Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 12.02.2015, Blaðsíða 6

Fjarðarpósturinn - 12.02.2015, Blaðsíða 6
6 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2015 Safnanótt var sl. föstudag og opið í söfnum bæjarins til miðnættis. Góð stemmning var í Bókasafni Hafnarfjarðar þegar blaðamaður leit þar inn, leikarar úr Gaflaraleikhúsinu sýndu atriði úr Konubörnum og vinkonurnar Ósk og Brynja léku á gítar og sungu. Handbolti: 12. feb. kl. 19.30, Ásvellir Haukar - HK úrvaldeild karla 12. feb. kl. 19.30, Kaplakriki FH - Valur úrvalsdeild karla 14. feb. kl. 13.30, Vestm.eyjar ÍBV ­ Haukar úrvalsdeild kvenna 14. feb. kl. 14, Digranes HK ­ FH úrvalsdeild kvenna Körfubolti: 13. feb. kl. 19.15, Þorláksh. Þór Þ. ­ Haukar úrvalsdeild karla 14. feb. kl. 13.30, Frostaskjól KR ­ Haukar úrvalsdeild kvenna 15. feb. kl. 19.15, Ásvellir Haukar - KR úrvalsdeild karla Körfubolti úrslit: Konur: Haukar ­ Valur: 61­62 Haukar ­ Breiðablik: 86­63 Karlar: Haukar ­ Stjarnan: 92­77 Handbolti úrslit: Konur: Haukar ­ Selfoss: 26­22 Haukar ­ KA/Þór: 25­23 FH ­ ÍBV: 19­30 Karlar: Stjarnan ­ FH: 28­29 ÍBV 2 ­ Haukar: 21­33 Stjarnan ­ FH: 24­26 ÍBV ­ Haukar: 17­21 Íþróttir húsnæði í boði Til leigu vel búið lítið atvinnu-, skrifstofu- eða verslunarhúsnæði á Strandgötu. 50 þ. kr. á mán. Uppl. í s. 774 2501 atvinna óskast Drífandi og dugmikill starfskraftur (kona) óskar eftir tímabundnum verkefnum eða 50%-100% starfi. T.d. við verkefna- eða skrifstofu- stjórnun, bókhald, markaðsmál, próf arkalestur, tiltekt á vefsíðu (eða setja upp nýja síðu). Fjölbreytt starfs reynsla og góð menntun. Margt kemur til greina. Vinsam legast hafið samband á starfskraftur@ simnet.is eða 864 8059. þjónusta Tölvuviðgerðir alla daga, kem á staðinn, hagstætt verð. Sími 664 1622 - 587 7291. Tölvuaðstoð og viðgerðir Viðgerðir og kennsla í tölvunotkun. Apple* & Windows. Kem í heimahús. Sími 824 9938 - hjalp@gudnason.is Innréttingasmíði, viðgerðir, almenn smíði og viðgerð á húsgögnum. Trésmíðaverkstæði Gylfa ehf. sími 897 7947. Bílaþrif. Kem og sæki. Nú er rétti tíminn til að bóna bílinn fyrir veturinn. Úrvals efni. Hagstætt verð. Uppl. í s. 845 2100. Ódýr húsgagnahreinsun - einnig leðurhreinsun. Djúphreinsun hægindastóla, sófasett, rúmdýnur og teppi. Hreinsum í höndum leðuráklæði. Komum heim til fólks og hreinsum. Sími 780 8319. smáauglýsingar aug l y s i n gar@f jardarpos t u r i n n . i s s ím i 5 6 5 3 0 6 6 A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a . V e r ð a ð e i n s 5 0 0 k r. m . v . h v e r 1 5 0 s l ö g . M y n d b i r t i n g 7 5 0 k r. Ta pað - f u n d i ð o g Ge f i n s : FR Í TT R e k s t r a r a ð i l a r : F á i ð t i l b o ð í r a m m a a u g l ý s i n g a r ! Loftnet - netsjónvarp Viðgerðir og uppsetning á loftnetum, diskum, síma- og tölvulögnum, ADSL/ljósleiðurum, flatskjám og heimabíóum. Húsbílar - hjólhýsi! Loftnetstaekni.is sími 894 2460 www.facebook.com/ fjardarposturinn Smelltu á LÍKAR VIÐ Aðalfundur Stangaveiðifélags Hafnarfjarðar verður haldinn 14. febrúar næstkomandi að Flatahrauni 29, Hf. kl. 13.00 Venjuleg aðalfundarstörf og kosning til stjórnar. Eftirfarandi eru í framboði til stjórnar Framboð í aðalstjórn til tveggja ára: Haraldur Víðisson Sigríður Hrólfsdóttir Ævar Ágústsson Framboð í varastjórn til eins árs: María Petrína Ingólfsdóttir Ólafur Jónsson Sigríður Hrólfsdóttir Stefán Árnason Framboð til formanns til eins árs: Vilborg Reynisdóttir Hrund Rafnsdóttir og Þórhalla Ágústsdóttir snyrtifræðimeistarar í Lipurtá. Þórhalla Ágústsdóttir og Hrund Rafnsdóttir segja það mikla nýjung í snyrtiheiminum, nýja aðferðin við varanlega förðun á augnbrúnir. Kallast hún „microblading tattoo“ frá PhiBrows og felst í því að gera örfínar hárlínur á milli ekta háranna í augabrúnum til að móta og gera augabrúnirnar þykkari eða í stað hára sem ekki eru til staðar. „Við þessa aðferð, sem kallast japanska aðferðin er ekki notast við rafmagnstæki eins og alltaf er gert við hefð­ bundið tattú. Noðað er lítið handstykki sem sett er í nál með 14 örfínum nálaroddum sem dýft er í litinn og síðan gerðar örfínar strokur sem festast í húðinni og líta út eins og hár“. Hægt er að velja um marga liti og mis­ munandi lag á brúnum og segir Þórhalla þessa aðferð gefa möguleika á miklu fíngerðari hárlínum sem líkast eðlilegum hárum. Þessa sérstöku meðferð frá Microblading Academie er eingöngu hægt að fá hjá þeim Þórhöllu og Hrund á Lipurtá snyrtistofu í Staðarberginu þar sem þær hafa m.a. unnið við varanlega förðun eða tattú í 17 ár. Þórhalla og Hrund fóru til Belgrad í Serbíu í október sl. og sátu einkanámskeið í Branko Babic Microblading Academie í þessari aðferð og nú í lok janúar 2015 fóru þær aftur til Serbíu og kláruðu einnig Masterclass námskeið hjá Branko Babic sem talinn er einn af fremstu sérfræð­ ingum á sviði microblading í heiminum í dag. Hafa þær nú lokið öllum þáttum þjálfunar í phibrows og fengið útskriftar­ skírteini frá Branko Babic Microblading Academie. „Það sérstaka við þjálfunina hjá Branko Babic er að hann hefur hannað tæki sem gerir okkur kleift að mæla upp brúnirnar nákvæmlega hjá hverjum og einum ásamt því að vinna með allar mælingar fyrir auga brún­ irnar í gegnum myndavél með sérstöku appi sem er eingöngu til notkunar hjá þeim sem hafa útskrifast hjá honum.“ Segir Þórhalla svona varanlega förðun krefjast mikils undir­ búnings enda erfitt að snúa til baka. Viðskiptavinir fá að sjá hvernig augabrúnirnar koma til með að líta út áður en byrjað er og eru þær teiknaðar upp með hjálp myndavélar og sérstaks mælitækis sem tryggir að öll hlutföll séu rétt. Svona förðun endist í eitt til tvö ár áður en þarf að fríska upp á förðunina. Mun fíngerðara augabrúnatattú með nýrri aðferð Þórhalla og Hrund í Lipurtá þær einu á Íslandi sem bjóða þessa aðferð Lj ós m .: G uð ni G ís la so n FH, Haukar, Valur og ÍBV í undanúrslit Bæði FH og Haukar leika í undanúrslitum bikarkeppni HSÍ en leikið verður 27. og 28. febrúar nk. Spennandi verður að sjá hvort Hafnarfjarðarliðin dragist saman en FH sló úrvals­ deildarliðin Fram og Stjörnuna út á leið í undanúrslitin en Hauk ar voru einstaklega heppn­ ir, drógust á móti eigin B­liði og síðan B­liði ÍBV í 8 liða úrslitum. Þá tryggðu Hauka stúlkur sér keppnisrétt í undanúrslitum bikarkeppni HSÍ er þær sigruðu Selfoss örugglega en Selfoss hafði slegið FH út nokkuð örugg lega. Haukar stúlkurnar höfðu líka heppnina með sér í fyrstu umferð er þær drógust á móti B­liði ÍBV sem þær sigr­ uðu örugglega. Það verða því Haukar, Grótta ÍBV og annað hvort Fylkir eða Valur sem leika í undanúrslitum 26. febrúar og úrslitaleikurinn verður 28. febrúar Notalegt í bókasafninu Ósk og Brynja spila fyrir gesti Bókasafnsins. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.