Ægir - 01.06.2006, Síða 13
13
L Í F R Í K I S J Á V A R
„Ég neita því ekki að ég hef
nokkrar áyggjur af kríunni.
Það hefur óvenju lítið sést af
henni í vor og það sama má
segja um rituna og fýlinn. Ég
geri mér hins vegar ekki grein
fyrir hvað veldur þessu,“ segir
Jón Eiríksson, Drangeyjarjarl í
Skagafirði, sem lengi hefur
fylgst vel með fuglalífi í
Skagafirði, ekki síst í og við
Drangey.
Viðkomubrestur hjá
sjófuglinum
Jón Drangeyjarjarl deilir þess-
um áhyggjum með mörgum
öðrum fuglaáhugamönnum
sem segja að viðkomubrestur
hafi orðið hjá ýmsum sjó-
fuglategundum. Ægir ræddi
við Hörð Sigurbjarnarson,
framkvæmdastjóra hvalaskoð-
unarfyrirtækisins Norðursigl-
ingar á Húsavík og áhuga-
mann um lífríki sjávar, og
komu fram hjá honum sömu
áhyggjur af sjófuglunum,
einkum ritu og lunda, og þá
sagði hann líka greinilegt að
ástand kríunnar væri heldur
bágborið. Hörður spyr sig
hvað valdi þessu og hann
bætir við að nú bregði svo
við að sáralítið sjáist af
hrefnu í Skjálfanda, sem er
mikil breyting frá því fyrir
fáum árum þegar 20-30
hrefnur héldu sig alla jafna á
Skjálfanda og þær „héldu
uppi“ hvalaskoðuninni á
þessu hafsvæði. „Vísinda-
menn frá Hafró hafa verið
hér og í Eyjafirði að undan-
förnu í þeim tilgangi að
koma fyrir litlum gervihnatta-
sendum í hrefnunni. Þeir hafa
aðeins fundið 4 hrefnur hér á
Skjálfanda og 5 hrefnur í
Eyjafirði. Þetta kemur heim
og saman við það sem við
höfum upplifað hér í hvala-
skoðuninni í sumar. Það er
sáralítið um hrefnu hér í sum-
ar, mun minna en fyrir
nokkrum árum. Ég velti
vöngum yfir því hvort skýr-
ingin kunni að vera sú sama
og með sjófuglana, nefnilega
sú að lítil sem engin loðna sé
hér á svæðinu. Þetta er áleitin
spurning og menn verða með
öllum ráðum að reyna að fá
henni svarað. Í þessu sam-
bandi er rétt að hafa í huga
að menn eru að veiða vel á
línu, en sjómenn segja jafn-
framt að greinilegt sé að fisk-
urinn sé heldur illa á sig
kominn og banhungraður.
Hann vantar sem sagt æti.
Það er staðreynd að niður
með vesturströnd meginlands
Evrópu og austurströnd
Bandaríkjanna hafa menn
líka horft á viðkomubrest sjó-
fugla vegna ofveiði fisk-
stofna. Þetta helst nefnilega
allt í hendur og ef einn
hlekkurinn í fæðukeðjunni
klikkar geta afleiðingarnar
orðið mun víðtækari,“ segir
Hörður og kallar eftir um-
ræðu um þetta mál, enda sé
það stærra en svo að menn
geti látið það framhjá sér
fara.
Hnúfubakur og steypireyður
Sem fyrr segir hefur lítið sést
af hrefnu á Skjálfanda í sumar
og segist Hörður hafa miklar
efasemdir um að „hinar opin-
beru tölur“ um fjölda hrefna
við landið, um 44 þúsund
stykki, sé rétt. Hins vegar
segir Hörður að töluvert hafi
verið um hnúfubak í sumar,
allt að sex í einu, og hafa
þeir heldur betur kryddað til-
veruna fyrir þá fjölmörgu sem
leggja leið sína út á Skjálf-
anda í hvalaskoðun, en
Hörður segir að á milli 20 og
30 þúsund manns fari í hvala-
skoðun í sumar á vegum
Norðursiglingar. Og þá hafa
steypireyðar látið sjá sig, fólki
til óblandinnar ánægju. Þann
3. júlí sáust til dæmis þrjár
steypireyðar á Skjálfanda,
sem er mjög óvenjulegt.
Sem fyrr gerir Norðursigl-
ing út fjóra báta á hvalaskoð-
un á Skjálfanda í sumar og
hefur gengið bærilega vel frá
því að vertíðin hófst í apríl
sl., en þó var maímánuður
nokkuð erfiður vegna hins
harða og síðbúna norðan-
áhlaups í þeim mánuði. „Það
starfa um þrjátíu manns á
okkar vegum í kringum
hvalaskoðunina í sumar og
annað eins af fólki starfar í
kringum veitingasöluna. Þetta
skiptir því miklu máli fyrir
ferðaþjónustuna hér og ég tel
að ferðaþjónustan hafi sem
atvinnugrein smám saman
verið að eflast,“ segir Hörður,
en mikill meirihluti farþega í
hvalaskoðun er erlendis frá,
Þjóðverjar eru fjölmennastir
en einnig eru Skandinavar,
einkanlega Svíar og Danir,
áberandi svo og Hollending-
ar.
Tveir af hvalaskoðunarbátum Norðursiglingar á Húsavík, Náttfari og Haukur, við
bryggju á Húsavík.
Hörður Sigurbjarnarson, framkvæmdastjóri Norðursiglingar á Húsavík.
Af hverju er
lítið af sjófugli
og hrefnu?
- spyr Hörður Sigurbjarnarson, fram-
kvæmdastjóri Norðursiglingar og áhuga-
maður um lífríki sjávar
aegirjuni06qxp 7/7/06 1:17 PM Page 13