Ægir - 01.07.2012, Page 14
14
Æ G I S V I Ð T A L I Ð
hausana niður í smástykki til
að selja. En heilt yfir má segja
að þessar vörur séu lítið unn-
ar frá því þær fara héðan frá
Íslandi og þar til neytandinn
kaupir á götumörkuðunum,“
segir Katrín og svarar því að-
spurð um hæl að mjög fátítt
sé að einhver vandkvæði
komi upp í þessum viðskipt-
um þó fjarlægðin sé mikil á
markaðssvæðið. „Það er mjög
fátítt og viðskiptavinir okkar
eru afar traustir. Undanfarin
ár hafa einkennst af eftir-
spurn umfram framboð og
við höfum því ekki þurft að
leita eftir nýjum viðskiptavin-
um heldur fyrst og fremst
unnið með aðilum sem við
þekkjum vel til. Verð hefur á
þessum tíma farið hækkandi
en eins og ég sagði áðan þá
er meiri spurning núna hvaða
áhrif verða vegna aukins
framboðs á fiskikótelettum.“
Verðmætur útflutningur
Óhætt er að segja að útflutn-
ingur þurrkaðra fiskafurða til
Nígeríu sé vel merkjanleg
stærð í útflutningstekjum
þjóðarinnar því hann skilaði
um 10 milljörðum króna á
síðasta ári og magnið var þá
tæp 19 þúsund tonn. Fyrstu
sex mánuði þessa árs var út-
flutningurinn til Nígeríu
10.700 tonn að verðmæti 6,7
milljarðar og af þeim tölum
má hæglega sjá aukninguna
milli ára. Sér í lagi hvað varð-
ar verðmætið og það skýrist
ekki síst af aukningum út-
flutningi á fiskikótelettunum.
„Það er líka full ástæða til
að halda því til haga að hér
er um að ræða framleiðslu úr
hráefnum sem fyrr árum var
hent. Á þann hátt má tala um
fiskþurrkunina sem afskap-
lega „græna“ framleiðslu - ef
svo má að orði komast. Út-
flutning sem hefur þróast
mikið á síðustu 20 árum og í
þeirri þróun höfum við hjá
Sölku-Fiskmiðlun verið virkir
þátttakendur með framleið-
endum hér á landi og við-
skiptavinum okkar í Nígeríu.
Og ég sé enga breytingu þar
á næstu árin,“ segir Katrín.
Stærstur hluti þurrkuðu afurðanna er seldur á götumörkuðunum eins og honum er pakkað hér á landi og í smærrri einingum,
allt niður í að hausinn er bitaður niður í lítil stykki.