Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1939, Side 22

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1939, Side 22
ekki geta lesið og kynnt mér rök og kenningar þeirra manna, er þær stefnur aðhyllast, án þess að snúast þar til fylgis, þá væri það vissulega sú mesta viðurkenning, sem ég gæti veitt þeim á ágæti þeirra. Nei, Mál og menning hefur verið réttilega stofnað og á réttum tíma, og því hefur verið þannig lekið af þjóðinni, að viðtökurnar sýna stórum meiri þroska en fram kemur i umræddri Tímagrein, og vonandi sýnir almenningur þroska sinn enn betur með auknum stuðningi við félagið, þrátt fyrir það, þótt einstaka rödd reyni að sundra þeim samtökum. Það hefur verið sagt, að lýðræðis- og þingræðisskipulagið sé hezta stjórnskipulagið, en krefjist mests þroska almennings til framkvæmda. Þetta munu allir viðurkenna. En sá þroski skap- ast bezt með alhliða fræðslu, jafnt almennri sem pólitískri. Það verður áreiðanlega enginn stoð eða stytta þingræðis og lýðræðis, sem aðeins kynnir sér skoðanir eins flokks. Með ósk um gæfu og gengi félagsins á nýja árinu. Hjörtur Hjálmarsson. Kaflar úr bréfum. Þinganesi í Hornafirði, 1. fehr. 1939. Vísindarit, eins og „Efnisheimurinn“, ná ekki tilgangi sín- um, nema þau sé lesin og rædd fram og aftur. Þar er vafalaust rétta leiðin, að mynda lesliópa. Mér lízt vel á þá hugmynd, að fá Björn Franzson til að ferðast um og hjálpa fólkinu til að brjóta þetta rit inn að kjarna. Hér i Nesjahreppi hefur ekki enn verið myndaður leshópur. En ég skal ábyrgjast Birni marga lilustendur, ef hann fæst til að koma. Það er fallega gert af ykkur að ætla að gefa okkur kost á Andvökum St. G. St. En ekki má heldur liða á löngu, þar til við fáum úrvalsljóð Einars Benediktssönar. Ég er mikill dá- andi beggja þessara skálda. Þó hef ég ekki enn þá getað fengið öll kvæði Einars til lesturs og engin þeirra til eignar. Fleiri munu hafa slíka sögu að segja.---------- Torfi Þorsteinsson. Hreiðri i Holtum 19. fehr. 1939. Frá þvi fyrsta, að bókmenntafélagið Mál og menning var stofn- að, hef ég verið mjög hrifin af því, og sú hrifning eykst við hverja bók, sem kemur út; blessaðar bækurnar minar hafa kom- ið til mín eins og sólargeislar, hingað í sveitaeinveruna .... Um val bókanna næsta ár er ég mjög vel ánægð; sérstak- lega hlakka ég til að fá ljóðin eftir Stephan G. Stephansson, 20

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.