Ægir - 01.06.2006, Page 17
17
S E L I R
Sturla Böðvarsson, sam-
gönguráðherra, opnaði form-
lega þann 25. júní sl. Selaset-
ur Íslands á Hvammstanga,
en auk hans var Einar Kr.
Guðfinnsson, sjávarútvegsráð-
herra, heiðursgestur við opn-
un setursins. Aðsetur Selaset-
ursins er í húsi Sigurðar
Pálmasonar þar sem löngum
var rekin verslun.
Í Selasetri Íslands má sjá
margvíslega muni sem tengj-
ast selveiðum og nýtingu
sela, myndir og teikningar af
selum og margs konar fróð-
leik um þær tvær selategund-
ir sem eiga heimkynni við Ís-
land, landsel og útsel. Einnig
er þar fróðleikur um aðra seli
sem hingað koma sem flæk-
ingar. Með safninu er leitast
við að fræða gesti um seli og
búsvæði þeirra við landið og
hvernig unnt er að umgang-
ast þá. Nefna má að á safninu
eru nokkrir uppstoppaðir sel-
ir, sem Náttúrufræðistofnun
Íslands hefur látið Selasetrinu
í té.
Sturla Böðvarsson flutti
ávarp við opnun setursins
auk þess sem Einar K. Guð-
finnsson sjávarútvegsráðherra
sagði nokkur orð og kvaðst
hafa áhuga á því að Hafrann-
sóknastofnun kæmi við sögu
rannsókna á selum. Fram
kom hjá Karli Sigurgeirssyni
að fjölskylda Sigurðar Pálma-
sonar væri mjög ánægð með
að Selasetur Íslands skyldi
hafa fengið inni í húsinu sem
hefði verið smekklega og vel
endurnýjað, en í þessum
fyrsta áfanga hefur Selasetr-
inu verið fundinn staður á
jarðhæð hússins.
Við opnun Selasetursins
komst Sturla Böðvarsson,
samgönguráðherra, m.a. svo
að orði:,
Íslendingar hafa nýtt seli um
aldir
„Selurinn hefur verið mikil-
vægur þáttur í búsetu okkar
og Íslendingar hafa nytjað
selastofna við landið um ald-
ir. Landselur og útselur hafa
veitt birtu og yl í ýmsum
skilningi. Þessar nytjar af
selnum hafa verið misjafnlega
nauðsynlegar eftir árferði og
það þótti líka kannski mis-
jafnlega fínt eftir landshlutum
eða jafnvel efnahag manna
hvort nýting á sel væri aðeins
bjargráð fátæka mannsins eða
eðlileg nýting og sjálfsögð
eins og með aðra dýrastofna
okkar. Í seinni tíð hafa
kannski tískan og náttúru-
verndin mest að segja um
hvort eða hvernig við nýtum
selina. En við getum verið
sammála um að Íslendingar
eru ekki lengur háðir því að
nýta seli sér til lífsviðurværis.
Við getum hins vegar um-
gengist selina og tilgangur
Selasetursins er líka að ýta
undir þau einstöku tækifæri
sem við höfum á Vatnsnesi til
að skoða selina í náttúrulegu
umhverfi sínu. Selalátur eru
víðast hvar aðgengileg og er
mikilvægt í þessu sambandi
að við stýrum umferð um
þessi svæði og takmörkum
rask á viðkvæmum vistkerf-
um.“
Opið alla daga kl. 9-18
Í ávarpi Einars K. Guðfinns-
sonar, sjávarútvegsráðherra,
kom fram að Hafrannsókna-
stofnunin hefði áhuga á að
koma að rannsóknasamstarfi
við setrið í einhverri mynd.
Það sem af er hefur verið
ágætis aðsókn að Selasetrinu,
bæði af Íslendingum og er-
lendum ferðamönnum. Setrið
er opið alla daga kl. 9-18.
Einstakt tækifæri til
selaskoðunar á Vatnsnesi
- sagði samgönguráðherra við opnun Selaseturs Íslands á Hvammstanga
Selasetrið hefur fengið til afnota nokkra uppstoppaða seli sem setja skemmtilega mynd á sýninguna.
Í Selasetrinu á Hvammstanga er brugðið upp ýmsum myndum af selum við Ísland
og nýtingu selakjöts og -skinna í gegnum tíðina.
aegirjuni06qxp 7/7/06 1:17 PM Page 17