Ægir - 01.06.2006, Qupperneq 37
37
S L Y S A V A R N A S K Ó L I N N
T Æ K N I
Eins og venja er til er Sæ-
björginni, skipi Slysavarna-
skóla sjómanna, siglt hringinn
í kringum landið í sumar og
hefur skipið viðkomu á
nokkrum höfnum þar sem
haldin eru námskeið fyrir sjó-
farendur.
Sumarferðin hófst í Grund-
arfirði og síðan var haldið til
Þorlákshafnar og þaðan aust-
ur á Djúpavog og í Fjarða-
byggð. Á Akureyri var nám-
skeið fyrr í þessum mánuði
og að því loknu fór Sæbjörg-
in í slipp á Akureyri. Þráður-
inn verður síðan tekinn upp í
ágúst og haldin nokkur nám-
skeið á Akureyri, áður en
haldið verður til Ísafjarðar og
ferðinni lýkur síðan aftur
með öðru námskeiði í Grund-
arfirði.
Almennt er um að ræða
endurmenntunarnámskeið,
en á Djúpavogi var þar að
auki boðið upp á sérstakt
námskeið fyrir smábátasjó-
menn.
Hilmar Snorrason, skóla-
stjóri Slysavarnaskóla sjó-
manna, segir að fjölmargir
sjómenn sæki nú þau endur-
menntunarnámskeið sem eru
í boði, en frá og með næstu
áramótum tekur gildi reglu-
gerð sem kveður á um að
menn fá ekki lögskráningu
nema að hafa tekið endur-
menntunarnámskeið á fimm
ára fresti að lágmarki.
HB Grandi hf. hefur samið við
Marel hf. um kaup á nýrri teg-
und vinnslukerfis fyrir ufsa.
Kerfið er það fyrsta sinnar
tegundar í heiminum og stór-
eykur sjálfvirkni, afköst, nýt-
ingu og verðmæti vinnslunnar.
Áætlað er að verðmæti samn-
ingsins sé um 60 milljónir
króna.
Þessi tækni felur það í sér
að beingarðurinn er dreginn
út með sjálfvirkum hætti í
stað hefðbundins beingarðs-
skurðar. Til að tryggja bein-
lausa afurð og viðhalda gæð-
um eru öll flök röntgenskoð-
uð á eftir beinatínslu. Með
þessari aðferð verður af-
skurður minni og nýtist því
meira af fiskholdinu í verð-
mætari afurðir.
Helsti ávinningur við
rekstur línunnar er eftirfar-
andi:
1. Betri nýting vinnuafls
og þar af leiðandi afkasta-
aukning.
2. Betri nýting í aðalafurð-
ir, sem eykur tekjur á hvert
hráefniskíló.
3. Aukin heildarnýting
með hraðara gegnumstreymi
hráefnis.
4. Aukin gæði með
röntgeneftirliti og minni með-
höndlun.
5. Möguleiki á sívinnslu.
Hin nýja vinnslulína hefur
verið í þróun í 5 ár og hófst
með samstarfsverkefni
norskra fiskvinnslufyrirtækja
og Marel hf. um aukna sjálf-
virkni í þorskvinnslu.
Vinnslulínan hefur undan-
farna mánuði verið aðlöguð
fyrir ufsa í samstarfi við HB
Granda með mjög góðum ár-
angri og hefur nú verið keyrð
með fullum afköstum síðustu
vikur.
Slysavarnaskóli sjómanna:
Hringferð
Sæbjargar
Nokkrir af þátttakendum á námskeiði Slysavarnaskóla sjómanna á Djúpavogi í
júní sl. Myndir: Birgir Ágústsson/www.djupivogur.is
Á námskeiðum Slysavarnaskóla sjómanna eru þátttakendur þjálfaðir m.a. í að
takast á við eld og reykköfun.
Skjámynd af fiskflaki með beinum í, við gæðaskoðun
Við nýju vinnslulínuna. Eggert B Guðmundsson, forstjóri HB Granda, Hörður Arnar-
son, forstjóri Marels hf ., Torfi Þorsteinsson, framleiðslustjóri HB Granda og Jón H.
Haraldsson, ráðgjafi í sjávarútvegi, Marel hf.
Nýtt vinnslukerfi HB Granda fyrir ufsa
aegirjuni06qxp 7/7/06 1:18 PM Page 37