Ægir

Årgang

Ægir - 01.07.2012, Side 29

Ægir - 01.07.2012, Side 29
29 K V Ó T I N N 2 0 1 2 - 2 0 1 3 Fimmtíu stærstu með 85% Fimmtíu stærstu fyrirtækin í útgerð fá úthlutað sem nemur um 85,2% af því aflamarki sem úthlutað er. Alls fá 487 fyrirtæki eða lögaðilar úthlutað nú en þeir voru 502 í fyrra. Sé litið til þeirra 10 sem eru með mesta úthlutun fær HB Grandi, líkt og í fyrra, mestu úthlutað til sinna skipa eða 10,8% af heildinni, næst kemur Samherji með 6,5% og þá Þorbjörn hf. með 5,7%. Eftirtalin eru tíu kvótahæstu fyrirtækin en meirihluti þeirra hef- ur aukið hlutfall sitt milli fiskveiðiára. þíg Hlutf. % HB Grandi hf 34.305.634 10,77% Samherji hf 20.541.735 6,45% Þorbjörn hf 18.119.939 5,69% FISK-Seafood ehf. 16.394.091 5,15% Brim hf 15.646.378 4,91% Vísir hf 13.330.785 4,18% Rammi hf 13.300.812 4,18% Vinnslustöðin hf 12.137.821 3,81% Hraðfrystihúsið - Gunnvör hf 10.372.574 3,26% Skinney-Þinganes hf 8.403.119 2,64% Reykjavík kvótahæst sem fyrr Þrjár heimahafnir skera sig úr eins og undanfarin ár í þorskí- gildum talið. Mest fer til skipa með heimahöfn í Reykjavík eða 14,2% af heildinni samanborið við 11,4% í fyrra. Breytingin felst í aukinni úthlutun til skuttogara þaðan. Næstmest fer til Vestmannaeyja eða 10,6% og þá til skipa með heimahöfn í Grindavík, eða 9,5% af heildinni, og er það í báðum tilvikum svipað hlutfall og í fyrra. Hlutfall sem fer til skipa hjá hverri höfn fyrir sig breytist í flestum tilvikum eitthvað og má rekja það til breytinga á þorskígildisstuðlum sem og tilfærslu afla- hlutdeilda á milli skipa með ólíka heimahöfn. Eftirtaldar níu hafnir eru með meira en 3% aflamarks: þíg Hlutf % Reykjavík 45.361.520 14,2% Vestmannaeyjar 32.331.205 10,2% Grindavík 28.652.697 9,0% Akureyri 15.973.946 5,0% Akranes 13.488.560 4,2% Dalvík 11.902.701 3,7% Rif 11.136.584 3,5% Hornafjörður 10.376.963 3,3% Sauðárkrókur 10.575.044 3,3% Guðmundur í Nesi með 2,5% heimildanna Alls fá 603 skip úthlutað aflamarki í ár, fiskveiðiárið 2012/2013, samanborið við 612 skip fiskveiðiárið 2011/2012. Mest fer til Guðmundar í Nesi, RE 13, rúm 7.900 þorskígildistonn eða 2,5% af úthlutuðum þorskígildum. Togarinn var á síðasta ári í öðru sæti á þessum lista en nú höfðu Guðmundur í Nesi RE og Kaldbakur EA sætaskipti. Bátahöllin Sími 436-6870 - batahollin@simnet.is Nýsmíði og breytingar á bátum Skoðið myndirnar á www.batahollin.isFornubúðir 3 - 220 Hafnarfjörður - Sími 555 6677 - oli@umb.is Project1 3/31/07 12:20 PM Page 1 Kvótinn 2012-2013

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.