Ægir - 01.06.2006, Blaðsíða 25
25
S V I P M Y N D
Nafn og starf: Hannes Sig-
urðsson útgerðarmaður og
framkvæmdastjóri Fiskiðjunn-
ar Vers í Þorlákshöfn
Aldur: 56 ára.
Fjölskylduhagir: Giftur Þór-
hildi Ólafsdóttur og eigum
tvö uppkomin börn.
Ferill í sjávarútvegi: Ég
byrjaði fimmtán ára til sjós,
þá var mér af góðum mönn-
um leyft að vera þrjár vikur á
síldarbát. Seinna var ég sum-
arpart á humar en af alvöru
byrjaði ég í þessu í kringum
tvítugt og var þá háseti hér á
Þorlákshafnarbátum. Þetta
leiddi til þess að ég dreif mig
í Stýrimannaskólann. Skip-
stjóri var ég í tólf ár eða svo,
lengst á eigin bát, Jóhönnu
ÁR 206. Síðan kom ég í land
og hef nú í um tuttugu ár
verið útgerðarmaður og fram-
kvæmdastjóri Fiskiðjunnar
Vers í Þorlákshöfn, þar sem
við einbeitum okkur að salt-
fiskvinnslu.
Minnisstæð aflahrota: Fyrir
tíma kvótakerfisins meðan
menn gátu veitt nánast ótak-
markað voru aflahroturnar
hér við suðurströndina stund-
um ótrúlegar. Um páskaleytið
var landburður af fiski, ekki
var óalgengt að eftir daginn
væru menn að fá þrjátíu til
fjörutíu tonn af fiski á sjötíu
til áttatíu tonna bátum. Þessir
tímar eru sveipaðir ævintýra-
ljóma, en mikið skelfilega var
maður stundum þreyttur eftir
daginn. En það er fallegt þeg-
ar vel veiðist, eins og gömlu
mennirnir sögðu.
Fisk á disk: Steikt ýsa með
kartöflum og laukfeiti er allra
besti matur sem ég fæ. Þetta
er kjarngóður íslenskur heim-
ismatur, nokkuð sem ég gæti
hugsað mér í hvert mál, satt
að segja. Hins vegar er þetta
alltof sjaldan á borðum, enda
er fólk endalaust að spá í lín-
urnar.
Verkefnin framundan:
Humarvertíðinni er að ljúka
og þá fara bátarnir tveir sem
ég geri út, Jóhanna og Sand-
víkingur ÁR 14 í slipp. Síðan
ætla ég sjálfur að reyna að
komast eitthvað í sumarfrí, til
dæmis í veiðitúra í Sogið og
Rangárnar.
Hvalveiðar eða friðun:
Hvalveiðar - án nokkurs hiks.
Mikilvægt er að halda jafn-
vægi í lífríkinu og þess vegna
eru hvalveiðar svo nauðsyn-
legar. Allar rannsóknir sýna
að hvalurinn étur ókjörin öll
af þeim nytjastofnum sjávar
sem eru okkur Íslendingum
mikilvægastir og sem betur
fer virðist eitthvað vera að
rofa til með að við hefjum
veiðar að nýju, samanber þá
niðurstöðu sem fékkst á
fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins
á dögunum.
Er lífið saltfiskur: Að sjálf-
sögðu og þar gilda engar
málamiðlanir. Það var víst
Halldór Laxnes sem sagði í
Sölku Völku að saltfiskur
væri inntak tilverunnar og
einhvertíma endur fyrir löngu
skrönglaðist ég í gegnum þá
bók. Annars les ég sorglega
lítið, mest af mínum tíma fer í
að verka saltfisk.
Hvað þarf sjávarútvegur-
inn helst í dag: Óskalistinn
er afar langur og þegar helstu
atriði á lista dagsins í dag
tæmast verða mörg önnur
komin í staðinn. Í raun þarf
sjávarútvegurinn fyrst og síð-
ast frelsi og færri boð og
bönn, til að geta vaxið og
dafnað.
Menn að mínu skapi: Skip-
stjórar eins og Eggert Gísla-
son á Gísla Árna, Haraldur
Ágústsson á Reykjaborginni
og fleiri þeim líkir voru hetjur
bernsku minnar. Fyrr á tíð
ýttu fjölmiðlar líka undir að
þessir menn yrðu goðsagnir,
sakir úthalds, dugnaðar og
aflasældar. Ég ber alltaf mikla
virðingu fyrir þessum mönn-
um og ævistarfi þeirra.
Hvað er í saltpæklinum: Í
pækli höfuðs míns er alltaf
hugmynd um útflutning á
saltlausum harðfiski. Í raun-
inni er búið að þróa þessa
framleiðslu en það strandar
allt á markaðsstarfi; að þeir
sem því eiga að sinna kýli á
þetta og klári málið.
Hafið bláa hafið hugann
dregur: Ég og Þórhildur eig-
um og starfrækjum veitinga-
staðinn Hafið bláa sem stend-
ur við ósa Ölfusár. Reksturinn
hefur gengið vel hingað til og
aðsóknin fer stöðugt vaxandi.
Sumarið er háannatími og
raunar er ferðamannatíminn
alltaf að lengjast. Framtíðin
mun því skera úr um hvernig
til tekst með þennan rekstur,
sem er einskonar gæluverk-
efni okkar. -sbs
Ævintýralegar
aflahrotur
Hannes Sigurðsson, útgerðarmaður í Þorlákshöfn.
aegirjuni06qxp 7/7/06 1:17 PM Page 25