Ægir - 01.06.2006, Side 20
20
S K E M M T I F E R Ð A S K I P
Skemmtiferðaskipum til Ís-
lands hefur fjölgað ár frá ári.
Skipin hafa líka verið að
stækka og því hefur farþegum
skipanna fjölgað mjög. Þetta
þýðir töluverða aukningu í
tekjum þeirra hafna sem taka
á móti þessum skipum og
ekki síður aukast tekjur
þeirra fyrirtækja sem þjónusta
farþegana og skipin. Nefna
má flutningafyrirtæki, verslan-
ir, olíusölufyrirtæki o.fl. Frá
árinu 2000 til 2005 varð
hvorki meira né minna en
138% fjölgun farþega
skemmtiferðaskipa til Akur-
eyrar. Þessi tala segir allt
sem segja þarf um mikinn
vöxt í þessum geira ferðaþjón-
ustunnar.
Stóraukning tekna af
skemmtiferðaskipum
Það segir sína sögu að 20% af
tekjum Akureyrarhafnar, sem
er næststærsta mótttökuhöfn
skemmtiferðaskipa á Íslandi,
á eftir Reykjavíkurhöfn, eru
vegna komu skemmtiferða-
skipa til bæjarins. Fyrir fimm
til sex árum voru tekjur af
skemmtiferðaskipum aðeins
um 5% af heildartekjum Ak-
ureyrarhafnar. Með öðrum
orðum; skemmtiferðaskipin
eru farin að vega þungt í
rekstri Akureyrarhafnar og
það á líka við um fleiri hafn-
ir, t.d. má nefna mikla fjölgun
skemmtiferðaskipa til Ísa-
fjarðar. Af öðrum höfnum
sem taka á móti skemmti-
ferðaskipum má nefna
Grundarfjörð, Keflavík, Húsa-
vík, Seyðisfjörð og Vest-
mannaeyjar.
77 skip til Reykjavíkur - 57 til
Akureyrar
Í það heila koma 77
skemmtiferðaskip til Reykja-
víkur í sumar, en til Akureyr-
ar koma 57 skip. Aldrei áður
hafa jafnmörg skip komið til
Akureyrar og þar af leiðandi
er um metfjölda farþega að
ræða til bæjarins.
Stór hluti farþega sem
kemur með skemmtiferða-
skipum til Akureyrar fer upp
í rútur við skipshlið og fer í
stuttar skoðunarferðir út fyrir
bæinn, vinsælust er ferð aust-
ur að Goðafossi og í Mý-
vatnssveit. En alltaf er þó
þónokkur stór hópur fólks
sem lætur sér nægja að skoða
Akureyri. Stærsta skip þessa
sumars kom til Akureyrar 3.
júlí sl., Costa Atlantica, sem
er 85.619 brúttórúmlestir að
stærð, en þetta er stærsta skip
sem nokkru sinni hefur kom-
ið til Akureyrar.
Í 57 skemmtiferðaskipum
sem koma til Akureyrar í
sumar eru samtals 44 þúsund
farþegar og um 22 þúsund
manns í áhöfnum - heildar-
fjöldi í þessum skipum er því
um 66 þúsund manns.
Markvisst markaðsstarf skilar
sér
Pétur Ólafsson, skrifstofustjóri
Akureyrarhafnar, segir að
markvisst markaðsstarf Cruise
Iceland, sem er samráðsvett-
vangur þeirra hafna hérlendis
sem taka á móti skemmti-
ferðaskipum, hafi verið að
skila þessari aukningu í kom-
um skemmtiferðaskipa til Ís-
lands. Pétur á ekki von á því
að aukningin verði hlutfalls-
lega næstu ár í takti við þá
aukningu sem hefur orðið
síðustu árin, en hann býst þó
við enn frekari aukningu.
Bendir Pétur á að nú sé verið
að smíða mörg stór skemmti-
ferðaskip og vitað sé að ein-
hver þeirra muni leggja leið
sína hingað á norðurslóðir á
næstu árum. Það megi því
allt eins gera ráð fyrir fjölgun
stórra skipa. Í því sambandi
segist Pétur vita til þess að
von sé á 110 þúsund brúttó-
rúmlesta skipi til Akureyrar
næsta sumar, Grand Princess,
sem verður þá 25 þúsund
brúttórúmlestum stærra skip
en það stærsta í sumar.
40% farþega eru Þjóðverjar
„Höfnin ræður vel við þessa
aukningu, en það er hins
vegar spurning um ýmsa aðra
þjónustu fyrir fólkið. Ég nefni
salernisaðstöðu, sem þyrfti að
bæta úr, og þá er óneitanlega
orðið töluvert erfitt að fá
20% af tekjum
Akureyrarhafnar af
skemmtiferðaskipum
Þann 19. júní sl. komu tvö skip til Akureyrar, Albatros og Mona Lisa. Akureyrarhöfn hefur markvisst unnið að því síðustu ár að bæta aðstöðu til móttöku skemmtiferða-
skipa.
aegirjuni06qxp 7/7/06 1:17 PM Page 20