Ægir - 01.06.2006, Page 31
31
S K I P A S M Í Ð I
afkastageta núverandi fjög-
urra skipa félagsins,“ segir
Bjarni aðspurður um hversu
stór þessi skip séu. „Um borð
er rými fyrir þrjátíu manna
áhöfn. Sjálfvirknin um borð
verður mikil og þá ekki síst á
millidekki, og þægindi fyrir
mannskapinn verða eins og
best verður á kosið. Þannig
verða tölvu- og sjónvarpsskjá-
ir og internettengingar í öll-
um vistarverum skipverja
o.s.frv. Samandregið eru
þetta að mínu mati stórglæsi-
leg og vel heppnuð skip.“
Þegar hefur verið samið
um smíði umræddra skipa
við skipasmíðastöðina Sol-
strand AS í Noregi, eins og
áður segir, og verða bygging-
arnúmer þeirra nr. 86 og 87.
Bjarni segir að Skipsteknisk
hafi náð hagstæðum samn-
ingum við Solstrand, sem
fyrst og fremst komi til af ná-
inni samvinnu milli fyrirtækj-
anna, en Solstrand hefur
margoft smíðað skip sem
Skipsteknisk hefur hannað.
„Solstrand er í þessu dæmi
fyllilega samkeppnisfært í
verði við skipasmíðastöðvar á
Spáni, í Þýskalandi, Chile eða
í Póllandi. Til Taiwan eða
Kína höfðu menn ekki áhuga
að fara með smíði þessara
skipa.“
Af búnaði um borð má
nefna að aðalvél skipanna og
skrúfubúnaður verður af
gerðinni Wärtsila, 6000 kW,
spilkerfi verður frá Aker-
Brattvaag og íbúðir verða
innréttaðar í sérsmíðuðum
einingum. Þá er gert ráð fyrir
að fiskileitartæki verði að
stærstum hluta frá hinum
ýmsu framleiðendum í Nor-
egi.
Hvort skip kemur til með
að geta borið á bilinu 800-
1000 tonn af afurðum og má
reikna með að skipin verði á
bilinu 35-40 daga í hverjum
túr. Ætla má að aflaverðmæti
skipanna á ári verði allt að 2
milljarðar miðað við núver-
andi fiskverð og gengi.
Fyrra skipið á að afhenda í
lok árs 2008 og það síðara
nokkrum mánuðum síðar.
Kleifaberg, frystiskip Þormóðs ramma-Sæbergs, á miðunum.
Eitt af núverandi skipum Þormóðs ramma-Sæbergs - Mánaberg ÓF. Myndir: Björn Valur Gíslason.
aegirjuni06qxp 7/7/06 1:17 PM Page 31