Ægir - 01.06.2006, Blaðsíða 16
16
Þ O R S K E L D I
S J Ó S T A N G V E I Ð I
kvæmni í rekstri og hámarks-
áhrif ljóss á þorskinn. Um er
að ræða svokallað CC kerfi
(cold cathods) með bylgju-
lengd ljóss á græn-bláu sviði.
Niðurstöður frumrannsókna
við hönnun hinna nýju ljósa
sýna að þorskur hefur mikla
næmni fyrir þessari bylgju-
lengd ljóss, auk þess sem
ljósin sjálf og búnaðurinn
notar mun minna rafmagn en
venjuleg hvít ljós.
Hvar stöndum við í dag og
hvert er framhaldið?
Á undanförnum misserum
hefur Rf, í samvinnu við fjöl-
marga aðila, s.s. Hraðfrysti-
húsið Gunnvöru í Hnífsdal,
og með styrkjum frá Byggða-
stofnun, ráðuneytum iðnaðar-
og sjávarútvegs, auk Orkubús
Vestfjarða, Ísafjarðarbæ og
Súðavíkurhreppi einnig hafið
viðamikla uppbyggingu rann-
sóknaraðstöðu til þorskeldis-
rannsókna í sjókvíum í Ísa-
fjarðardjúpi. Markmið upp-
byggingarinnar er að skapa
aðstöðu til þorskeldisrann-
sókna í sjókvíum og verður
aðstaðan aðgengileg þeim
aðilum sem stunda þorskeldi
og rannsóknir tengdar þorsk-
eldi í landinu.
Rannsóknastofnun fiskiðn-
aðarins hefur í samstarfi við
innlenda og erlenda aðila
hlotið rannsóknastyrk frá Evr-
ópuráðinu og Tækniþróunar-
sjóði Rannís til að hefja rann-
sóknir á sviði þorskeldis í sjó-
kvíum. Þær rannsóknir hófust
í júní sl. og standa yfir í þrjú
ár.
Nú þegar hefur norskt fyr-
irtæki, sem er leiðandi á sviði
ljósabúnaðar, Intravision
Group (www.intravision.no) í
Osló, sent nýjustu gerð ljósa-
búnaðar til Ísafjarðar til að
nota við rannsóknirnar.
Það er því ljóst að nú eru
að hefjast viðamiklar rann-
sóknir á líffræði þorsks í eldi
og mjög mikilvægt er að sem
flestir komi að því samstarfi,
enda er það sameiginlegt
hagsmunamál að þroskeldi
geti orðið að hagkvæmri at-
vinnugrein. Vandamálin eru
mörg og þau spyrja ekki um
lönd eða landamæri.
Heimildir
1. Rosenlund G. og Skretting M (2004).
ICES Ráðstefnan í Bergen 13-16.júní.
2. Hemre G.I. og fleiri (2004). Aquacult-
ure Research 35, bls.683-697.
3. Bromage og fleiri (2001). Aquaculture
197, bls.63-98.
4. Taranger G.L. og fleiri (1998). Aqu-
aculture 162, bls.85-98.
5. Björnsson B.Þ og fleiri (1998). Aqu-
aculture 166, bls.117-140.
6. Davie A. og fleiri (2003). Fish Physi-
ology and Biochemistry 28, bls.399-
401.
7. Eckert R. og fleiri (1988). Animal
Physiology. W.H. Freeman and
Company. USA.
Þýskir sjóstangveiðimenn láta
til sín taka á Vestfjörðum
þessi misserin. Frá því í apríl
hafa þeir sótt stíft frá Tálkna-
firði og Súðavík og ætlunin er
að Þjóðverjarnir fiski fram í
lok september.
Þýsku sjóstangveiðimenn-
irnir eru komnir til landsins á
vegum ferðaskrifstofu í Ham-
borg sem hefur sérhæft sig í
sölu á sjóstangveiðiferðum,
en til þessa hefur fyrst og
fremst verið horft til Noregs
og Kanada með sjóstangveiði,
en Ísland er nú sem sagt
komið inn í myndina og
„kemur sterkt inn“, eins og
oft er haft á orði.
Það hefur ekki gerst að
sjálfu sér að hingað sæki
þýskir sjóstangveiðimenn.
Málið hefur lengi verið í und-
irbúningi. Stofnað var félag
um verkefnið, Fjord Fishing,
og að því komu til að byrja
með Tálknafjarðarhreppur,
Súðavíkurhreppur og Vestur-
byggð. Á síðari stigum komu
eigendur Bátasmiðju Guð-
mundar og Bátalands inn í
verkefnið, en Bátasmiðja
Guðmundar hefur þegar
framleitt tíu sjö metra báta til
þess að nota í sjóstangveið-
ina.
„Hver 25 manna hópur er
hér í viku og á hverjum
þriðjudegi eru áhafnarskipti,“
segir Snæbjörn Geir Viggós-
son hjá Tálknafjarðarhöfn.
„Fólkið lætur mjög vel af
þessu. Á björtum sumarnótt-
um getur það ekki hugsað
sér að fara að sofa og er að
langt fram á nætur. Mér heyr-
ist á þeim að aflabrögðin hér
séu mun betri en þeir eiga að
venjast í t.d. Noregi eða
Kanada, en margir þessara
manna eru þrautreyndir
sjóstangaveiðimenn og eyða
sumarfríum sínum í sjóstang-
veiði. Þeir hafa t.d. farið til
Brasilíu og Argentínu. Mér
heyrist að það eina sem þeir
eru ekki alveg sáttir við sé
löng keyrsla frá Keflavík
hingað vestur. Það þyrfti að
koma því á að flogið verði
hingað vestur með hópana.
Það myndi muna miklu,“
sagði Snæbjörn Geir og bætti
við að nú þegar væri vel bók-
að fyrir næsta ár. Ísland virð-
ist því vera komið inn á kort
evrópskra sjóstangveiði-
manna.
Þýskir sjóstangveiði-
menn á Vestfjörðum
aegirjuni06qxp 7/7/06 1:17 PM Page 16