hefur gerst
á síðustu vikum er einfaldlega að gengið
hefur tekið leiðréttingum,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, um stöðu sjávarútvegsins í ljósi þeirra
sveiflna sem hafa verið að undanförnu á gengi krónunnar.
Flestar sjómannasögur úr
sama skapalóninu
„Íslenskar nútímaskáld-
sögur um sjómenn eru
ótrúlega keimlíkar. Það
liggur við að þær komi
flestar úr sama skapalón-
inu: Ungur maður fer til
sjós, gjarnan skólastrákur,
verður sjóveikur, lendir í
fiskiríi og óveðri og hlýtur þannig sína manndómsvígslu, slark-
ar með strákunum í landlegu og nær sér loks í stúlku ef veigur
er í honum,“ segir Rúnar Helgi Vignisson, rithöfundur, m.a. um
sjómennsku í íslenskum skáldskap, en þennan þátt í bók-
menntum hefur hann skoðað sérstaklega.
Stálslegnir Vestfirðingar
„Við vitum að við höfum mjög góða vöru
að bjóða og hún passar vel inn í marg-
víslega matvælaframleiðslu - t.d. kjöt-
vinnslur og fóðurframleiðslu. Ég tel því
að möguleikarnir séu margvíslegir og
við ætlum okkur að nýta þá,“ segir Jó-
hann Jónasson, framkvæmdastjóri 3X-
Stáls á Ísafirði, en fyrirtækið fékk nýver-
ið Útflutningsverðlaun forseta Íslands.
Kalli Sveins á Borgarfirði eystra
Karl Sveinsson, fiskverkandi og útgerðarmaður á Borgarfirði
eystra, er stærsti atvinnurekandinn á Borgarfirði eystra. Í ítar-
legu viðtali við Harald Bjarnason ræðir Kalli Sveins, eða Kalli
kóngur eins og sumir Borgfirðingar kalla hann, um fiskverkun-
ina, gæsaslátrun, samskipti við bankamenn, lífið á Borgarfirði
og margt fleira.
Af þorskinum við Færeyjar
„Golþorskar eru ekki margir við Færeyjar nú og hafa síðan á ís-
öld líklega aldrei verið færri en árið 2005. Samt eru aðeins 4-5
ár síðan þar voru milljón golþorskar, fyrst og fremst úr 93 ár-
ganginum,“ segir Einar Júlíusson, dósent við Háskólann á Ak-
ureyri, m.a. í ítarlegri vettvangsgrein um þorskstofninn við
Færeyjar.
14
18
36
23
20
aegirapril-48breitt.qxp 5/11/06 12:45 PM Page 4