Fjarðarpósturinn - 04.06.2015, Qupperneq 4
4 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 4. JÚNÍ 2015
FJÓRAR HAGNÝTAR NÁMSBRAUTIR
Fisktækniskóli Íslands
býður upp á fjölbreytt
nám í sjávarútvegi á
framhaldsskólastigi.
Námið er hagnýtt tveggja
ára nám sem er byggt
upp sem önnur hver önn í
skóla og hin á vinnustað.
Nemendur geta valið sér
námsleiðir í sjómennsku,
fiskvinnslu og fiskeldi.
Verkefni og vinnustaðir
eru valdir með hliðsjón af
áhuga hvers og eins.
Nám í skóla - nám á vinnustað
Víkurbraut 56 240 Grindavík, info@fiskt.is
FISKTÆKNI
Tveggja ára hagnýtt framhaldsskólanám til starfa í
sjávarútvegi og fiskeldi.
Inntökuskilyrði: Grunnskólapróf.
Á Fisktæknibraut er hægt að velja þrjár línur:
Sjómennska/veiðar - Fiskvinnsla- Fiskeldi
Hvert námsár skiptist í eina önn í skóla og eina á vinnustað
undir leiðsögn tilsjónamanns (72 ein).
MAREL VINNSLUTÆKNI
Eins árs nám við vélar og hugbúnað frá Marel.
Inntökuskilyrði:
Hafa lokið námi í Fisktækni eða sambærilegu námi.
Námsárið skiptist í fagbóklegar greinar og vinnustaðanám undir
leiðsögn tilsjónamanns (36 ein).
GÆÐASTJÓRN
Eins árs nám í gæðstjórnun.
Inntökuskilyrði:
Hafa lokið námi í Fisktækni eða sambærilegu námi.
Námsárið skiptist í fagbóklegar greinar og vinnustaðanám undir
leiðsögn tilsjónamanns (36 ein).
NETAGERÐ
Þriggja ára iðnnám með mikla starfsmöguleika til starfa við
veiðarfæragerð (48 ein).
Spennandi blanda bóklegs og verklegs náms sem gefur mikla
starfsmöguleika eða til frekari menntunnar.
Nánari upplýsingar hjá
starfsmönnum Fisktækniskóla
Íslands í síma 412-5966 eða á
www.fiskt.is Námskeið
Við bjóðum fyrirtækjum og einstaklingum upp á ýmis námskeið
svo sem HACCP, vélstjórn, smáskipanám og fl. sjá heimasíðu.
Innritun hafin fyrir
haustönn 2015
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkt þann 7. apríl
2015 deiliskipulag fyrir Arnarhraun 50 sem
öðlaðist gildi 28. maí 2015. Gildistaka skipulagsins
er hér auglýst í samræmi við 3. mgr. 41. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010.
Uppdrátt með skilmálum má sjá á heimasíðu
Hafnarfjarðar www.hafnarfjordur.is
Málsmeðferð var skv. 41. gr. ofangreindra laga.
Í samræmi við 52. gr. laga nr. 123/2010 er
kærufrestur einn mánuður frá birtingu auglýsingar
þessarar. Kærur sendist til úrskurðarnefndar
umhverfis- og auðlindamála Skuggasundi 3, 101
Reykjavík
Skipulags- og byggingarsvið
GILDISTAKA SKIPULAGS
ARNARHRAUN 50
Lækka á innritunaraldur
í leikskóla í áföngum
Hækka niðurgreiðslur vegna dagforeldra
Fræðsluráð vísaði til bæjar-
stjórn ar á mánudag tillögum full-
trúa Sjálfstæðisflokks og Bjartrar
framtíðar um að lækka innrit-
unar ald ur á leikskólum í það að
vera það sem segir í skólastefnu
bæj arins. 1. febrúar 2017 er gert
ráð fyrir að náist að innrita þau
börn sem verða 18 mán aða á því
ári sem þau innritast.
1. ágúst nk. verður fyrir komu-
lagið sambærilegt og það var á
síðasta ári og meirihlutinn hefur
gagnrýnt fyrir ógagnsæi. Þá er
stefnt að því að börn fædd í
janúar og febrúar 2014 verði inn-
rituð í leikskóla.
Innritunaraldur verður lækk-
aður um einn mánuð á ári við
hverja innritun í ágúst og febrúar
þar til 1. febrúar 2017 er mark-
miðinu verður náð.
25% hækkun á
niðurgreiðslum
Lagt er til að 1. ágúst verði
niðurgreiðsla í dagforeldravistun
hækkuð úr 40 þús. kr. í 50 þús.
kr. á mánuði jafnframt því að
mótframlagið hækki enn frekar
við 18 mánaða aldur.
Gjaldfrjáls leikskóli?
Meirihluti fræðslunefndar
leggur til að tilraun verði gerð
með 6 tíma gjaldfrjálsan leik-
skóla í 1-2 leikskólum en vinnu-
hópur um gjaldskrá hefur verið
með það mál á sínum borðum en
ekki hefur verið fengið kostn-
aðar mat á það. Eflaust fagna
margir gjaldfrjálsum leikskóla en
efasemdir hafa heyrst um það
hvort jafnræðis sé gætt að gera
þetta aðeins í 1-2 leikskólum.
Án útgjaldaauka fyrir
bæjarsjóð
Meirihluti fræðslunefndar hef-
ur tilkynnt að lagðar verði fram
tillögur um hvernig þessum
út gjöldum verði mætt án út -
gjalda auka fyrir bæjarsjóð. Það
þarf að gera með viðauka við
fjárhagsáætlun en ekki hefur ver-
ið upplýst með hvaða hætti það
verður.
Kaldárselsvegi • sími 555 6455
Tré og runnar
...í garðinn þinn
Sundfélag Hafnarfjarðar • sh@sh.is • www.sh.is • 555 6830
Allar upplýsingar um sumarsund Sundfélags Hafnarfjarðar og innritun
verða á heimasíðu SH www.sh.is.
styrkir barna- og unglingastarf SH
Tímabil í boði:
9.-19. júní
22. júní - 3. júlí
6.-.17. júlí
20. - 31. júlí
Sumarsund fyrir
hressa krakka
Sumarsundskóli
Sundfélags Hafnarfjarðar, SH, er með
námskeið í Ásvallalaug, Sundhöllinni
og Lækjarskólalaug í sumar
Námskeiðin eru fyrir börn á aldrinum 4-10 ára
og standa yfir í tvær vikur eða 8-10 skipti.
Er barnið þitt að byrja í skóla í
haust og er óöruggt í vatninu?
Skráðu það í Sumarsund SH!