Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 22.04.2015, Blaðsíða 11

Fjarðarpósturinn - 22.04.2015, Blaðsíða 11
www.fjardarposturinn.is 11FJARÐARPÓSTURINN | MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 2015 Um páskana fór fram glæsileg danskeppni sem haldin var í Winter Gardens höllinni í Black­ pool. Fjölmörg íslensk danspör tóku þátt. Auður Haraldsdóttir, dans­ kenn ari hjá Dansíþróttafélagi Hafn ar fjarðar, segir að keppt var í junior flokki, börn 12­16 ára ásamt juvenile barnaflokki, 11 ára og yngri. Þá var liðakeppni þar sem Ísland tók þátt ásamt ásamt Úkraínu, Bandaríkjunum, Rússlandi og Englandi. Íslenska liðið í junior 11 ára og yngri skipuðu þau Atli Gíslason og Eva Lilja Bjarnadóttir,Ignas Pacevicius og Arndís Hallgríms­ dóttir sem dönsuðu ballroom dansa sem eru vals og tangó og kvikk­stepp og Aron Logi Hrann ars son og Halldóra Ísold Þórðardóttir, Einar Magnússon og Selma Lind Árnadóttir sem dönsuðu suður ameríska dansa, cha cha cha, sömbu og jive. Í liðakeppni junior 12­16 ára dönsuðu lið frá Finnlandi, Úkra­ ínu, Bandaríkjunum, Rússlandi, Kína, Ítalíu, Noregi, og Englandi. Lið Íslands samanstóð af 4 pörum, þeim Rúnari Bjarnasyni og Lilju Gísladóttur, Gabríel Einarssyni og Lísu Ólafsdóttur sem dönsuðu ballroom dansana ásamt Elvar Gabunay og Söru Guðnadóttur og Gylfa Má Hrafnssyni og Maríu Tinnu Hauksdóttur sem dönsuðu suður ameríska dansa. Blackpool Dance Festival er ein stærsta danskeppni sem haldin er í heiminum í dag fyrir börn og unglinga og sækja íslensk pör keppnina á hverju ári. Sara Rós Jakobsdóttir var fánaberi og bar íslenska fjallbún­ inginn afar vel. Mikil stemmning var í hópnum sem hvatti íslenska liðið áfram með hrópum. Stærsti hópur frá DÍH Aldrei fyrr hefur farið jafnstór hópur danspara og foreldra ásamt stuðningsfólki frá DÍH og núna í ár, eða rúmlega 60 manna hópur og þar af voru 12 danspör, eða 24 dansarar. Í 10. sæti af 65 pörum Í Blackpool danskeppni barna og unglinga komust þau Aron Logi Hrannarsson og Halldóra Ísold Þórðardóttir hjá DÍH í undanúrslit, 12 para úrslit, og lentu í 10. sæti í Vínarvalsi. Sextíu og fimm pör sem hófu keppni í þessum dansi og telst þetta flottur árangur. Danskeppnin stendur yfir í heila viku og er ein sú stærsta og vinsælasta sem haldin er í heiminum í dag að sögn Auðar. Er hún talin vera óopinbert heimsmeistaramót fyrir börn og unglinga 11 ára yngri og 12­16 ára. Í fréttablaði Gazette sunnu­ daginn 12.apríl voru þau Heimir Snær Vilhjálmsson og Svandís Ósk Einarsdóttir á fallegri mynd sem er flottur heiður fyrir þau og skemmtilegt að fá íslenskt par í fréttirnar þarna úti segir Auður Haraldsdóttir að lokum. Stór hópur frá DÍH á danskeppni í Blackpool Aron Logi Hrannarsson og Halldóra Ísold Þórðardóttir í 10. sæti í Vínarvalsi Danshópurinn frá DÍH ásamti Auði danskennara sínum. Lið Íslands í flokki 11 ára og yngri. Lið Íslands í flokki 12 til 16 ára. Rúnar og Lilja sem kepptu í flokki 12-16 ára. Aron Logi og Halldóra Ísold náðu 10. sæti í Vínarvalsi. Leitaðu: „Fjarðarpósturinn“

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.