Ægir - 01.06.2009, Blaðsíða 14
14
F I S K M A R K A Ð I R
Þinganes, nýta sér einnig að
selja ákveðnar tegundir aflans
á mörkuðunum og þannig
eru þarfirnar mismunandi
milli viðskiptavina.
Lykillinn að því að gera
sem flestum kleift að nýta sér
markaðina er tölvukerfið hjá
Reiknistofu fiskmarkaða sem
gerir að verkum að menn
þurfa ekki að fara úr húsi
heldur geta þeir látið tölvuna
á borðinu hjá sér vakta mark-
aðinn og láta vita þegar inn í
kerfið er tilkynnt um fisk sem
viðkomandi hefur hug á.
„Oftast eru það dýrustu starfs-
mennirnir sem sjá um inn-
kaupin í fyrirtækjunum og
skiptir miklu fyrir fyrirtækin
að þeir þurfi sem minnst að
fara af vinnustaðnum til að
kaupa. Við lögðum mikla
vinnu í að þróa þetta sölu-
kerfi í gegnum Netið með
belgískum sérfræðingum og
það hefur að mínu mati tekist
frábærlega vel.“
Mun betra ár en búist var við
Hjá Fiskmarkaði Suðurnesja
hefur árið verið óvenju gott
það sem af er og segir Ragnar
að um markaðinn hafi farið
um eitt þúsund tonnum meira
en fyrri hluta ársins 2008.
„Þessi aukning núna er ótrú-
lega mikil og verðið er tals-
vert hærra en í fyrra. Það
skapast meðal annars vegna
gengis krónunnar. Hún er að
hjálpa til hjá þeim sem eru að
flytja út ferska fiskinn með
flugi, sem eru, eins og ég
sagði áðan, stærstur hópur
þeirra sem hefur viðskipti á
markaðnum hjá okkur. Ef
fram fer sem horfir verður
þetta gott ár,“ segir Ragnar en
seljendur hjá markaðnum
skipta hundruðum yfir árið.
„Ég verð að segja eins og
er að þetta ár er til muna
betra en ég átti fyrirfram von
á og það á við um a.m.k. alla
stærri markaðina á landinu,“
segir Ragnar Kristjánsson að
lokum.
Nokkrir viðskiptavinir mæta á
gólfið hjá Fiskmarkaði Suður-
nesja á degi hverjum og ganga
þar frá sínum viðskiptum.
Sitja við tölvuna og fylgjast
með hvernig klukkan rúllar
fram og stimpla inn tilboð
þegar þeir hitta á hagstætt
verð. Í þessum hópi er Hall-
grímur Arthúrsson sem á og
rekur Verslunarfélagið Ábót í
Sandgerði. Hann hefur mörg
undanfarin ár verið í samstarfi
við skoska fiskvinnslufyrirtæk-
ið Whitelink Seefood í Freser-
burgh í Skotlandi og útvegar
Skotunum skötusel, steinbít
og karfa. Fiskurinn er fluttur
utan sjóleiðina og fullunninn
í Skotlandi. Síðan er hann
seldur í verslanir og veitinga-
hús á meginlandi Evrópu.
„Skötuselurinn hefur komið
mjög sterkt inn undafarið og
veiðist víða. Áður hélt hann
sig fyrst og fremst hér við
sunnanvert landið en er núna
nánast um allan sjó, meðal
annars fyrir norðanverðu
landinu. Það er breyting frá
því sem áður var sem menn
rekja til þess að sjórinn sé
hlýrri en áður var,“ segir Hall-
grímur og bætir við að fram-
boðið á fiski hafi að undan-
förnu verið ágætt. Það eigi
meðal annars við um skötu-
selinn, en algengt kílóverð á
fiskmörkuðum landsins, sem
eru samtengdir í einu heild-
stæðu tölvukerfi, hafi gjarnan
verið 450 til 500 kr. Þetta sé
dýr fiskur, gjarnan boðinn á
bestu veitingastöðum og sú
staðreynd ráði miklu um
verðlagið. Hallgrímur Arthúrsson hjá Verslunarfélaginu Ábót.
Hallgrímur Arthúrsson mætir á fiskmarkaðinn daglega til að kaupa
fyrir fyrir fiskvinnslufyrirtæki í Skotlandi:
Á höttunum eftir skötusel,
steinbít og karfa
Ragnar með myndarlegan skötusel. Sá fiskur er eftirsóttur á markaðnum.