Ægir - 01.06.2009, Qupperneq 30
30
F R É T T I RH A F N I
Jafn stígandi hefur undanfarin
ár verið í fjölda skemmtiferða-
skipa sem koma til Ísafjarðar.
Á þessu sumri verða skipin 28
en voru 21 á síðasta ári. Með
þessu er Ísafjörður þriðji fjöl-
sóttasti áfangastaður skemmti-
ferðaskipa sem koma til lands-
ins, næst á eftir Reykjavík og
Akureyri. „Starfsumhverfið hef-
ur breyst mikið undanfarin ár.
Minni afli kemur á land en áð-
ur var. Á síðustu dögum höfum
við þó séð ákveðna breytingu
með strandveiðunum. Þær
hleypa lífi í allt,“ segir Guð-
mundur Kristjánsson, hafnar-
stjóri Hafna Ísafjarðarbæjar.
Hafnir Ísafjarðarbæjar urðu
til, sem sjálfstætt fyrirtæki,
þegar sveitarfélög á norðan-
verðum Vestfjörðum samein-
uðust í eitt árið 1996. Undir
hatti fyrirtækisins eru hafnirn-
ar á Ísafirði, Suðureyri, Flat-
eyri og Þingeyri. Í fyrra var á
þessum fjórum stöðum land-
að um 18 þúsund tonnum af
afla, en 27 þúsund tonnum
árið 2006. Þar ræður meðal
annars skerðing í þorskveiði-
heimildum árið 2007 en einn-
ig breytingar á útgerðar-
mynstri.
Þrír skuttogarar
Sé litið á stöðuna í einstaka
höfnum þá var um 13.000
tonnum af afla landað á Flat-
eyri árið 1997, eða á þeim
tíma þegar skelfiskvinnsla þar
stóð í blóma. Síðar dróst
vinnslan saman en náði sér
síðan aftur á strik þegar um-
svif Kambs hf. voru sem mest.
Árið 2006 komu til dæmis um
10.000 tonn af afla, mest bol-
fiski, þar á land. Kambur
hætti starfsemi árið 2007 sem
þýddi algjört hrun í lönduð-
um afla og í fyrra var á Flat-
eyri aðeins landað um 1.000
tonnum. Nú er hins vegar
nýtt útgerðarfyrirtæki að hasla
sér völl í útgerð á Flateyri,
Eyraroddi, og umsvifin við
höfnina að aukast.
Í tímans rás hafa smá-
bátakarlar í talsvert miklum
mæli róið frá Suðureyri og
gjarnan tíu til fimmtán bátar
yfir sumartímann, að sögn
hafnarstjórans. Á Suðureyri
var í fyrra landað liðlega
3.000 tonnum af afla sem í
verulegum mæli fer í vinnslu
þar á staðnum. Á Þingeyri
komu á land í fyrra um 1.000
tonn af afla. Það er verulegur
samdráttur frá fyrri árum, eða
frá þeim tíma þegar byggða-
kvótaáætlun Ísafjarðarbæjar
og Vísis hf. var í gildi en um
12.000 tonnum af afla landað
á Þingeyri árið 1998. Síðan þá
hefur verið æði rokkandi hve
mikill afli berst árlega á land í
kauptúninu við Dýrafjörð, þar
sem Vísir hf. starfrækir fisk-
vinnslu þangað sem afla er
Skemmtiferðaskip og smábátar vaxtarbroddar í Ísafjarðarhöfnum:
Strandveiðin
hleypir lífi í allt
Frá Þingeyri. Þingeyrarhöfn er hluti Hafna Ísafjarðarbæjar.
Guðmundur Kristjánsson, hafnarstjóri Hafna Ísafjarðarbæjar.