Ægir

Árgangur

Ægir - 01.06.2006, Blaðsíða 17

Ægir - 01.06.2006, Blaðsíða 17
17 S E L I R Sturla Böðvarsson, sam- gönguráðherra, opnaði form- lega þann 25. júní sl. Selaset- ur Íslands á Hvammstanga, en auk hans var Einar Kr. Guðfinnsson, sjávarútvegsráð- herra, heiðursgestur við opn- un setursins. Aðsetur Selaset- ursins er í húsi Sigurðar Pálmasonar þar sem löngum var rekin verslun. Í Selasetri Íslands má sjá margvíslega muni sem tengj- ast selveiðum og nýtingu sela, myndir og teikningar af selum og margs konar fróð- leik um þær tvær selategund- ir sem eiga heimkynni við Ís- land, landsel og útsel. Einnig er þar fróðleikur um aðra seli sem hingað koma sem flæk- ingar. Með safninu er leitast við að fræða gesti um seli og búsvæði þeirra við landið og hvernig unnt er að umgang- ast þá. Nefna má að á safninu eru nokkrir uppstoppaðir sel- ir, sem Náttúrufræðistofnun Íslands hefur látið Selasetrinu í té. Sturla Böðvarsson flutti ávarp við opnun setursins auk þess sem Einar K. Guð- finnsson sjávarútvegsráðherra sagði nokkur orð og kvaðst hafa áhuga á því að Hafrann- sóknastofnun kæmi við sögu rannsókna á selum. Fram kom hjá Karli Sigurgeirssyni að fjölskylda Sigurðar Pálma- sonar væri mjög ánægð með að Selasetur Íslands skyldi hafa fengið inni í húsinu sem hefði verið smekklega og vel endurnýjað, en í þessum fyrsta áfanga hefur Selasetr- inu verið fundinn staður á jarðhæð hússins. Við opnun Selasetursins komst Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, m.a. svo að orði:, Íslendingar hafa nýtt seli um aldir „Selurinn hefur verið mikil- vægur þáttur í búsetu okkar og Íslendingar hafa nytjað selastofna við landið um ald- ir. Landselur og útselur hafa veitt birtu og yl í ýmsum skilningi. Þessar nytjar af selnum hafa verið misjafnlega nauðsynlegar eftir árferði og það þótti líka kannski mis- jafnlega fínt eftir landshlutum eða jafnvel efnahag manna hvort nýting á sel væri aðeins bjargráð fátæka mannsins eða eðlileg nýting og sjálfsögð eins og með aðra dýrastofna okkar. Í seinni tíð hafa kannski tískan og náttúru- verndin mest að segja um hvort eða hvernig við nýtum selina. En við getum verið sammála um að Íslendingar eru ekki lengur háðir því að nýta seli sér til lífsviðurværis. Við getum hins vegar um- gengist selina og tilgangur Selasetursins er líka að ýta undir þau einstöku tækifæri sem við höfum á Vatnsnesi til að skoða selina í náttúrulegu umhverfi sínu. Selalátur eru víðast hvar aðgengileg og er mikilvægt í þessu sambandi að við stýrum umferð um þessi svæði og takmörkum rask á viðkvæmum vistkerf- um.“ Opið alla daga kl. 9-18 Í ávarpi Einars K. Guðfinns- sonar, sjávarútvegsráðherra, kom fram að Hafrannsókna- stofnunin hefði áhuga á að koma að rannsóknasamstarfi við setrið í einhverri mynd. Það sem af er hefur verið ágætis aðsókn að Selasetrinu, bæði af Íslendingum og er- lendum ferðamönnum. Setrið er opið alla daga kl. 9-18. Einstakt tækifæri til selaskoðunar á Vatnsnesi - sagði samgönguráðherra við opnun Selaseturs Íslands á Hvammstanga Selasetrið hefur fengið til afnota nokkra uppstoppaða seli sem setja skemmtilega mynd á sýninguna. Í Selasetrinu á Hvammstanga er brugðið upp ýmsum myndum af selum við Ísland og nýtingu selakjöts og -skinna í gegnum tíðina. aegirjuni06qxp 7/7/06 1:17 PM Page 17

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.