Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1939, Blaðsíða 24

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1939, Blaðsíða 24
átl við liið austurrússneska ríki, t. d. segir í Hauksbók: „Jafet byggði Austur-Rússía, þar sem heitir Kænugarður". Jarisleifur var konungur Kænugarðs, og hið sama faðir hans Valdimar gamli,. koma háðir við Heimskringlu, en Snorri gerir þá konunga i Hólmgarði, Novgorod, þeirri borg gerskri, sem þá mun hafa verið hér þekktust. Mér eru ekki kunnar viðhlítandi skýringar þess að Snorri rangheitir Ivief á islenzku og ruglar þeirri horg: við Novgorod, skal þó benda á fróðlega ritgerð um þessi efni, „hið sagnfræðilega Rússland í norrænum ritum X.—XIV. aldar‘c eftir F. Braun í Afmælisriti til Eugens Mogks (Festschrift fúr Eugen Mogk, Halle 1924). Þar er þvi haldið fram, að óljós vit- neskja sögusagnanna um marga fjarlæga staði þróist í átt til einföldunar, þannig að sá staður, sem fjær er og ókunnarú gleymist smám saman í þágu hins kunnari. Síðari spurningin er þessi: „Hver er sannleikurinn um „erfða- skrá Eenins“?“ Svar: Þetta plagg, sem hefur það aðal-markmið að ófrægja Stalin, var birt í Bandaríkjablaði all-löngu eftir dauða Lenins, og stóð að birtingu þess maður að nafni Eastman. Plaggi þessu hefur verið óspart flíkað af trotskistum, fasistum og hægrikrötum, án þess að sönnur liafi verið færðar á uppruna þess, en engin lík- indi eru til þess, að það sé frá hendi Lenins. H. K. L. Rithöf. Þórbergur Þórðarson og H. K. Laxness. hafa báðir dvalizt erlendis síðan í haust og eru nýkomnir heim. Þórbergur var boðinn til Tj'ekkóslóvakíu til þess að halda þar fyrirlestra um ísland á vegum Esperantó-sambands Tjekkóslóvakíu. Hann var kominn til Kaupmannahafnar, er þeir atburðir gerð- ust i Tjekkóslóvakíu, er hindruðu för hans jiangað. Fjórum dög- um áður en hann ætlaði að leggja af stað frá Höfn, fékk hann skeyti um það, að fyrirlestrarnir yrðu að falla niður vegna ástandsins, sem komið væri í landinu. Dvaldist Þórbergur síðan nokkra mánuði í Kaupmannahöfn og vann þar að samningu nýrrar bókar, sem hann býst við að geta lokið á þessu ári. Sið- 22

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.