Fjarðarpósturinn - 19.02.2015, Qupperneq 2
2 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 2015
Enn á ný sannast hversu upplýst
stjórnsýsla er mikilvæg. Á neyðar
fundi Foreldrafélagas Áslands
skóla með bæjarstjóra kom greini
lega í ljós að upplýsingaflæði er
ekki nægilegt. Það er galdurinn við
upplýsingaflæði að í raun er ekki
nóg að dæla út upplýsingum. Stjórnvöld bera þá ábyrgð
að upplýsingar séu auðskildar, komi fram á réttum tíma
og aðalatriðin hverfi ekki inni í aragrúa smáatriða.
Hvernig getur það verið þegar svo langt er liðið á
veturinn að skólasamfélagið sé ekki upplýst um rök fyrir
áformum nýrrar bæjarstjórnar að hætta við byggingu
fjögurra kennslustofa við skólann? Ekki einu sinni voru
menn að nota sömu spá um þróun fjölda nemenda í
skólanum. Mjög sérkennileg frétt var birt á vef
Hafnarfjarðar þar sem fram kemur að stjórn foreldra
félagsins hafi haft undir höndum „misvísandi tölur og
gögn“ sem það byggði erindi sitt á. Er sagt í fréttinni að
upplýsingar foreldrafélagsins hafi m.a. verið byggðar á
minnisblaði „fyrrverandi formanns fræðsluráðs“ frá í
apríl 2014. Segir svo að „bæjaryfirvöld“ lýsi yfir ríkum
vilja til að eiga áfram gott samstarf við foreldra. Enginn
er skráður fyrir þessum upplýsingum, aðeins
„bæjaryfirvöld“. Tölurnar voru ekki birtar með fréttinni
né tengill í þau gögn. Sennilega eru allar tölur um þróun
fjölda nemenda unnar af sama starfsmanni Hafnar
fjarðarbæjar og eflaust „réttar“ þegar þær eru unnar. Þrátt
fyrir töluverða umræðu um skólamál í Áslandsskóla
hefur enginn haft fyrir því að upplýsa foreldra um þessa
nýju spá um nemendafjölda. Hafa margir foreldrar
eðlilega áhyggjur af framgangi mála í skólanum, eru
kvíðnir yfir því að þrengsli verði mikil og of margir að
þeirra mati í mörgum bekkjum. Nemendur hafa heldur
ekki gleymt því að ekki verður heldur byggt íþróttahús
við skólann eins og lofað hafði verið.
Enn er bið á að lóðum verði úthlutað í Skarðshlíð og
heyrst hefur sú skoðun að ekki verði byggt þar á meðan
háspennulínurnar hafa ekki verið fjarlægðar. Kannski er
ástandið í skólamálum þannig að menn vilja ekki fjölgun
barna í hverfinu á allra næstu árum. Þó hefur það alltaf
verið talið nauðsynlegt að sveitarfélagið stækki og ný
bæjarstjórn hlýtur að hafa trú á því að henni takist að
gera Hafnarfjörð enn áhugaverðari en hann er og því
muni fólk vilja flytja til Hafnarfjarðar. Nú er hafinn
undirbúningur að stofnun Markaðsstofu Hafnarfjarðar
en henni er einmitt ætlað að laða að ný fyrirtæki og nýja
íbúa til bæjarins. Nóg er til af lóðum fyrir hvers kyns
iðnfyrirtæki og aðra atvinnustarfsemi og íbúðarlóðir
bíða klárar með malbikaðar götur og ljósastaura. Verið
velkomin í Hafnarfjörð!
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf.
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn
Sunnudagurinn 22. febrúar
Messa kl. 11
Félagar úr Barbörukórnum syngja.
Organisti er Guðmundur Sigurðsson.
Prestur er sr. Þórhildur Ólafs.
Sunnudagaskóli kl. 11
í Hásölum Strandbergs safnaðarheimilis
Hafnarfjarðarkirkju.
Leiðtogi sunnudagaskólans er Anna Elísa
Gunnarsdóttir, henni til aðstoðar er Margrét Heba.
Kaffi, kex og djús á eftir í Ljósbroti Strandbergs
Miðvikudagar
Morgunmessa kl. 8.15
Organisti er Guðmundur Sigurðsson.
Prestur er sr. Þórhildur Ólafs
Morgunverður í Odda Strandbergs.
Fimmtudag 19. febrúar
Aðalfundur kvenfélagsins
verður haldinn í dag, fimmtudag kl. 20 í Vonarhöfn
Strandbergs. Venjuleg aðalfundarstörf.
www.hafnarfjardarkirkja.is.
HAFNARFJARÐARKIRKJA
1914 - 2014
Sunnudagurinn 22. febrúar
Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 11
Hljómsveit kirkjunnar leiðir sönginn
undir stjórn Arnar Arnarsonar.
Góð samverustund fyrir alla fjölskylduna
Fylgist með okkur á www.frikirkja.is
35 ár
Stolt að þjóna ykkur
Útfararskreytingar
kransar, altarisvendir,
kistuskreytingar,
hjörtu
Bæjarhrauni 26
Opið til kl. 21 öll kvöld
Símar 555 0202 og 555 3848
www.blomabudin.is
Útfararþjónusta
Vönduð og persónuleg
þjónusta
Sími: 551 7080 & 691 0919
ATHÖFN ÚTFARAÞJÓNUSTA - athofn@athofn.is - www.athofn.is
Inger Steinsson
Inger Rós Ólafsdóttir
Sunnudaginn 22. febrúar
Messa kl. 11
Eldri borgarar lesa ritningarlestra
og leiða sálmasöng.
Sunnudagaskóli á sama tíma
Starf eldri borgara
á miðvikudögum kl. 13:30-15:30.
www.astjarnarkirkja.is
Víðistaðakirkja
Sunnudaginn 22. febrúar
Systramessa
á konudaginn kl. 11
Systrafélag Víðistaðakirkju
aðstoðar við guðsþjónustuna.
Kvennakór Hafnarfjarðar syngur undir
stjórn Ernu Guðmundsdóttur.
Siggi og co. sjá um sunnudagaskólann.
Kaffi og pönnkökur á eftir.
www.vidistadakirkja.is
90 ára skátafélag
Hraunbúar eiga afmæli 22. febrúar
Skátafélagið Hraunbúar fagnar 90 ára afmæli sínu á
sunnudag með afmælishátíð í Hraunbyrgi kl. 1417.
Félagið var stofnað á afmælisdegi upphafsmanns
skátahreyfingarinnar Baden Powells, 22. febrúar, en hann
hélt fyrstu skátaútileguna í ágúst 1907, 18 árum áður en
skátastarf hófst í Hafnarfirði.
Í dag er öflugt skátastarf í Hraunbúum með tæplega
200 virkum skátum og gríðarstóru baklandi. Kjarninn í
starfinu er ávallt hinn sami, að uppgötva í leik og efla
meðvitund um gildi drengskapar.
Stofnendur Skátafélags Hafnarfjarðar. Fremri röð: Hilmar
Þorbjörnsson, Róbert Schmidt, Benjamín Eiríksson, Oddgeir
Magnússon, Þráinn Sigurðsson. Aftari röð: Sverrir Magnús
son, Hallgrímur Sigurðsson, Jón Oddgeir Jónsson, leiðbein
andinn, Jón Ingi Guðmundsson, Guðmundur Egilsson.