Ægir - 01.06.2006, Síða 30
30
S K I P A S M Í Ð I
Tengsl STS Teiknistofu og
Skipsteknisk AS í Álasundi
hafa leitt til þess að nú hefur
verið ákveðið að Þormóður
rammi-Sæberg láti smíða tvö
fullkomin togveiðiskip sam-
kvæmt teikningu frá Skips-
teknisk AS. Nú þegar hefur
eitt skip í Noregi verið smíðað
samkvæmt þessari sömu
teikningu, Vesttind, sem er
gert út frá Álasundi, og hefur
það reynst frábærlega vel.
Bjarni Ásmundsson segist
lengi hafa unnið mikið fyrir
Þormóð ramma-Sæberg og
hugmyndin að nýsmíði fyrir
fyrirtækið hafi borið á góma í
samtölum hans við forráða-
menn fyrirtækisins. „Ég sagði
þeim að ástæðulaust væri að
ég eyddi allt að einu ári í það
að hanna fyrir þá nýtt skip,
með tilheyrandi kostnaði,
þegar til væru úti í Noregi
teikningar af skipi sem væru
mjög í takt við það sem þeir
vildu fá. Þeir samþykktu að
skoða þetta og innan fárra
daga var málið klárt og kom-
ið á góðan rekspöl,“ segir
Bjarni.
Nú þegar hefur verið
samið um smíði skipanna í
skipasmíðastöðinni Solstrand
í Noregi en árið 2004 var skip
eftir sömu teikningu smíðað
þar eins og áður segir. Skipa-
smíðastöðin Solstrand hefur
því aflað sér góðrar þekking-
ar á smíði slíks skips sem
kemur bæði henni og Þor-
móði ramma-Sæbergi til góða
við smíðina. Vesttind, sem
áður er nefndur, hefur bæði
rækju- og bolfiskvinnslu um
borð, hefur reynst gríðarlega
vel, að sögn Bjarna. Skipið er
í eigu norska útgerðarmanns-
ins Kjell Inge Rökke og
stundar m.a. rækjuveiðar við
Svalbarða og bolfiskveiðar í
Barentshafi.
„Um er að ræða um 70
metra löng togveiðiskip,
14,60 metra breið. Þetta eru
fullkomin flakaveiðiskip og
hönnunin tekur mið af því að
rekstur þeirra verði eins hag-
stæður og nokkur kostur er
og má þar nefna að allt spil-
kerfi er rafmagnsdrifið, að-
eins spilkranar eru með
glussa, skipin koma til með
að brenna þykkustu svartolíu
sem hægt er að finna, sem
auðvitað er mun hagkvæmari
kostur en hefðbundin diesel-
olía eins og talað var um hér
að framan. Í skipunum verð-
ur ný tegund af skrúfuhringj-
um og skrúfublöðum, sem
hefur skilað mjög góðum ár-
angri og við höfum vissu fyrir
því að þessi tegund hringa og
skrúfublaða er að skila allt að
10-15% olíusparnaði við fullt
álag. Skipin verða sérstaklega
styrkt til þess að sigla í ís.“
Til þess að varpa ljósi á
stærð hinna nýja skipa Þor-
móðs ramma-Sæbergs má
nefna að þau eru í „stærðar-
flokki Vilhelms Þorsteinsson-
ar EA,“ eins og Bjarni orðar
það. „Þessi nýju skip eru
miklu stærri og fullkomnari
en þau fjögur skip sem Þor-
móður rammi-Sæberg gerir út
í dag og afkastageta þeirra er
töluvert meiri en samanlögð
Ákveðið að smíða tvö ný togskip
fyrir Þormóð ramma-Sæberg
Fyrirkomulagsteikning hinna nýju togara sem Þormóður rammi-Sæberg lætur
smíða fyrir sig í Noregi.
Sigurbjörgin, frystiskip Þormóðs ramma-Sæbergs, að koma fánum prýdd inn í höfnina í Ólafsfirði.
aegirjuni06qxp 7/7/06 1:17 PM Page 30