Tímarit Máls og menningar - 01.03.1939, Qupperneq 21
bækur um ýmis efni. Mér hefúr dottið i hug, að félagið ætti
iem fyrst að gefa út nokkurskonar handbók fyrir heimilin. Ætti
sú bók að fjalla um ýmis þau efni, sem einkum viðkoma heim-
iiunum. Vil ég þá tilnefna matargerð, og í sambandi við það
el'nafræði, uppeldismál, þrifnað, garðrækt, trjárækt, reiknings-
færslu fyrir heimili, lögfræðileg efni (nokkurskonar formálabók).
Hér eru aðeins nefnd nokkur atriði af handahófi, en ég hygg,
að bók, sem hefði inni að halda leiðbeiningar um þessi og önn-
ur efni, yrði mjög vel þegin og myndi koma almenningi að
miklu gagni.
Þegar ég minnist á heimilin i sambandi við Mál og menningu,
þá vil ég taka það fram, að mér lízt ágætlega á þá hugmynd
félagsins, að senda félagsmönnum ljósmyndir af málverkum.
Þetta getur orðið til mikillar prýði á heimilum og er mjög við-
eigandi.
Ivristinn E. Andrésson héfur nokkuð fjallað um framtiðarstarf-
semi Máls og menningar, sbr. 2. tbl. 1. árgangs þessa timarits.
Er af þeirri greinargerð ljóst, hvílíkt feikna verkefni bíður fé-
lagsins. Af þeim grundvallarritum, sem þar eru nefnd, vil ég
taka það fram, að ég tel, að félagið ætti að láta bókmennta-
söguna sitja fyrir. Finnst mér það viðeigandi, og að sama skapi
niikil þörf.
Húsavik, 7. febrúar 1939.
Páll Kristjánsson.
Flateyri, 23. jan. 1939.
Mér barst nú fyrir tveim dögum síðasta bók yðar af bókum
ársins 1938.
Vil ég þá nota tækifærið til að þakka ársútgáfuna, og lýsa yfir
því, að hún hefur á engan hátt hrugðizt vonum minum.
Aðaltilefni þessa bréfs er þó það, að samtimis barst mér Tím-
inn, með grein, er her yfirskriftina: „Á íslandsmiðum“, og tel
ég furðu, að blað, sem að standa sæmilega víðsýnir menn, skuli
hirta slíka ritsmíð. Greinin virðist vera rituð sem líking. og er
annarsvegar þorskveiðarnar, en á hinn bóginn Mál og menning
og utgáfustarfsemi þess. Virðast þá Rauðir pennar vera öngull-
inn, en meðfylgjandi bækur beitan, og eigi á þessi veiðitæki að
veiða menn yfir til kommúnismans.
Ég get tekið það fram strax, að ég er ekki kommúnisti, ekki
einu sinni samfylkingarmaður, i þeirri mynd, sem samfylking
Alþýðu- og Kommúnistaflokksins hefur tekizt, en ef ég teldi mig
19