Ægir - 01.07.2012, Síða 26
26
F R É T T I R
Nú í loks sumars var ráðist í
umfangsmiklar endurbætur í
vinnslusal Godthaab í Nöf í
Vestmannaeyjum og stöðvað-
ist vinnsla í nokkra daga af
þeim sökum. Öll tæki voru
fjarlægð úr vinnslusalnum, ný
gólfefni lögð og síðan komið
fyrir nýrri flæðilínu frá Marel,
samvalsflokkara og pökkunar-
línu en hana átti fyrirtækið
átti raunar fyrir.
Daði Pálsson, verkstjóri hjá
Godthaab í Nöf, segir að með
nýju línunni aukist afkasta-
geta um a.m.k. 20%. „Við
fjölguðum snyrtistæðum í lín-
unni um fjögur frá því sem
var í þeirri gömlu. Þau eru nú
24 talsins en voru 20 áður.
Með nýju línunni getum við
fylgst mun betur með öllum
afköstum, skoðað þau hjá
hverjum og einum starfs-
mannni, höfum betri yfirsýn á
nýtingu, auk þess sem starfs-
menn á línunni fá betri vinnu-
aðstöðu og geta betur fylgst
sjálfir með því sem þeir eru
að gera. Þetta er því mikil
framför og við sjáum strax
góðan árangur þann tíma sem
liðinn er síðan við tókum lín-
una í notkun,“ segir Daði.
Tilkoma samvalsflokkarans
frá Marel segir Daði vera
mikla byltingu í vinnslunni.
„Með þessum búnaði getum
við valið saman í nákvæm-
lega þær þyngdir sem við
viljum og í hvaða þyngdar-
flokka sem er. Þetta skiptir
miklu máli í t.d. hnakka-
vinnslunni og að sjálfsögðu
er mikilvægt í svona mikilli
framleiðslu að þyngdir í
pakkningum séu nákvæmar,“
segir Daði en að jafnaði 80-
90 manns hjá fyrirtækinu, allt
upp í 120 manns þegar mest
er að gera á vertíðum. Nýver-
ið auglýsti Godhhaab í Nöf
eftir starfsfólki en á þessum
tíma ár er yngra fólkið að
halda í skólana en þess utan
þarf að bæta við vegna nýju
flæðilínunnar.
„Vinnslan hjá okkur er
bæði í ferskan fisk og frystar
afurðir. Markaðssvæði okkar
eru, líkt og verið hefur, í Am-
eríku og Austur- og Vestur-
Evrópu. Í ferska fiskinum
framleiðum við mest fyrir
Bretland og Frakkland og sú
vinnsla er fyrst og fremst síð-
ari hluta vikunnar,“ segir
Daði og svarar því aðspurður
Godthaab í Nöf í Vestmannaeyjum:
Afkastaaukning
með nýrri flæðilínu