Fjarðarpósturinn - 05.03.2015, Qupperneq 10
10 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 5. MARS 2015
Hafnarfjörður átti þrjú lið í
úrslitum bikarkeppni HSÍ,
Hauka í kvennaflokki og FH og
Hauka í karlaflokki. Á
fimmtudag lagði Valur Hauka í
kvennaflokki í jöfnum leik í
undanúrslitum 2220 og Haukar
því úr leik.
Á föstudag keppti Valur og FH
í karlaflokki og þeir sem mættu á
þann leik fengu mikið fyrir pen
inginn. Undir lok venjulegs
leiktíma stefndi allt í sigur Vals
en þá jöfnuðu FHingar á
lokasekúndunni og þá var
framlengt. Aftur stefndi í sigur
Vals en aftur jöfnuðu FHingar á
lokasekúndunni og því var aftur
framlengt! Þá voru Valsmenn
sprungnir og FHingar sigruðu
með 4 mörkum, 4440.
Þá tók við leikur ÍBV og
Hauka og gallharðir FHingar
héldu með Haukum og eygðu
úrslitaleik á milli Hafnarfjarðar
liðanna. Leikurinn var mjög
spennandi en ÍBV var sterkara
liðið á lokamínútunum og
sigruðu með 2 mörkum, 2321.
Mættust þá ÍBV og FH í
úrslitaleik á laugardaginn fyrir
troðfullu húsi í Laugardalshöll.
Stemmningin var gríðarlega góð
og fóru fylgismenn ÍBV
hreinlega á kostum, sungu,
klöppuðu og spiluðu allan
leikinn. FHingar komust í góða
forystu og virtust ætla að rúlla
yfir leikmenn ÍBV og gátu náð 6
marka forskoti. Áhangendur
ÍBV voru þó ennþá í sigurham
og kannski kveikti það í
Eyjamönnum því þeir náðu að
jafna og komast yfir. Ekkert
benti síðan til að FH næði að
jafna fyrr en á síðustu mínútun
um þegar þeir komust upp að
ÍBV og gátu jafnað. Það tókst
hins vegar ekki og enginn bikar
koma því í Fjörðinn þetta árið.
Njörður Helgason býr á
Burknavöllum þar sem snjó af
götunni fara upp á gangstéttina
og valda því að fólk þarf að fara
eftir götunni sem er flughál.
Segir hann konu hafa dottið á
henni, en enginn hálkuvörn er á
henni. Þarna er göngu leið barna
úr Hraunvallaskóla í sund
laugina á Ásvöllum og í
íþróttahús Haukanna.
Handbolti:
5. mars kl. 19.30, Kaplakriki
FH - Haukar
úrvalsdeild karla
8. mars kl. 18, Austurberg
ÍR Haukar
úrvalsdeild kvenna
9. mars kl. 19.30, Ásvellir
Haukar - Stjarnan
úrvalsdeild karla
Körfubolti:
5. mars kl. 19.15, Ásvellir
Haukar - ÍR
úrvalsdeild karla
8. mars kl. 19.15, Sauðárkr.
Tindastóll Haukar
úrvalsdeild karla
11. mars kl. 19.15, Grindavík
Grindavík Haukar
úrvalsdeild kvenna
Körfubolti úrslit:
Haukar Keflavík: (miðv.d.)
Karlar:
Njarðvík Haukar: 78100
Handbolti úrslit:
Konur:
Valur FH: (miðv.dag)
ÍR Haukar: (miðv.dag)
Valur Haukar: 2220
Karlar:
ÍBV FH: 2322
ÍBV Haukar: 2321
Valur FH: 4044
Íþróttir
húsnæði óskast
Óska eftir lítilli íbúð eða herbergi
til leigu sem fyrst.
Uppl. Í síma 896 5388.
Óska eftir atvinnuhúsnæði í
Hafnarfirði eða Garðabæ.
Skrifstofu- eða iðnaðarbil. 40-60
m². Uppl. í s: 777-1234
húsnæði í boði
Mjög gott 141,9 m² skrifstofu
húsnæði á annarri hæð í alfara
leið! Gott auglýsingagildi. Þrjár
skrif stofur, auk opins skrifstofu rým-
is. Uppl. veitir Gyða í s. 695 1095.
tapað - fundið
Hvítur iPhone í bleiku hulstri
tapaðist, sennilega í kringum IKEA,
á öskudaginn. Finnandi vinsam-
legast hafi samband í s.869 7090.
Fundarlaun.
þjónusta
Tölvuviðgerðir alla daga, kem á
staðinn, hagstætt verð.
Sími 664 1622 - 587 7291.
Tölvuaðstoð og viðgerðir
Viðgerðir og kennsla í tölvunotkun.
Apple* & Windows.
Kem í heimahús. Sími 824 9938 -
hjalp@gudnason.is
Innréttingasmíði, viðgerðir, almenn
smíði og viðgerð á húsgögnum.
Trésmíðaverkstæði Gylfa ehf.
sími 897 7947.
Bílaþrif. Kem og sæki.
Nú er rétti tíminn til að bóna bílinn
fyrir veturinn. Úrvals efni. Hagstætt
verð. Uppl. í s. 845 2100.
Ódýr húsgagnahreinsun einnig
leðurhreinsun. Djúphreinsun
hægindastóla, sófasett, rúmdýnur
og teppi. Hreinsum í höndum
leðuráklæði. Komum heim til fólks
og hreinsum. Sími 780 8319.
Óska eftir þolinmóðum, ábyrgum
og barngóðum aðila til að passa
fyrir mig 2 börn, 2 og 4 ára, á
þriðjudögum frá 1622 og eftir
atvikum meira. Þarf að sinna
léttum heimilisstörfum með (þvotti,
ganga frá í eldhúsi ofl.). Áhuga-
samir eru beðnir að hafa samband
með því að senda kontakt upplýs-
ingar á kolbrunrakel@gmail.com
og haft verður samband, öllum
verður svarað. Er í Háahvammi.
smáauglýsingar
aug l y s i n gar@f jardarpos t u r i n n . i s
s ím i 5 6 5 3 0 6 6
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a . V e r ð
a ð e i n s 5 0 0 k r. m . v . h v e r 1 5 0 s l ö g .
M y n d b i r t i n g 7 5 0 k r.
Loftnet - netsjónvarp
Viðgerðir og uppsetning á loftnetum,
diskum, síma- og tölvulögnum,
ADSL/ljósleiðurum, flatskjám og
heimabíóum. Húsbílar - hjólhýsi!
Loftnetstaekni.is
sími 894 2460
Aðalfundur og sólmyrkvi
Aðalfundur St. Georgsgildisins í
Hafnarfirði, samtaka eldri skáta
verður í Hraunbyrgi í kvöld kl. 20. Auk
almennra aðalfundarstarfa mun
Gunnlaugur Júlíusson stjörnu fræð-
ingur segja frá sólmyrkvanum sem
verður 20. mars. Gamlir skátar
velkomnir.
Laddi í kvöld
Allt það besta með Ladda verður í
Bæjarbíói í kvöld kl. 21. Miðasala á
midi.is
Listamannaspjall
Nú stendur yfir sýning á verkum
Kristbergs Ó. Péturssonar í Gallerý
Firði í verslunarmiðstöðinni Firði. Á
laugardaginn kl. 16 verður haldið
Listamannaspjall á sýningunni þar
sem gestum gefst kostur á að spyrja
um verkin og taka þátt í umræðum.
Verið velkomin.
Basar
Basar kvenfélags Fríkirkjunnar verður
á sunnudaginn kl. 14 í safnaðar heim-
ilinu við Linnetsstíg. Þar verður
ýmislegt á boðstólum s.s. kökur,
prjóna vörur o.fl. Einnig verður flóa-
markaðshorn. Allir velkomnir.
Ný sýning í Hafnarborg
Á laugardaginn kl. 15 verður opnuð
ný sýning hönnuðarins David Taylor
og nefnist hún Á gráu svæði.
Sendið stuttar tilkynningar um
viðburði á ritstjorn@fjardarposturinn.is
menning & mannlíf
styrkir barna og unglingastarf SH
Sundfélag Hafnarfjarðar • Ásvallalaug • www.sh.is • sh@sh.is
Aðalfundur SH
Fimmtudaginn, 12. mars 2015
kl. 19 í Ásvallalaug
Aðalfundur Sundfélags Hafnarfjarðar
verður haldinn fimmtudaginn 12. mars 2015
kl. 19.00 í félagssal SH í Ásvallalaug.
Á dagskrá fundarins verða venjuleg aðalfundarstörf
skv. samþykktum félagsins.
Stjórnin
Aðgangur 8 - 22 alla daga ársins
564-6500 - Steinhellu 15
Geymsla
frá 1 til 17 m²
www.geymslaeitt.is
geymsla eitt
Malbikun
Fengu ekki
fram leng ingu
Á síðastliðnu ári bauð
HlaðbærColas hf. lægst í vinnu
við yfirlagnir á götum Hafnar
fjarðar en undanfarin ár hefur
það verk verið boðið út árlega.
Í útboðsgögnum er kveðið á um
þann möguleika að framlengja
samninginn ef verktaki hefur
staðið sig vel.
Forsvarsmenn Hlaðbæjar
Colas hf töldu sig hafa sinnt
þeim verkefnum, sem fyrir tæk
inu voru falin, af stakri prýði og
leyst verkefnin vel af hendi og
óskuðu því eftir framlengingu á
samningi skv. ákvæðum út
boðs gagna.
Umhverfis og framkvæmda
ráð hafnaði erindinu á grunni
verðbreytinga á olíu og heimil
aði sviðinu (umhveri og fram
kvæmdum) að bjóða út yfir
lagnir.
slagverk.is
Fermingartilboð!
Námskeið í
hljóðfæraleik
Kennt er á trommur,
gítar, bassa og
mandolín
15% afsláttur af
gjafabréfum
Nánari upplýsingar hjá
nonnitromma@gmail.com
Rafmagns laust
Norðurbær
Vegna endurnýjunar á búnaði
í dreifistöð verður spennulaust
við Suðurvang, Miðvang,
Laufvang og Hjallabraut
aðfara nótt föstudagsins 6. mars
á milli kl.23.0006.30.
Þetta er síðara spennuleysið á
þessum stað. HS veitur biðst
velvirðingar á þeim óþægindum
sem þetta kann að valda.
Það var svarthvít veisla í Laugardalshöll.
Enginn bikar til Hafnarfjarðar
FH tapaði fyrir ÍBV með einu marki í úrslitum bikarkeppni karla
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Rutt upp á gangstéttir