Ægir - 01.06.2006, Blaðsíða 33
33
F I S K I S T O F N A R N I R
og í upphafi árs 2007 er áætl-
að að hann verði 745 þús.
tonn. Árgangur 2001 er met-
inn næst minnsti árgangur
sem fram hefur komið síðan
1955, aðeins 61 milljón nýlið-
ar, en árgangur 2002 er met-
inn 164 milljónir. Árgangur
2003 er lítill eða 127 milljónir
og árgangur 2004 mjög lítill
eða um 88 milljónir þriggja
ára nýliða. Fyrsta mat á ár-
gangi 2005 bendir til að hann
gæti verið um 166 milljónir.
Aðgerða er þörf
Hafró telur að í ljósi þess að
ekki hafi tekist að ná mark-
miðum um nýtingu þorsk-
stofnsins á undanförnum
árum, m.a. vegna hærra
veiðihlutfalls en mælt hefur
verið með, sé ástæða til að
benda á nauðsyn þess að
grípa til aðgerða svo von sé á
að betri árangur náist og
stofninn nái fyrri styrk. Eðli-
legt sé í þessu sambandi að
stjórnvöld setji sér markmið
við endurreisn stofnsins og
dragi úr afla næstu ára svo
hrygningarstofn nái að vaxa í
þá stærð sem gefur langtíma
hámarksafrakstur, 350-400
þús. tonn.
„Hafrannsóknastofnunin
leggur til að gripið verði til
markvissra aðgerða með setn-
ingu aflamarks og endur-
skoðun aflareglu. Jafnframt er
lagt til að núgildandi reglur
um hámarksmöskvastærð í
netum verði í gildi enn um
sinn. Auk þess leggur stofn-
unin til, í ljósi þess að hlutfall
stórfisks í stofninum hefur
lækkað mikið á undanförnum
áratugum, að farið verði sér-
staklega yfir það hvort þörf
sé á frekari verndunaraðgerð-
um á hrygningarslóðum,“
segir í ástandsskýrslu Hafró.
Óvissa með vöxt ýsunnar
Ýsustofninn hefur verið að
styrkjast á undanförnum
árum. Á síðasta ári var heild-
arafli ýsu 97 þúsund tonn,
sem var 15% aukning frá
fyrra ári og er þetta mesti
ýsuafli í fjóra áratugi. Athygl-
isvert er að nú eru um 20%
heildaraflans fyrir Norður- og
Austurlandi ýsa, en hún sást
varla á þessum slóðum hér á
árum áður. Gert er ráð fyrir
að afli yfirstandandi árs verði
110 þúsund tonn.
Samkvæmt gögnum Hafró
eru ýsuárgangar 1998-2000,
2002 og 2003 allir stórir, 2001
árgangurinn lítill, en árgang-
arnir 2004 og 2005 nálægt
meðallagi.
Hafró segir ákveðna
óvissuþætti um stofnmat ýsu.
„Mesta óvissan í núverandi
stofnmati lýtur þó ekki að
stofnstærð heldur því hvernig
ýsan kemur til með að vaxa á
árunum 2005-2008. Ekki er
heldur útilokað að brottkast á
árunum 2006 og 2007 geti
haft áhrif á þróun stofnstærð-
ar en umfang brottkasts fer
m.a. eftir útbreiðslu árgangs
2003 miðað við aðra árgan-
ganga.
Ef forsendur um áætlaðan
vöxt ganga eftir mun stór
hluti árgangs 2003 verða
rúmu hálfu ári á eftir meðal-
árgangi í vexti og stór hluti
hans vera um 40 cm að lengd
árið 2007. Hann verður þá að
miklu leyti undir viðmiðunar-
stærð og ef árgangurinn held-
ur sig á svipuðum svæðum
og eldri fiskur gæti brottkast
orðið verulegt og skyndilok-
anir tíðar á næsta ári Á árinu
2008 ættu brottkast og
skyndilokanir vegna árgangs
2003 hins vegar að verða að
mestu úr sögunni.“
Hafró lagði til 95 þúsund
tonna hámarksafla í ýsu á
næsta fiskveiðiári, en sjávar-
útvegsráðherra ákvað að
leyfa 10 þúsund tonna meiri
afla, 105 þúsund tonn.
Áfram sama sókn í ufsann
Á síðasta ári var ufsaaflinnn
um 69 þúsund tonn, sem er
13% aukning heildarafla frá
árinu 2003. Ufsaaflinn hefur
aukist um 5-12 þúsund tonn
á ári undanfarin fimm ár. Ríf-
lega 4% ufsaaflans á árinu
2005 veiddust í net og jókst
netaafli um þriðjung frá árinu
2004. Hlutdeild botnvörpu í
heildarafla árið 2005 var ríf-
lega 85% en hefur lengst af
verið yfir 60%.
Að því gefnu að ufsaaflinn
á þessu ári verði nálægt
heildaraflamarki fiskveiðiárs-
ins 2005-2006, um 80 þús.
tonn, er reiknað með að
veiðistofn ufsa í ársbyrjun
2007 verði um 305 þús. tonn
og að hrygningarstofn verði
um 136 þús. tonn. Hafró
bendir þó á að hafa beri í
huga að nokkur óvissa sé um
mat á stærð stofnsins, vegna
þess að stór, illa ákvarðaður
árgangur, 2002, sé að bætast
við stofninn og óvissa ríki um
þyngd og kynþroska.
Nýliðun ufsasafnsins var
léleg á árunum 1990-1998, en
Hafró hefur eins og komið hefur fram miklar áhyggjur af þorskstofninum. Stofnunin vill að dregið
verði úr sókninni og þannig verði hafin markviss uppbygging stofnsins til lengri tíma.
aegirjuni06qxp 7/7/06 1:17 PM Page 33