Fjarðarpósturinn - 21.05.2015, Side 2
2 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2015
Starfsfólk á bæjarskrifstofum
Hafnarfjarðarbæjar og eflaust
fleiri tóku til hendinni sl. þriðju
dag og fóru út til að tína upp
drasl og setja í poka. Greinilega
er strax fennt í nýlega um hverfis
stefnu bæjarins þar sem útrýma
ætti notkun á plastpokum. Í stað endurnotanlegra
poka sáust svörtu ruslapokarnir en kannski er nýi
meirihlutinn ekkert bundinn af fyrri ákvörðunum.
Hafnarfjörður er fallegur bær. Víða er mjög
snyrtilegt en allt of víða er sóðaskapurinn alls ráðandi.
Þó ýmsar reglur séu í gildi um umgengni fólks er lítið
farið eftir þeim og trassarnir fá nær undantekningalaust
að komast upp með sóðaskap og að brjóta leikreglur
samfélagsins. Þó gerðar séu fínar gangstéttar er lítið
sem ekkert gert þótt þær séu jafnvel notaðar undir
bílhræ. Þótt menn hlaði drasli út að götu er það látið í
raun viðgangast. Við Hafnfirðingar og Íslendingar
allir erum vandir á það að hægt sé að sniðganga
reglur. Ekki hjálpar heldur að misvitrir þingmenn
samþykki reglur gegn ráðleggingum flestra og t.d.
leyfa akstur á rafmagnsvespum hvort heldur er á
götum eða gangstéttum og enginn fylgist með hraða
þeirra enda engin hraðatakmörk til á stígum. Þeir voru
aldrei gerðir fyrir akandi umferð.
Bæjarbúar eru ekkert öðruvísi en börnin, þótt þau
mótmæli boðum og bönnum verða þau óörugg þegar
engar reglur eru settar eða þeim ekki fylgt. Þau vilja
skýrar reglur. Þetta þurfa bæjaryfirvöld að hafa í huga.
Vera samkvæm sjálfum sér, hafa skýrar leikreglur og
fara eftir þeim. Þá væri kannski ekki svo mikið drasl
að fjúka um bæinn. Hvaðan kemur draslið? Einhver
hefur hent því á jörðina! Einhver hefur sett það þar
sem vindurinn tekur það auðveldlega. Allir heimta
ruslafötur alls staðar en lausnin er að fólk að mestu
leyti beri ábyrgð á sínu drasli. Þá fer kannski hver og
einn að horfa í eigin barm og reyna að losna við að
taka á móti óþarfa umbúðum sem strax þarf að henda.
Nú eru svartir plastpokar út um allan bæ, fólk hefur
snurfusað í görðunum hjá sér og getur gengið að því
vísu að bærinn hirði þetta upp á hverju vori. Hver er
hvatinn til að gera safnhaug? Hver er hvatinn til nýta
vel það sem til fellur í garðinum? Enginn. Það er góð
hugsun að gera vel við íbúana en kannski erum við að
venja okkur íbúa á að þurfa ekki að hugsa. Af hverju
eru fjúkandi jólatré út um allan bæ, alveg fram á
sumar. Jú, við máttum setja þau út í vetrarveðrið eftir
jólin og treysta á að þau yrðu tekin áður en vindurinn
tæki þau. VIÐ berum ábyrgð. Öxlum hana.
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
Útgefandi: Keilir ehf. kt. 480307-0380
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf.
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Ábyrgðarmaður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
www.fjardarposturinn.is
www.facebook.com/fjardarposturinn
Hvítasunnudagurinn 24. maí
Hátíðartónleikar á
hvítasunnudag kl. 17
Kór Fríkirkjunnar í Hafnarfirði
ásamt hljómsveit
Stjórnandi: Örn Arnarsson
Sola Kammerkor frá Stavanger í Noregi
Stjórnandi: Ernst Th. Monsen
Allir hjartanlega velkomnir.
Fylgist með okkur á www.frikirkja.is
35 ár
Stolt að þjóna ykkur
Útfararskreytingar
kransar, altarisvendir,
kistuskreytingar,
hjörtu
Bæjarhrauni 26
Opið til kl. 21 öll kvöld
Símar 555 0202 og 555 3848
www.blomabudin.is
Sunnudagur 24. maí, hvítasunnudagur
Hátíðarguðsþjónusta
kl. 11
Kór kirkjunnar syngur
undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar
Prestur er sr. Kjartan Jónsson.
Hressing og samfélag á eftir.
www.astjarnarkirkja.is
Víðistaðakirkja
Hvítasunnudagur 24. maí
Helgistund kl. 11
Lilja Guðmundsdóttir leiðir söng við
undirleik Helgu Þórdísar organista.
Séra Halldór Reynisson þjónar fyrir altari.
Allir hjartanlega velkomnir
www.vidistadakirkja.is
Hvítasunnudagur 24. maí
Fermingarmessa kl. 11
Félagar úr Barbörukórnum syngja.
Organisti er Guðmundur Sigurðsson.
Prestar eru sr. Þórhildur Ólafs og
sr. Jón Helgi Þórarinsson.
Sjá nöfn fermingarbarna
á heimasíðu kirkjunnar.
www.hafnarfjardarkirkja.is.
Unga körfuboltafólkið uppskar vel
Gróska í barna- og unglingastarfi Hauka í körfubolta
Þann 12 maí sl hélt körfu
knattleiksdeild Hauka uppskeruhátíð
barna og unglingastarfsins. Var mjög
vel mætt af krökkum og foreldrum.
Þeim krökkum sem hafa verið
valin í landsliðsverkefni hjá KKÍ
fengu viðkenningu fyrir góðan
árang ur, „enda erum við stolt af
þessum krökkum og stolt af því að
eiga 27 krakka í þessum hóp,“ segir
Arnar Þór Ragnarsson formaður
barna og unglingaráðs körfuknatt
leiksdeildar Hauka.
Allir krakkarnir í minniboltanum
fengu viðurkenningu fyrir veturinn. Í
öðrum flokkum voru verðlaun veitt
fyrir bestu ástundun, mestu framfarir
og mikilvægasta leikmanninn.
Haukakempan Henning Henn
ings son var valinn þjálfari ársins en
flokkurinn hans, 9. flokkur drengja
varð bikarmeistari í vetur og flokk
urinn náði 2. sæti á Íslandsmótinu.
Þá urðu drengjaflokkur og stúlkna
flokkur bikarmeistarar og báðir
enduðu í 2 sæti á Íslands mótinu í
vetur.
„Við í körfuknattleiksdeildinni
erum stolt og ánægð með iðkendurna
okkar og getum horft björt til fram
tíðar,“ segir Arnar. Okkar stefna er að
byggja starfið upp á Hauka fólki sem
skilar sér upp í meistara flokkana.
Það stuðlar að sterkum og sam held
um hópum,“ segir Arnar að lokum.Upprennandi körfuknattleiksfólk í Haukum.
Haukar eiga 27 einstaklinga í landsliðsverkefnum hjá KKÍ.