Fjarðarpósturinn - 05.03.2015, Blaðsíða 2
2 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 5. MARS 2015
Sl. mánudag voru liðin 50 ár
síðan ég fór á minn fyrsta skáta
fund. Ég man þennan fyrsta fund
er ég sem tæpra 7 ára kom af
Hvaleyrarholtinu yfir í hinn
endann af bænum til að fara á
ylfingafund. Þetta var afdrífaríkur
fundur því ég hef síðan alla tíð verið skáti. Ragnhildur
Guðmundsdóttir var minn fyrsti ylfingaforingi, mín
fyrsta Akela, en síðan tók Elsa Kristinsdóttir við og
Sigurjón Vilhjálmsson. Öll voru þau einstök á sína vísu
en höfðu það eitt sameiginlegt að gefa mikið af sér til
okkar skátanna. Allt var þetta gert í sjálfboðavinnu og
ánægjan voru einu launin. Af reynslu get ég sjálfur sagt
að engin laun eru betri fyrir svona starf en ánægjan.
Sjálfboðaliðastarf hefur minnkað mikið síðan en ég man
líka þann dag þegar ég á svipuðum tíma mætti á fótbolta
æfingu hjá Ragnari Magnússyni. „Mæta á þriðjudaginn,
keppa við Keflavík“ voru snaggaraleg svör þegar ég
spurði hvort ég mætti vera með.
Skátastarfið gaf mér mikið og þeim fullorðnu
foringjum verður seint þakkað það fórnfúsa starf sem
unnu með okkur. Það er ekkert sjálfgefið að fólk taki að
sér í sínum frítíma að vinna með börnum annars fólks.
Mikilvægi góðs félagsstarf verður seint full metið. Það
er ekkert sjálfsagt að unglingar og fullorðið fólk gefi af
tíma sínum til þess að vinna með börnum í uppbyggjandi
starfi. Enginn gerði það nema hann hefði gaman að því
og það að vinna með börnum gefur svo sannarlega mikið
af sér.
Hafnarfjarðarbær hefur haft skilning á góðu skátastarfi
í gegnum tíðina og hefur oft verið í fararbroddi
sveitarfélaga í stuðningi við skátastarfið. Hins vegar eru
skátarnir og reyndar öll önnur æskulýðsstarfsem útundan
þegar kemur að hvatningu og verðlaunum til þátttakend
anna. Aðeins iðkendur íþróttafélaga innan ÍBH eru
gjaldgengir til að fá viðurkenningar á íþróttahátíð Hafn
ar fjarðar bæjar sem haldin er árlega. Langt er síðan önnur
sveitarfélög fóru að veita dugandi foringjum í skáta
félögum viðurkenningar til jafns við íþróttafólk. Skátar
keppa að vísu ekki til verðlauna og engir eru áhorfend
urnir. Einföld hvatningarverðlaun til ungra foringja gætu
verið mikilvægari en nokkur Íslands meistaratitill, að vita
að áhrifafólk í bæjarfélaginu meti það sem þeir hafa
verið að gera. Ég hef all oft nefnt þessa hugmynd við
stjórnmálamenn en nú legg ég það til að íþrótta og
tómstundanefnd hefji þegar undirbúning að því að veita
viðurkenningar til þeirra sem starfa að almennu
æskulýðsstarfi í bænum, a.m.k. til jafns við það sem er
gert í samstarfi við íþróttahreyfinguna.
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf.
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn
Sunnudagurinn 8. mars
Messa kl. 11
Félagar úr Barbörukórnum syngja.
Organisti er Guðmundur Sigurðsson.
Prestur er sr. Þórhildur Ólafs.
Aðalsafnaðarfundur eftir messu - veitingar
Sunnudagaskóli kl. 11
í Strandbergi, safnaðarheimilinu.
Miðvikudagar
Morgunmessa kl. 8.15
Fimmtudagur 5. mars
Kvenfélagsfundur
Fundur í Kvenfélagi Hafnarfjarðarkirkju kl. 19.30
í Vonarhöfn
www.hafnarfjardarkirkja.is.
HAFNARFJARÐARKIRKJA
1914 - 2014
Sunnudagurinn 8. mars
Sunnudagaskóli kl. 11
Hljómsveit kirkjunnar verður í stuði
eins og alltaf.
Guðsþjónusta kl. 13
Kór og hljómsveit kirkjunnar leiða söng
undir stjórn Arnar Arnarsonar.
Tónlistin verður í léttari kantinum og
hentar allri fjölskyldunni.
Krúttakórinn syngur undir stjórn
Thelmu Hrannar Sigurdórsdóttur
og Kirstínar Ernu Blöndal.
Basar kvenfélagsins
Strax að lokinni guðsþjónustu hefst basar
kvenfélags kirkjunnar í safnaðarheimilinu.
Basarinn er meðal helstu fjáröflunarleiða
félagsins á starfsári hverju en kvenfélagið er
einn af máttarstólpum safnaðarstarfsins.
Mætum og sýnum stuðning í verki!
Fylgist með okkur á www.frikirkja.is
35 ár
Stolt að þjóna ykkur
Útfararskreytingar
kransar, altarisvendir,
kistuskreytingar,
hjörtu
Bæjarhrauni 26
Opið til kl. 21 öll kvöld
Símar 555 0202 og 555 3848
www.blomabudin.is
Útfararþjónusta
Vönduð og persónuleg
þjónusta
Sími: 551 7080 & 691 0919
ATHÖFN ÚTFARAÞJÓNUSTA - athofn@athofn.is - www.athofn.is
Inger Steinsson
Inger Rós Ólafsdóttir
Sunnudaginn 8. mars
Messa kl. 11
Dís Gylfadóttir guðfræðingur segir frá
Hugarfari, samtökum fólks með ákominn
heilaskaða, og prédikar.
Sunnudagaskóli á sama tíma.
Miðvikudagur 11. mars kl. 13.30
Starf eldri borgara
Ásta Júlía Arnardóttir frá Tryggingarstofnun
fjallar um fjármál eftirlaunaþega
Fimmtudaga kl. 11
Bæna- og fyrirbænastundir
www.astjarnarkirkja.is
Víðistaðakirkja
Sunnudaginn 8. mars
Kirkjuferð Frímúrara
Guðsþjónusta kl. 11
Drengjakór Hamars
syngur undir stjórn
Sigurðar Halls Stefánssonar.
Organisti: Helga Þórdís Guðmundsdóttir
Prédikun: Jakob Kristjánsson
Einsöngur Ívar Helgason
Prestar: Sr. Halldór Reynisson
og Sr. Bragi J. Ingibergsson
Allir velkomnir!
www.vidistadakirkja.is
Drekaskátar
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n