Ægir - 01.06.2006, Qupperneq 11
11
F I S K I D A G U R I N N M I K L I
verði uppi á teningnum í ár,“
segir Júlíus, en vart verður
lýst með orðum því hafi
tjalda, fellihýsa og húsbíla
sem fyrir augu bar á Fiskidag-
inn mikla í fyrra.
Enn meira lagt í fiskisúpu-
kvöldið
Í fyrra var í fyrsta skipti boðið
upp á svokallað fiskisúpu-
kvöld föstudagskvöldið fyrir
Fiskidaginn. Svo verður
einnig nú og verður enn
meira lagt í það í ár en í
fyrra, sem segja má að hafi
verið einskonar prufukeyrsla.
„Fiskisúpukvöldið er þannig
upp byggt að húseigendur í
bænum eru með opið hús og
bjóða gestum og gangandi
upp á fiskisúpu, auk annars
meðlætis. Þetta tókst frábær-
lega vel í fyrra og gerði mikla
lukku. Í fyrra var boðið í
fiskisúpu í 36 húsum í bæn-
um, en núna veit ég að gest-
gjafarnir verða enn fleiri, lík-
lega vel yfir 50. Fólk er þegar
farið að bera saman bækur
sínar með fiskisúpuuppskriftir
og mér er kunnugt um að í
ýmsum görðum verður boðið
upp á skemmtiatriði, trú-
badúrar taka lagið og fleira
verður í boði,“ segir Júlíus.
Tónlistarveisla með um þrjátíu
dagskráratriðum
Í tengslum við sjálfan Fiski-
daginn verður ýmislegt á
boðstólum á menningarsvið-
inu. Til dæmis verður Karla-
kór Dalvíkur með tónleika í
Dalvíkurkirkju að kvöldi
fimmtudagsins 10. ágúst og
aftur kl. 18 á föstudaginn, en
á báðum þessum tónleikum
flytur kórinn sérstaka sjó-
mannalagadagskrá, sem hann
hefur sett saman og flutt við
mikla hrifningu.
Dagskrá sjálfs Fiskidagsins
er smám saman að taka á sig
mynd. Júlíus segir að á fyrstu
Fiskidögunum hafi aðstand-
endur fengið m.a. aðkeypta
skemmtikrafta, en það sé lið-
in tíð. Nú sé svo komið að
tugir fyrirspurna berist um að
fá að troða upp á Fiskidag-
inn. „Við reynum að verða
við sem flestum óskum þar
að lútandi og ég get lofað
afar fjölbreyttri dagskrá í ár
þar sem tónlistin verður ekki
síst í hávegum höfð, eigin-
lega má tala um tónlistar-
veislu. Tónlistaratriðin verða
um þrjátíu talsins, þetta er
allskonar tónlist, nefna má
hljómsveitina Roðlaust og
beinlaust, Rúnar Júlíusson,
Ragga Bjarna, Helga og hljóð-
færaleikarana, blúshljómsveit
þar sem erlendir spilarar
koma við sögu og margt,
margt fleira,“ segir Júlíus.
Vert er að geta þess að
forseti Íslands, hr. Ólafur
Ragnar Grímsson, verður
heiðursgestur Fiskidagsins
mikla í ár og er þetta í fyrsta
skipti sem forsetinn heiðrar
daginn með nærveru sinni.
Landsins stærsta fiskasýning
Í fyrra var varðskipið Týr við
bryggju á Dalvík á Fiskidag-
inn og segir Júlíus að Land-
helgisgæslan hafi fullan hug á
því að taka einnig þátt í deg-
inum í ár með einum og öðr-
um hætti, það eina sem gæti
komið í veg fyrir það væri ef
skylli á þorskastríð!
Þá má ekki gleyma árviss-
um viðburði sem er fiskasýn-
ing Skarphéðins Ásbjörnsson-
ar, en í fyrra sýndi hann 171
fiskategund á Fiskideginum
mikla og hann stefnir að því
að tegundirnar verði yfir 180
í ár og þar með verði þetta
langstærsta fiskasýning sem
haldin hafi verið hér á landi.
Um 300 sjálfboðaliðar gera
Fiskidaginn mögulegan
Fiskidagurinn mikli er sem
fyrr segir hreint ævintýri og
hann væri ekki haldinn nema
vegna þess að íbúar í Dalvík-
urbyggð leggjast allir á eitt
við að gera hann sem vegleg-
astan og vinna í ómældri
sjálfboðavinnu það sem þarf
að gera í aðdraganda dagsins
og á deginum sjálfum. Bara
það að pakka fiskinum inn í
álpappír, tugþúsundir matar-
skammta, tekur mikinn tíma,
að ekki sé talað um annan
undirbúning. Júlíus Júlíusson
segir ekki ofmælt að um 300
sjálfboðaliðar komi með ein-
um eða öðrum hætti að
Fiskideginum og hann segist
vera af hreykinn af þeirri já-
kvæðni og gleði sem frá upp-
hafi hafi einkennt Fiskidaginn
og sé að stórum hluta að
þakka því jákvæða viðhorfi
sem birtist öllum myndum
hjá íbúum Dalvíkurbyggðar í
garð þessarar fjölsóttu fjöl-
skylduhátíðar. „Fólk hér nýtur
þessar hátíðar út í ystu æsar
og leggur sig fram um að
taka vel á móti gestum og ég
er mjög hreykinn af því. Í ár
fáum við líka liðsinni átján
sjálfboðaliða frá níu þjóð-
löndum, sem verða hér í
nokkra daga í aðdraganda
Fiskidagsins og taka þannig
þátt í undirbúningi hans og
vinna einnig á sjálfan Fiski-
daginn. Ætlunin er að Friðrik
V, matreiðslumeistari á Akur-
eyri, verði með bás á Fiski-
daginn þar sem ætlar ásamt
sjálfboðaliðunum að töfra
fram rétti frá löndum þeirra,“
segir Júlíus Júlíusson.
r
on,
Heita má að allir blettir á Dalvík hafi verið þaktir tjöldum, húsbílum eða fellihýs-
um.
Skarphéðinn Ásbjörnsson á heiðurinn af landsins stærstu fiskasýningu sem árlega
er sett upp á Fiskidaginn mikla. Í fyrra sýndi Skarphéðinn 171 fisktegund, en í ár
er markmiðið að tegundirnar verði yfir 180 talsins.
Salka-Fiskmiðlun var með bás þar sem m.a. var boðið upp á sérstaka Nígeríu-
súpu, en fyrirtækið er stór útflytjandi hertra fiskafurða til Nígeríu.
aegirjuni06qxp 7/7/06 1:17 PM Page 11