Fjarðarpósturinn - 12.03.2015, Side 11
www.fjardarposturinn.is 11FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 12. MARS 2015
Opið hús - bleikjuflök
Opið hús er í kvöld 12. mars. kl. 20 að
Flatahrauni 29 eins og alla fimmtudaga. Í kvöld
sýnir Ævar Ágústsson hvernig hann grefur
bleikju flök. Auðvitað fáum við að smakka líka.
Allir hjartanlega vel komn ir og það verður heitt á
könnunni.
Hönnun í Hafnarfirði
12.-15. mars verður lögð áhersla á hönnun í
Hafnarfirði. Hafnarborg, Íshús Hafnarfjarðar og
Litla Hönnunarbúðin taka þátt í Hönnunarmars
og vill Hafnarfjarðarbær vekja athygli á grósku-
mikilli hönnun í bænum. Aðgangur ókeypis. Sjá
auglýsingu á baksíðu og á www.hafnarfjordur.is
Tónleikar Kammerkórsins
Á sunnudaginn kl. 20 verða tónleikar í
Hafnarborg þar sem Kammerkór Hafnarfjarðar
syngur lög sem Gunnar Gunnarsson píanóleikari
og organisti hefur raddsett og útsett.
Sýning í Hafnarborg
Í Hafnarborg stendur yfir sýning hönnuðarins
David Taylor og nefnist hún Á gráu svæði. David
Taylor hefur vakið athygli víða um heim fyrir
einstaka og framsækna hönnun. Sýningin
samanstendur af hversdagslegum hlutum eins
og lömpum, klukkum og speglum sem að allir
bera með sér sterk skúlptúrísk einkenni og eru
oft á tíðum unnin úr óhefðbundnum efnivið
Þrjár sýningar í Gaflaraleikhúsinu
um helgina
Gaflaraleikhúsið sýnir leikrit núna um helgina. Á
morgun, föstudag kl. 20 og á laugardaginn kl.
20 sýnir leikhúsið verkin Konubörn og Heila
Hjarta Typpi. Sunnudaginn 15. mars kl. 13 og kl.
16 verður síðan Bakaraofninn á fjölunum.
Miðasala er á midi.is
Sendið stuttar tilkynningar um viðburði á
ritstjorn@fjardarposturinn.is
menning & mannlíf
Húsið og Inga Björk fengu styrki
Úthlutað úr Minningarsjóði Helga og Bjarna
Þrjú verkefni hlutu styrk úr Minningar
sjóði Helgu og Bjarna við hátíðlega athöfn
í Hásölum á afmælisdegi Bjarna
Snæbjörnssonar læknis 8. mars.
Húsið – ungmennahús Hafnarfjarðar
bæjar í Setbergi fékk tvo styrki, Ísjakarnir
sem er hópastarf með það að markmiði að
tengja ungmenni af erlendum uppruna inn
í samfélagið fékk 150 þúsund og Stuð
boltarnir hópur ungmenna með fatlanir
fékk 95 þúsund vegna ævintýra ferðar.
Inga Björk Ingadóttir fékk fimmhundruð
þúsund krónur til uppbyggingar á Músík
meðferðarstöðinni Hljómu Austurgötu 38.
Magnús Snæbjörnsson, afhenti styrkina
fyrir hönd stjórnar Minningarsjóðsins en
Magnús skipar stjórn sjóðsins ásamt séra
Jóni Helga Þórarinssyni og Rósu Guð
bjartsdóttur.
Minningarsjóður Helgu og Bjarna hefur
starfað frá árinu 2006 og er hlutverk sjóðs
ins að styðja við og efla einstaklinga,
fyrir tæki eða opinbera aðila í Hafnarfirði
sem veita börnum, sem glíma við hvers
konar erfiðleika, þjónustu og aðstoð. Frá
stofnun sjóðsins hafa 24 verkefni fengið
styrkveitingar. Nánari upplýsingar um
Minningarsjóð Helgu og Bjarna má finna
á www.bjarnioghelga.is
Hvað er
Markaðsstofa
Hafnarfjarðar?
UMRÆÐUFUNDUR
Í HAFNARBORG
ÞRIÐJUDAGINN
17. MARS KL. 17.15
Þriðjudaginn 17. mars verður haldinn fundur
þar sem rætt verður um starfsemi Markaðsstofu
Hafnarfjarðar sem verður stofnuð á næstu vikum.
Markaðsstofa Hafnarfjarðar mun leggja áherslu á að
gera Hafnarfjörð að öflugum valkosti fyrir fólk og
fyrirtæki til búsetu, atvinnu og afþreyingar.
DAGSKRá FUNDARINS:
• Markaðsstofa Hafnarfjarðar – ný tækifæri
• Markaðsstofa Kópavogs
– hvernig hefur gengið?
• Icelandair - nýtt fyrirtæki í bænum
• Hjarta bæjarins – hvernig er að reka fyrirtæki í
miðbæ Hafnarfjarðar
• Umræður
Nánari upplýsingar á www.hafnarfjordur.is
Aðilar í fyrirtækjarekstri eru sérstaklega
hvattir til að mæta á fundinn
Magnús Snæbjörnsson, Inga Björk Ingadóttir frá Hljómu, Jón Helgi Þórarinsson,
Rósa Guðbjartsdóttir og Guðbjörg Magnúsdóttir frá Húsinu.
Ný hafnfirsk sveit spilar
Uggla og Sveinn á Skriðið út úr Skelinni #5
Á laugardaginn verður fimmti hluti
tónleikaraðarinnar Skriðið út úr Skelinni
á A. Hansen bar Vesturgötu 3. Fram
koma söngvaskáldið Sveinn Guð
mundsson og rokkhljómsveitin Uggla.
Tónlistin hefst kl. 21 og að vanda er frítt
inn og afar góð stemmning. Sveinn
skreið út úr skelinni sem söngvaskáld
fyrir rúmum 2 árum síðan með plötunni
„Fyrir herra Spock, MacGyver og mig“.
Platan samanstendur af rólyndis
gítarmúsík með sjálfspeglandi textum.
Sveinn hefur verið að spila hér og þar, á
kaffihúsum, í plötubúðum, sundlaug um,
sjóminjasöfnum og félagsheimilum og
kemur venjulega fram einn með gítarinn.
Á laugardaginn mun hann leika lög af
plötunni sinni í bland við glæný lög.
Meðlimir hljómsveitarinnar Ugglu eru
allir Hafnfirðingar og hafa vitað hver af
öðrum í yfir 20 ár. Allir hafa komið við í
hinum og þessum hafnfirskum
hljómsveitum en nýverið gengu þeir á
hljóð hvers annars og úr varð Uggla.
Tónsmíðarnar eru flestar einhvers konar
popprokk en undir ýmsum áhrifum, svo
sem frá jazzi og sveitatónlist. Hljóm
sveitina skipa Valdimar Þór Valdimarsson
sem syngur og leikur á gítar, Kjartan
Orri Ingvason sem leikur á gítar og
munnhörpu, Kjartan Þórisson sem spilar
á trommur og Viðar Hrafn Steingrímsson
sem spilar á bassa.
Einar Örn tekur svo við á miðnætti og
trúbbast fram á rauða nótt.