Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 12.02.2015, Blaðsíða 8

Fjarðarpósturinn - 12.02.2015, Blaðsíða 8
8 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 12. FEBRÚAR 2015 Stofnað 1982 Dalshrauni 24 • Sími 555 4855 steinmark@steinmark.is Reikningar • Nafnspjöld Umslög • Bæklingar Fréttabréf Bréfsefni Og fleira styrkir barna- og unglingastarf SH Sundstund gefur gull í mund Stofnuð 1983 EIGN VIKUNNAR Norðurbakki 25 Glæsileg útsýnisíbúð á efstu hæð. V. 47,5 millj. Opnar málverka­ sýningu Kristbergur Pétursson opnar myndlistarsýningu í Gallerí Firði á 2. hæð í verslunar­ miðstöðinni, kl. 16 á morgun föstudag. Bolluhátíð í sunnu­ daga skóla Í sunnudagaskólanum í Ástjarnarkirkju verður bollu­ dagshátíð á sunnudag. Kött­ ur inn verður sleginn úr kass­ anum og kirkjugestir gæða sér á bollum með rjóma. Ekki verður hattahátíð eins og missagt er í auglýsingu kirkjunnar í prentaðri útgáfu blaðsins á síðu 2. Vilja vita framtíðar­ sýn Í bréfi til fræðsluráðs óskar Foreldraráð leikskóla Hafn ar­ fjarðar eftir nánari útlistun á framtíðarsýn fræðsluráðs Hafnarfjarðar á inntökualdri leikskólabarna. Segir í bréfinu að foreldraráðið hefði kosið að fækkun leikskólabarna næsta haust hefði verið nýtt til þess að taka næstu skref í átt að því að lækka inntökualdur leikskólabarna en ekki það skref afturábak sem ákveðið hefur verið að taka með því að færa inntökualdur aftur nær 2 ára aldri. Bendur ráðið á að það skapi einnig nokkuð ósætti og misskilning að yngstu börnin sem hafi verið innrituð á leikskóla bæjarins haustið 2014 hafi verið 18 mánaða en nú standi til að færa þann aldur aftur nær 2 ára aldri næstkomandi haust. Í bréfinu harmar foreldra­ ráðið þá ákvörðun fræðsluráðs að loka Leikskólanum Bjarma vegna tímabundinnar fækk­ unar leikskólabarna og telur að það sýni skort á framtíðar­ sýn og mikill missir verði af því góða starfi sem þar hefur verið byggt upp undanfarin ár. Helluhrauni 14-16 (á milli Bónuss og Vínbúðarinnar) Opið virka daga kl. 11-18.30 og laugardaga kl. 12-15 Fiskbollur á bolludaginn – 2 fyrir 1 – Saltfiskur á sprengidaginn © H ön nu na rh ús ið e fh . 1 50 2 FISKBÚÐ HAFNARFJARÐAR - Sælkeraverslun - Mikill áhugi var fyrir Meistara­ móti Íslands í frjálsum íþróttum innanhúss sem haldið var í nýju frjálsíþróttahöllinni í Kaplakrika. Áhorfendur fylltu áhorf enda­ pallana og stóðu á hliðar línum auk þess sem fjöl miðlar sýndu mótinu mikinn áhuga. Mikil ánægja er með aðstöðuna í húsinu og er það greinilega mikil lyftistöng fyrir frjálsar íþróttir. Besta afrek mótsins vann Aníta Hinriksdóttir úr ÍR fyrir glæsi legan árangur í 800 m hlaupi sem gaf henni 1151 stig en hin enn yngri FH­ingur Þórdís Eva Steinsdóttir vann 10. besta afrekið með glæsilegan árangur í 400 m hlaupi. Þórdís Eva Steinsdóttir FH setti nýtt met í 200 m flokki 15 ára stúlkna og sveit FH setti piltamet í 18 ára flokki í 4x400 m boðhlaupi. Alls voru 119 persónulegar bætingar og met sett á Meistara­ mótinu. Frjáls íþrótta deild FH sá um fram kvæmd mótsins. Glæsilegt Meistaramót í frjálsíþróttahöllinni Fyrsta stórmótið í nýju frjálsíþróttahöllinni í Kaplakrika Krister Blær Jónsson stökk 5,1 m í stangarstökki. Bræðurnir Guðmundur Heiðar og Arnaldur Þór Guðmundssynir FH keppa við Kristinn þór í 400 m hlaupi. Hilmar Örn Jónsson varð 5. í kúluvarpi, kastaði 14,56 m Guðbjörg Bjarkadóttir var í sigursveit FH í 4x400 m hlaupi. Hrafnhild Eir R. Hermóðs dótt ir setti Íslandsmet í 60 m hlaupi, hljóp á 7,5 sek. Dóra Hlín Lofts dóttir FH varð 4. á 7,94 sek. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.