Fjarðarpósturinn - 08.01.2015, Side 6
6 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2015
Barnaballett - Ballett - Showdans
Kennari: Ana Tepavcevic,
silfurverðlaunahafi á Evrópumeistaramóti í dansi
Skráning í fullum gangi !!!
Sýning í apríl! Sjáumst ☺
www.sh.is - arabesque@sh.is
Dans fyrir krakka frá 5. janúar í Ásvallalaug!!!
Arabesque
Danspar ársins
Kemur úr Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar
Dansíþróttasamband Íslands
hefur valið dansparið Sigurð Má
Atlason og Söru Rós Jakobs
dóttur frá Dansíþróttafélagi
Hafnarfjaraðar sem dansíþrótta
par ársins 2014.
Sigurður og Sara eru bæði
fædd árið 1992 og hafa dansað
saman síðan árið 2000. Þau unnu
Íslandmeistaratitil í standard
dönsum árið 2014 og fóru á tvö
heimsmeistaramót á árinu. Þau
eru nr. 316 í latin á stigalista
Alþjóða dansíþróttasambandsins
(WDSF) og nr. 133 í 10 x
dönsu m.
Á árinu 2014 náðu þau
eftirfarandi árangri:
1. sæti á Íslandsmeistaramóti í
standarddönsum fullorðinna.
2. sæti á Íslandsmeistaramóti í
10 x dönsum fullorðinna.
2. sæti á Íslandsmeistaramóti í
latindönsum fullorðinna.
Bikarmeistarar í standard og
latindönsum fullorðinna.
25. sæti á HM 10 x dansa sem
haldið var í Riga í Lettlandi.
59. sæti á HM latin sem að
haldið var í Ostrava í Tékklandi.
„Sigurður og Sara eru góðar
fyrirmyndir fyrir önnur danspör,
hvort sem er við þjálfun eða
ástundun“, segir í umsögn DSÍ
um þau.
Sigurður og Sara eru bæði
búsett í Reykjavík en æfa og
keppa með Dansíþróttafélagi
Hafnarfjarðar.
Lj
ós
m
.:
Ja
n
©
Ö
rv
ar
M
öl
le
r
Þrjátíu og fjórir nemendur
voru útskrifaðir frá Iðnskólanum
í Hafnarfirði 19. desember sl. af
átta námsbrautum.
Sex nemendur útskrifuðust af
hársnyrtibraut, 4 af húsa smíða
braut, 5 af pípulagnabraut, 1 af
rafvirkjabraut, 2 af renni
smíðabraut, 1 af stálsmíðabraut,
10 af vélvirkjabraut og 6 af
listnámsbraut hönnun.
Bjarni Freyr Þórðarson af
rafvirkjabraut var dúx skólans og
fékk hann viðurkenningar frá
Rafiðnaðarsambandi Íslands,
Samtökum iðnaðarins og
Rótarý klúbbi Hafnarfjarðar.
Við útskrift hafa húsamiðir og
píparar einnig lokið sveinsprófi í
sinni grein og fengu þrír húsa
smiðir sem útskrifuðust frá Iðn
skólanum i Hafnarfirði eink
unnina 10 á sveinsprófi og sjá
fjórði fékk 9. Þrír píparar fengu
einkunnina 9 á sveinsprófi.
Við athöfnina töluðu Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir for stöðu
maður mennta og nýsköpunar
hjá Samtökum iðnaðarins, Kári
Samúlesson fulltrúi skólanefndar
og Stefán Hannesson fyrir hönd
útskriftarnema.
Útskriftarnemarnir ásamt Sveini Jóhannssyni aðst.skólameistara t.v. og Þór Pálssyni skólameistara t.h.
34 útskrfuðust úr Iðnskólanum
Bjarni Freyr Þórðarson rafvirki var dúx skólans
Lj
ós
m
.:
Lá
ru
s
K
ar
l I
ng
as
on
Um 639 kaupsamningum var
þinglýst árið 2014 í Hafnarfirði
og er það aukning frá árinu 2013
en þá var 594 kaup
samningum þinglýst í
Hafnarfirði. Kaup
samn ingar um sérbýli
voru 137 og var meðal
fermetraverð þeirra
225.656 kr./m². 150
210 m² sérbýli virð ast
seljast mest eða 62 hús.
Árið 2013 var þinglýst
132 sérbýlis eignum og
var meðal verð á þeim
eignum 215.328 kr./m² þannig
að meðalfermetraverðið á
sérbýlum í Hafnarfirði hækkaði
um rúmlega 10.000 kr./m² á milli
ára.
Kaupsamningar með fjölbýli í
Hafnarfirði voru 502 árið 2014
og meðalfermetraverðið var
249.004 kr./m² en árið
2013 voru 462 kaup
samningar með fjölbýli
og meðal fermetra
verðið var 222.592 sem
er um 26.000 á hækkun
á hvern fermeter.
Horfur eru góðar á
fast eignamarkaðnum
fyrir árið 2015 og spáir
greiningadeild Arion
banka á milli 78%
hækkun á ári til ársins 2017.
Höfundur er sölufulltrúi
fasteigna hjá
Fasteignakaupum
Páll Heiðar
Pálsson
Kaupsamningum fjölgar
Meðalfermetraverð á fasteignum
í Hafnarfirði hækkar
Sara Rós Jakobsdóttir og Sigurður Már Atlason.
Dalshrauni 24 • 220 Hafnarfirði • 555 4855 • steinmark.is • steinmark@steinmark.is
Stafræn prentun
Gormun/hefting