Fjarðarpósturinn


Fjarðarpósturinn - 21.05.2015, Blaðsíða 8

Fjarðarpósturinn - 21.05.2015, Blaðsíða 8
8 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 2015 Á fjölmennum fundi foreldra ungra barna í Hafnarfirði með bæjarfulltrúum kom fram í máli Rósu Guðbjartsdóttur að um 500 milljón kr. aukaútgjöld hafi komið til vegna launahækkana grunn- og leikskólakennara, en hún rakti fjárhagsstöðu bæjarins í upphafi fundarins og sagði sveitarfélagið í hópi 5 skuld- settustu sveitarfélaga landsins. Úthlutunarreglur bæjarins segja til um að barn komist á leikskóla árið sem það verður 2 ára og því er barn fætt 1. janúar ekki jafnstætt barni sem fæðist 31. desember. Í skólastefnu Hafnar- fjarðar, sem endurskoðuð var árið 2009, segir að stefnt skuli að því að 18 mánaða börn komist á leikskóla í Hafnarfirði. Nefndi hún að á síðasta kjörtímabil hafi verið upplýst að börn fædd í janúar til mars gætu fengið pláss að hausti og þannig gengið á biðlistana. Sagði hún að gagnrýni hafi komið fram um ógagnsæi á þessar nýju verklagsreglur sem settar hafi verið á í aðdraganda kosninga. Gunnar Axel Axelsson sagði að nauðsynlegt væri að fólk heyrði hina hliðina. Fjárhags- staða bæjarins hafi verið mjög slæm við hrun en staðan væri allt önn ur og betri í dag. Mikilvægt hafi verið að standa vörð um grunn þjónustuna og því hafi ekki verið skorið niður þar. Full yrti hann að hægt væri að lækka inntökualdur um 3 mánuði án þess að hreyfa við kerfinu. Meiri hluti bæjar stjórnar hafi hins vegar kosið að skera niður á þessu sviði og lækka ekki inn- tökualdur þegar svigrúm mynd- aðist. Það ætti einfaldlega að nýta þau pláss sem væru laus og það hafi ekki verið dreginn upp nein kanína rétt fyrir kosn ingar. Fulltrúum meirihlutans var tíðrætt um slæma fjárhagsstöðu og nefndi Kristinn Andersson m.a. að fjárhagsstaðan væri enn verri en þau hafi vonast eftir að hún væri. Foreldrar hafa ítrekað kallað á svör. Vilja þeir vita hvenær börn þeirra komist á leikskóla og upplýsti Guðlaug Kristjánsdóttir forseti bæjarstjórnar að þau kæmu í lok maí og nefndi jafn- framt að hætt hafi verið við að hækka leikskólagjöld eins og ætlunin hafi verið. Í máli Einars Birkis Einars- sonar varaformanns fræðsluráðs kom fram að menn vildu reyna að ná því fram sem verið hafi praktíserað undanfarin ár. Það er ekki ofsögum sagt að fulltrúar meirihlutans hafi átt undir högg að sækja í umræðunni á fundinum og létu foreldrar óánægju sína í ljós Sundfélag Hafnarfjarðar • sh@sh.is • www.sh.is • 555 6830 Allar upplýsingar um sumarsund Sundfélags Hafnarfjarðar og innritun verða á heimasíðu SH www.sh.is. styrkir barna- og unglingastarf SH Tímabil í boði: 9.-19. júní 22. júní - 3. júlí 6.-.17. júlí 20. - 31. júlí Sumarsund fyrir hressa krakka Sumarsundskóli Sundfélags Hafnarfjarðar, SH, er með námskeið í Ásvallalaug, Sundhöllinni og Lækjarskólalaug í sumar Námskeiðin eru fyrir börn á aldrinum 4-10 ára og standa yfir í tvær vikur eða 8-10 skipti. Er barnið þitt að byrja í skóla í haust og er óöruggt í vatninu? Skráðu það í Sumarsund SH! Rósa Guðbjartsdóttir, formaður fræðsluráðs. Foreldrarnir voru opinskáir og gerðu harða hríð að meirhlutanum. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Fullt var í fyrirlestrarsal Hvaleyrarskóla og umræður fjörugar. Lj ós m .: G uð ni G ís la so n Hart sótt að meirihlutanum Foreldrar ungra barna mjög ósáttir Leikskólastjórar mæla gegn tíðari innritunum Leikskólastjórar í Hafnarfirði hafa sent fræðsluráði umsögn um þá hugmynd að innrita börn oftar ár ári í leikskóla en foreldrar hafa krafist þess að fyllt verði janfnóðum í þau pláss sem losna í leikskólunum. Segir í umsögninni að um 100 pláss komi til með að vera laus frá ágúst 2015 til 1. janúar 2016. „Í leikskólum skulu velferð og hagur barna höfð að leiðarljósi í öllu starfi. Leikskólinn er fyrsta skólastigið í skólakerfinu og leikskólaárið á sér upphaf að hausti með aðlögun nýrra barna og endi þegar elstu börnin ljúka leikskólagöngu við sumarleyfi. Innritun nýrra barna hefur verið í mars og þau börn sem þá innritast hefja leikskólagöngu að hausti. Ef innrita á börn oftar og að taka á móti börnum og nýju starfsfólki í janúar, hefur það áhrif á þau börn sem fyrir eru og líðan þeirra. Meira álag verður líklega og lengri tíma tekur að ná jafnvægi í barnahópnum. Það truflar leikskólastarfið og hefur áhrif á starfshætti og skipulagt starf,“ segir í umsögninni. Telja leikskólastjórar að það sé kostur fyrir börnin og foreldra að geta hafið aðlögun í leikskóla að loknu sumarleyfi. Hvort þetta teljist meiriháttar breyting á skólastarfi segja leikskólastjóarar líka vera álitamál en þá þurfi að leita umsagnar foreldraráðs leik- skólanna skv. lögum um leik- skóla 11 grein. „Leiða má líkum að því, að erfiðara sé að fá fagfólk í lausar stöður á miðju skólaári þar sem flestir leikskólakennarar ráða sig til vetrarins.“ Foreldrar skora á bæjaryfirvöld Foreldrar ungra barna ósáttir Aðalfundur Badmintonfélags Hafnarfjarðar verður haldinn miðvikudaginn 27. maí kl. 18 í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Dagskrá aðalfundar er samkvæmt lögum félagsins. Félagsmenn eru hvattir til að mæta. Foreldrar barna í Hafnarfirði sem fædd eru árið 2014 hafa sent Hafnarfjarðarbæ áskorun en þeim þykir óviðunandi hve börnum hér er boðin leik- skólavist seint á aldurskeiðinu. Í inngangi segir m.a.: „Við bendum á að í samanburði við nágrannasveitarfélögin er Hafnarfjörður sannarlega eftir- bátur hvað leikskólaþjónustu varðar, hvort heldur sem litið er til inntökualdurs eða leik- skólagjalda. Okkur finnst við svikin um þjónustu og sann- gjarnt og eðlilegt jafnræði við barnafjölskyldur annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Því skora foreldrar á bæjar- yfirvöld: - að tryggja að öll börn sem orðin verða 18 mánaða 1. sept- ember n.k. fái leikskólavist í haust - að auka niðurgreiðslur vegna barna hjá dagforeldri frá 18 mánaða aldri svo kostnaður foreldra með barn hjá dag- foreldri verði til jafns við kostnað foreldra með barn á leikskóla - að auka niðurgreiðslur til dagforeldra almennt til jafns við það sem gerist í ná granna- sveitarfélögum - að innrita alla jafna í laus pláss allt árið um kring og leit- ast við að bjóða yngri börnum leikskólavist kjósi foreldrar svo. Ekki í þágu heildarhagsmuna Það er álit leikskólastjóra að gallarnir við þessa ráðstöfun séu fleiri en kostir og hvetja þeir fræðsluyfirvöld til að leita annara leiða til að leysa fjárhagsvanda en að fækka tímabundið leik- skóla plássum. Telja þeir það ekki í þágu heildarhagsmuna þeirra sem að leikskólastarfinu koma, barna, foreldra eða starfsfólks.

x

Fjarðarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fjarðarpósturinn
https://timarit.is/publication/945

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.