Fjarðarpósturinn - 12.02.2015, Síða 2
2 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2015
Það ætlar ekki að vera nein
lognmolla í kringum nýjan meiri
hluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar.
Enn bíða menn eftir niðurstöðum
úr úttekt á rekstri bæjarins en á
henni á að byggja við að marka
stefnu í rekstri bæjarins. Bæjar
stjóri hefur sagt að ekki þurfi endilega að skera niður, því
með hagræðingu í rekstri megi jafnvel auka við eða
jafnvel minnka álögur á bæjarbúa. Ekki er þó alltaf beðið
eftir niðurstöðum úr þessari úttekt og hagræðing í
greiðslu húsaleigubóta virðist hafa verið meiri en
upphaflega var kynnt þó hvergi megi finna nein gögn
um hækkunina ef frá er talið að upphæð við miðunar
upphæðar er getið í greinargerð með fjárhagsáætlun.
Skilaboð frá bæjarskrifstofunum um að þetta væri gert
þar sem viðmiðunarupphæðin hafi ekki hækkað í langan
tíma var uppspuni sem og fullyrðing um að þetta væri
gert til jafnvægis við viðmið nágrannasveitarfélaganna.
Eftir langar og strangar viðræður við eigendur
Áslandsskóla var fallið frá viðbyggingu við skólann og
byggingu íþróttahúss og talið að nægilegt rými fengist ef
tölvustofa væri aflögð og allir nemendur fengju spjald
tölvu. Nú bregður svo við að Foreldrafélagið, eða a.m.k.
fulltrúar þess, rísa upp á afturlappirnar og segja ákvörðun
bæjarstjórnar hreinlega ólöglega. Ekkert samráð hafi
verið við skólaráð eins og mælst sé fyrir um í fræðslu
lögum. Meirihlutinn virðist nú allt í einu ekki hafa
meirihlutann með sér.
Þarna hitnar greinilega í kolunum enda ganga fulltrúar
Foreldrafélagsins svo langt að hóta jafnvel lögsókn verði
ákvörðun um að hætta við að byggja við skólann ekki
dregin til baka. Og það hitnar víðar í kolunum en
samstaðan í stjórn Hafnarfjarðarhafnar virðist ekki vera
mikil þessa dagana.
Það vekur athygli þegar skoðaðar eru fjárhags
upplýsingar Hafnarfjarðarbæjar fyrir desembermánuð,
sem ætti að gefa nokkuð sanna mynd á niðurstöðum
ársins 2014, að bæjarráð fer 114% fram úr áætlun ársins.
Illa hefur líka tekist til við áætlun um kostnað við stjórn
Hafnarborgar sem reyndist 91% hærri en áætlað var. Þar
kemur einnig fram að rekstur Hafnarborgar kostaði 85,6
milljónir kr. á meðan rekstur Byggðasafns Hafnarfjarðar
kostaði tæpar 67 milljónir kr. Áhugasamir bæjarbúar eru
hvattir til að skoða framsetningu á fjárhagsuppgjöri
bæjarins og reyna að meta stöðuna. Ekki er allt sem
sýnist og t.d. má sjá að rekstur Eignasjóðs átti að skila
232,4 millj. kr. tekjum en kostaði þegar upp var staðið
247,9 mill. kr. Mismunurinn var 480,3 millj. en er sagður
107%. Þetta ætti auðvitað hver grunnskólagenginn
maður að skilja – eða hvað?
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf.
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn
Sunnudagurinn 15. febrúar
Messa kl. 11
Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson.
Organisti Guðmundur Sigurðsson.
Félagar úr Barbörukórnum syngja.
Miðvikudagar
Morgunmessa kl. 8.15
Fimmtudag 19. febrúar
Aðalfundur kvenfélagsins
www.hafnarfjardarkirkja.is.
HAFNARFJARÐARKIRKJA
1914 - 2014
Sunnudagurinn 15. febrúar
Sunnudagaskóli kl. 11
Kvöldvaka kl. 20
Gestur Pálmason markþjálfi
kemur í heimsókn.
Kór og hljómsveit kirkjunnar leiða sönginn
undir stjórn Arnar Arnarsonar.
Munið foreldramorgna kl. 10 á
miðvikudögum í safnaðarheimilinu
og krílasálma á fimmtudögum kl. 10.30
í kirkjunni.
Fylgist með okkur á www.frikirkja.is
35 ár
Stolt að þjóna ykkur
Útfararskreytingar
kransar, altarisvendir,
kistuskreytingar,
hjörtu
Bæjarhrauni 26
Opið til kl. 21 öll kvöld
Símar 555 0202 og 555 3848
www.blomabudin.is
Sunnudaginn 15. febrúar
Sunnudagaskóli kl. 11
Bolludagshátíð.
Sláum köttinn úr kassanum
og gæðum okkur á bollum með rjóma.
Gospelguðsþjónusta kl. 20
Starf eldri borgara
á miðvikudögum kl. 13:30-15:30.
www.astjarnarkirkja.is
Víðistaðakirkja
Sunnudaginn 15. febrúar
Hláturmessa kl. 11
Fjallað um gleðina sem Guðsgjöf.
Sérstakur gestur
Ómar Ragnarsson.
Félagar úr kór
Víðistaðakirkju syngja undir
stjórn Helgu Þórdísar.
Siggi og María sjá um
sunnudagaskólann, – mikið fjör
– mikið gaman. Molasopi á eftir
www.vidistadakirkja.is
Minnst greitt með hverjum notanda
Suðurbæjarlaugar
Hafnarfjarðarbær borgar 5-800 kr. með hverri heimsókn
Rekstur Suðurbæjarlaugar kostaði á síðasta ári 120,5
milljónir kr. en skv. upplýsingum íþróttafulltrúa komu
229.456 í sundlaugina þetta ár en þá er meðtaldir þeir
sem sækja heilsurækt í kjallaranum. Því má segja að
skattgreiðendur í Hafnarfirði hafi greitt með 525 kr.
með hverjum notanda í hvert skipti.
Í Ásvallalaug komu 233.835 gestir auk 60.000 í
heilsurækt og greiddu skattgreiðendur 187 milljónir kr.
í rekstur Ásvallalaugar og því 637800 kr. á hverja
heimsókn eftir því við hvaða aðsóknartölur miðað er
við.
Í Sundhöll Hafnarfjarðar komu 50.641 gestur og
kostað rekstur hallarinnar skattgreiðendur 32,9
milljónir kr. eða 650 kr. á hverja heimsókn.
Kostnaður við rekstur Suðurbæjarlaugar hefur
hækkað um 31% frá 2011, kostnður við rekstur
Ásvallalaugar hefur hækkað um 4,5% en kostnaður við
rekstur Sundhallarinnar hefur lækkað á sama tíma um
8,4%.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n